HomeGreinarER STJÓRNARSKIPIÐ STRAND?

ER STJÓRNARSKIPIÐ STRAND?

„Er stjórnarskipið strand?“ spyr Hrannar Björn Arnarsson framkvæmdastjóri ADHD samtakanna og eiginmaður borgarstjóra en aðalfundur samtakanna ályktaði um stöðu mála. Þar er kallað eftir skýrri, tímasettri og raunhæfri áætlun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um úrbætur í málefnum fólks með ADHD. Þá segir Hrannar:

„Valkyrjurnar tóku við alvarlegri stöðu: Langir biðlistar eftir greiningu, þeir lengstu innan heilbrigðiskerfisins, auk ítrekaðra ábendinga frá eftirlitsaðilum, þar á meðal Umboðsmanni barna og Umboðsmanni Alþingis, sem og fjölmargra opinberra skýrslna um stöðu málaflokksins. Þar ber sérstaklega að nefna Grænbók um stöðu ADHD-mála á Íslandi, sem lögð var fram í upphafi síðasta árs. Þrátt fyrir þetta liggja enn ekki fyrir markvissar aðgerðir eða heildstæð stefna.

Nú, þegar verulegur hluti kjörtímabilsins er liðinn, hefur staðan versnað enn frekar. Um 5.000 einstaklingar bíða eftir ADHD-greiningu, þar af um 1.800 börn og tæplega 3.000 fullorðnir. Biðtími eftir greiningu og þjónustu er orðinn allt að 3-12 ár, sem er óásættanlegt með öllu og bendir til alvarlegs kerfislægs vanda. Staða barna er sérstaklega viðkvæm og þörf á aðgerðum tafarlaust á þeirra mikilvægasta vaxtarskeiði.“

Kröfurnar eru þessar:

  • Stytta biðtíma verulega
  • Tryggja aðgengi að greiningu, meðferð og eftirfylgd
  • Efla stuðning við börn, fjölskyldur og fullorðna með ADHD

Slík fjárfesting er ekki aðeins brýn heldur einnig samfélagslega hagkvæm. Hún mun skila sér í bættri lýðheilsu, aukinni virkni og auknum lífsgæðum þúsunda einstaklinga og fjölskyldna þeirra.

TENGDAR FRÉTTIR

SVESKJUR UPPSELDAR Í REYKJAVÍK

Eldri borgara í matarinnkaupum í Reykjavík vantaði sveskjur í grautinn. Þær voru ekki til í fimm matvöruverslunum sem hann leitaði til. Hann spurðist fyrir...

LEIÐRÉTTING: SANTE FALSAÐI BJÓRAUGLÝSINGU Í NAFNI VIÐREISNAR

Fyrir nokkrum dögum birtist hér frétt af bjórauglýsingu sem merkt var Viðreisn. Nú hefur komið í ljós að auglýsingin var frá vinsölunum í Sante...

BARA 60 Í SUNDHÖLLINNI Í EINU

Sundhollin við Barónsstíg var lokað af og til í gær vegna álags en aðeins 60 hleypt inn í einu. Olli þetta furðu margra gesta. -

KATTÞRIFINN KÖTTUR Í SUNDI

Þessi rauðbrúni köttur er orðinn eins og fastagestur í Vesturbæjarlauginni, mætir á hverjum degi um þrjúleytið og horfir löngunaraugum á innganginn. En lætur þar...

FRESTAÐI SJÖTUGSAFMÆLINU UM ÞRJÁ MÁNUÐI EFTIR INNTÖKU Á NAD+

Lífsþyrstur íbúi í 101 Reykjavík, hugmyndaríkur og snjall, frestaði sjötugsafmæli sínu, sem átti að vera eftir nokkta daga, um þrjá mánuði, Ástæðan er inntaka...

DORRIT SLEIKIR SÓLINA Í SKUGGA SKILNAÐAR

Dorrit Moussaieff nýtur lífsins á grísku eyjunni Mykonos með vinum sínum í skugga skilnaðar við Ólaf Ragnar sem á meðan berst gegn yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu...

LAUGABÚÐ Á EYRARBAKKA TIL SÖLU

Það fer nú að líða að því að hið sögufræga hús Sjónarhóll – Eyrargata 46 – á Eyrarbakka, Laugabúð, verði auglýst til sölu. Ekki...

NO PARKING

Þetta merki þýðir "Bannað að leggja" á öllum tungumálum, jafnvel esperanto. Ökumaður þessa ferðabíls kaus þó að leggja honum í lítilli þvergötu í miðbæ...

RÁÐHERRAHJÓN Á ÍSLENDINGASLÓÐUM Í KANADA

Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra hefur undanfarna daga verið í opinberri heimsókn á Íslendingaslóðum í Kanada ásamt eiginkonu sinni, Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttir, sem...

INGA SÆLAND ELDRI BORGARI – 67 ÁRA Í DAG

Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra er 67 ára í dag og því orðin eldri borgari með öllu sem því fylgir. Inga er fædd árið 1959 á...

SMURSTÖÐVAR LEGGJA UPP LAUPANA VEGNA RAFBÍLA

Minnst þrjár smurstöðvar hafa lagt upp laupana í Reykjavík á síðustu mánuðum. Sú fjórða lokar eftir sumarfrí starfsmanna sem hófst um helgina en það...

PENINGAR TIL SÖLU Í KÓPAVOGI

Hægt er að kaupa gamla, íslenska seðla í Antikbúðinni í Auðbrekku 4 í Kópavogi. Það er hins vegar ekki hægt að kaupa neitt fyrir...

Sagt er...

"Þegar maður á gamlan bílskrjóð veltir maður því stundum fyrir sér hvað maður tímir að eyða miklu í hann. Hvað er maður reiðbúinn til...

Lag dagsins

Sólmyrkvinn að bresta á en alnyrkvi getur líka lagst yfir hjartað eins sog Bonnie Tyler syngur hér um. https://www.youtube.com/watch?v=lcOxhH8N3Bo&t=3s