
„Það er ekki á hverjum degi sem maður fær að sjá vinnsluútgáfu af íslenskri kvikmynd áður en hún fer í almennar sýningar. En fyrr í sumar fékk ég einmitt tækifæri til að sjá slíka útgáfu,“ segir Alfreð Ásberg bíókóngur í SAM-veldinu. Um er að ræða væntanlega mynd Braga Þórs Hinrikssonar og Helgu Arnardóttur, Röskun, sem byggð er á samnefndri og vinsælli bók eftir Írisi Ösp Ingjaldsdóttur.




