Vesturbæingur ætlaði að búa til omilettu fyrir sig og sína, teygði sig í nýjan eggjabakka í ísskápnum og tók þar fjögur egg sem öll voru eins. Brotin og komin í skál kom í ljós að um tvær mismunandi eggjategundir var að ræða. Eggjarauðan í tveimur eggjanna var öðruvísi og minni en í hinum tveimur – og öðruvísi á litinn – sjá mynd.
Þegar hann pískaði eggin leystis stóra og ljósari rauðan auðveldlega upp en hin , minni og litsterkari, ætlaði aldrei að gefa sig. Eggin voru úr sama bakkanum en tæpast úr sömu hænunni.
Omilettan var hins vegar ágæt…




