Hún hefur borið eins og gull af eiri í borgarstjórn, afmælisbarn dagsins, Sunna Magdalena (34). Hagar sér og talar á hreinskiptari hátt en aðrir í Ráðhúsinu. Laus við tilgerð og sýndarmennsku og stendur keik með lítilmagnanum hvar sem hann er að finna. Sunna er sönn í sínu. Mætti hún verða fyrirmynd annarra í þessum bransa.




