HomeGreinar70 ÞÚSUND HLUSTUÐU Á PATRIK UM PÁSKANA

70 ÞÚSUND HLUSTUÐU Á PATRIK UM PÁSKANA

Nýjasti þáttur hlaðvarpsins Eftirmál, sem fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Yaghi stýra, vakti mikla athygli yfir páskana. Í þættinum er fjallað um morðið á Hannesi Helgasyni og er Patrik Atlason, systursonur Hannesar, til viðtals í þættinum. Patrik var 16 ára þegar voðaverkið var framið og lýsir hann upplifun sinni af þessum tíma og áhrifum atburðanna á fjölskylduna.

Um 70 þúsund hlustanir voru á þættinum yfir páskana og má því segja að stór hluti þjóðarinnar hafi hlustað á þáttinn á þeim tíma. Í þættinum segir Patrik frá hlið fjölskyldunnar á meðan þáttastjórnendur fara yfir málið í heild sinni. Þátturinn hefur hreyft við mörgum og telja margir að þar komi fram persónulegri hlið á Patrik en áður hefur sést opinberlega.

Eftir að hafa verið leitandi og hálftýndur á árunum eftir missinn segir Patrik frá því í hlaðvarpinu hvernig hann sneri við blaðinu árið 2022, hætti partýlífi og sneri sér af fullum krafti að tónlistinni sem hafði lengi togað í hann.

Patrik skaust upp á stjörnuhimininn sumarið 2023 og hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðan. Hann vann meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2024 fyrir lagið Skína, svo eitthvað sé nefnt.

Í þættinum segir Patrik einlæglega frá því hvernig hann finni enn fyrir móðurbróður sínum og leiti til hans í samtali.

„Já, ég geri það mikið, sko. Ég bið hann um að hjálpa mér,“ segir hann.

Í þeim samtölum segir hann frænda sinn hafa beðið eftir laginu sínu. „Ég þarf að fá eitt lag sko, ég þarf að fá eitt lag,“ segir hann.

„Maður sest ekkert endilega niður og reynir að semja eitthvað ákveðið lag, þetta kemur bara til manns. Ég vissi alltaf að það myndi koma að þessu, en ég var aldrei að forsenda það.“

Lagið Þú ert ekki hér er eitt persónulegasta lag Patriks til þessa og tengist beint minningu Hannesar.

TENGDAR FRÉTTIR

FRIÐARSÚLAN Í VIÐEY TENDRUÐ

Kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn, föstudaginn 9. október klukkan 20.00. Frítt er í Viðeyjarferjuna Í boði Yoko Ono...

FEÐGAR HOFÐU Á HARRY POTTER Í SJÓNVARPINU – SONURINN VISSI EKKI AÐ PABBI HANS HEFÐI LEIKIÐ HARRY POTTER

Daniel Ratcliffe, sem lék Harry Potter í í samnefndum kvikmyndum, horfir á Harry Potter með syni sínum sem hefur ekki hugmynd um að hann...

BERGÞÓRA GLÍMIR VIÐ SEÐLA-GEIRA

Hagbarður í Hokri sendir póst: - Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur Íslandsbanka er ekki við sama heygarðshornið og stórbóndinn Seðla-Geiri í Svörtuloftum (sjá hér.) Bergþóra er samt greinilega...

JURTAKOKTEILAR Í GRASAGARÐINUM

Slow Food á Íslandi býður ykkur í BragðaGarð, skemmtilega og fræðandi Slow Food hátíð sem haldin verður í Grasagarði Reykjavíkur föstudaginn 9. október kl....

ÚKRAÍNSKAR HELGIMYNDIR TIL ÍSLANDS – Í SKJÓLI HÉR ÞAR TIL STRÍÐINU LÝKUR

Listasafn Íslands opnar 17. október sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás, þar sem sýndar verða 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns...

RÁÐHERRANN RÆKTAR EPLI – AÐSTOÐARKONAN GÚRKUR

Logi Einarsson menningarmálaráðherra ræktaði epli í sumar og uppskeran komin í hús - þrjú epli. Ráðherrann hefur ákveðið að börnin hans tvö fái sitthvort...

FRIÐARVIKA Í REYKJAVÍK

Á þessu ári eru liðin 40 ár frá hinum sögulega leiðtogafundi í Reykjavík árið 1986, þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Míkhaíl Gorbachev,...

SKORA Á SÆLAND AÐ VÍGGIRÐA HLJÓMSKÁLAGARÐ

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Það þarf girða fyrir að börn og táningar séu að ráfa inn í Hljómskálagarð. Skora á  Sæland að setja rammgerða víggirðingu og...

VOPNABRÆÐUR AKA Á KJÖRSTAÐ

Gamla skopmyndin sýnir Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sjalfstæðisflokksins, og vopnabróður hans, Hannes Hólmstein, akandi á kjörstað í Stúdentaráðskosningum í Háskólanum þegar þeir stunduðu þar...

ÞJÓFÓTTUR KÖTTUR Í VESTURBÆNUM

"Ég vil afsaka það innilega ef að hann Dreki minn hefur stolið af þér sokk sem að hann finnur í þvottahúsum í hverfinu og...

KYNJARUGL Á MEISTARAVÖLLUM

Það var glæsileg umgjörðin á Meistaravöllum þegar KR-stelpurnar tóku á móti HK-stelpunum í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil B liða. Leikurinn fór 2-2 og tapaðist annars vegar...

DORRIT ELSKAR ICELANDAIR

Þjóðargersemin Dorrir Moussaieff flaug með Icelandair og var ánægð með. Fékk að heilsa upp á flugmennina í flugstjórnarklefanum og þakkaði fyrir sig með þessu: "Thank...

Sagt er...

"Hversu lengi á að sjóða egg? Það getur munað ótrúlega miklu á einni mínútu." Albert eldar

Lag dagsins

Bandaríski leikarinn, handritshöfundurinn og kvikmyndaframleiðandinn Matt Damon er afmælisbarn dagsins (56). Sló fyrst í gegn í kvikmyndinni Good Will Hunting þar sem hann var...