STJÖRNUSPEKINGUR UM STÓRSTJÖRNU
BENSÍNSJOPPAN SEM SPRAKK
Frá Tækniminjasafni Austurlands á Seyðisfirði:
–
Það hefur gengið á með lægðum, óveðrum, tilheyrandi ófærð og sem betur fer einstaka góðviðrisdögum undanfarnar vikur sem hefur haft ýmiskonar áhrif á líf okkar.
Við vorum að leita að skemmtilegu „feelgood“ efni fyrir þennan föstudagsmorgun til að lyfta okkur aðeins upp úr lægðunum en rákum þá augun í þessa ljósmynd sem tekin er af Sólveigu Sigurðardóttur eftir óveður sem gekk yfir þann 1. desember 1980 – sjá nánar hér.
GAMLIR OG GLÚRNIR FERÐAKÓNGAR
Ferðaskrifstofan Ævintýraferðir Örnólfs hefur skipulagt ferðir og kynnt langt fram á næsta haust. Á bak við Ævintýraferðir stendur Örnólfur Árnason, landsþekktur rithöfundur og lífskúnstner, orðinn 85 ára.
Örnólfur fetar nú í fótspor tveggja annarra ferðaskrifstofukónga sem báru höfuð og herðar yfir aðra í ferðabransanum á sinni tíð, Ingólfs í Útsýn og Guðna i Sunnu. Ingólfur hætti störfum 83 ára og Guðni 87 ára – en byrjaði svo aftur og vann í ár.
Næsta ferð Ævintýraferða Örnólfs er til Japan 23. apríl – uppselt. Þá er það Albanía, Kósóvó og Norður Makedónía í september, Balí, Kómodó og Flores í október og Singapúr, Víetnam og Kambódía í nóvember.
TITANIC LEGGUR ÚR HÖFN
Á þessum degi, 10. apríl 1912, lagði Titanic úr höfn í Southamton á Englandi í sína fyrstu ferð með stefnuna á New York. Þessi fyrsta og eina ferð skipsins varði aðeins í fimm daga því 15. apríl sökk það út af Nýfundnalandi – skipið sem átti ekki að geta sokkið…
FORSETINN SELDUR
Veitingastaðurinn Forsetin á Laugavegi hefur verið seldur. Kaupandinn er úkraínskur kaupsýslumaður sem ætlar að halda rekstrinum áfram. Helgi Njálsson hefur rekið Forsetann ásamt konu sinni um margra ára skeið á miðjum Laugavegi og hverfu nú frá.
CARL PERKINS
Fæðingardagur Carl Perkins (1332-1998), mannsins sem samdi Blue Suede Shoes, Honey Don’t, Matchbox, Everybody’s Trying to Be My Baby ofl. Hér tekur hann lagið með nokkrum heimsfrægum lærisveinum sínum.
ÁRITUÐ BÓK DAVÍÐS TIL ÓLAFS RAGNARS Á UPPBOÐI
Eintak af bók Davíðs Oddssonar, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar, er á bókauppboði Foldar. Eintakið er áritað af Davíð til þáverandi forsetahjóna, Ólafs Ragnars Grímssonar og Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur.
Áritunin þykir auka verðgildi bókarinnar í ljósi sögunnar því oft og lengi elduðu þeir grátt silfur saman, Davíð og Ólafur Ragnar.
Bókin kom út hjá Vöku-Helgafelli 1997, er smásagnasafn og verðmat þessa eintaks á uppboðinu 180.000 – 200.000. Uppboðinu lýkur 14. apríl.
MÓÐIR JÖRÐ FÓTBROTIN Á LANDSPÍTALA

Verkið Móðir jörð eftir Ásmund Sveinsson, sem er staðsett í gamla anddyri Landspítalans í Fossvogi á annarri hæð, er illa farið. Bæði móðir og barn eru illa fótbrotin.
Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir myndlistarkona og iðnhönnuður var þarna á ferð og myndaði illa farna styttuna:
„Þegar ég var þarna í morgun var ég hissa og sorgmædd að ekki sé gert við verkið.“
SKYNDIMÓTMÆLI
Hernaðarandstæðingar efna til „skyndimótmæla“ við bandaríska sendiráðið í dag klukkan 17:00.
70 ÞÚSUND HLUSTUÐU Á PATRIK UM PÁSKANA
Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Eftirmál, sem fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Yaghi stýra, vakti mikla athygli yfir páskana. Í þættinum er fjallað um morðið á Hannesi Helgasyni og er Patrik Atlason, systursonur Hannesar, til viðtals í þættinum. Patrik var 16 ára þegar voðaverkið var framið og lýsir hann upplifun sinni af þessum tíma og áhrifum atburðanna á fjölskylduna.
Um 70 þúsund hlustanir voru á þættinum yfir páskana og má því segja að stór hluti þjóðarinnar hafi hlustað á þáttinn á þeim tíma. Í þættinum segir Patrik frá hlið fjölskyldunnar á meðan þáttastjórnendur fara yfir málið í heild sinni. Þátturinn hefur hreyft við mörgum og telja margir að þar komi fram persónulegri hlið á Patrik en áður hefur sést opinberlega.
Eftir að hafa verið leitandi og hálftýndur á árunum eftir missinn segir Patrik frá því í hlaðvarpinu hvernig hann sneri við blaðinu árið 2022, hætti partýlífi og sneri sér af fullum krafti að tónlistinni sem hafði lengi togað í hann.
Patrik skaust upp á stjörnuhimininn sumarið 2023 og hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðan. Hann vann meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2024 fyrir lagið Skína, svo eitthvað sé nefnt.
Í þættinum segir Patrik einlæglega frá því hvernig hann finni enn fyrir móðurbróður sínum og leiti til hans í samtali.
„Já, ég geri það mikið, sko. Ég bið hann um að hjálpa mér,“ segir hann.
Í þeim samtölum segir hann frænda sinn hafa beðið eftir laginu sínu. „Ég þarf að fá eitt lag sko, ég þarf að fá eitt lag,“ segir hann.
„Maður sest ekkert endilega niður og reynir að semja eitthvað ákveðið lag, þetta kemur bara til manns. Ég vissi alltaf að það myndi koma að þessu, en ég var aldrei að forsenda það.“
Lagið Þú ert ekki hér er eitt persónulegasta lag Patriks til þessa og tengist beint minningu Hannesar.

