Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í væntanlegum borgarstjórnarkosningum er barnabarn athafnamannsins og iðnrekandans Davíðs Schevings Thorsteinssonar (1930-2022). Íslendingar geta þakkað Davíð Scheving fyrir bjórinn þegar hann gekk í gegnum tollinn á Keflavíkurflugveli með bjórkassa eins á flugáhöfnum var heimilt. Hann vildi njóta sama réttar – og hafði sitt fram. Um Dacíð Scheving var sagt:
„Á tímum viðskiptahafta og skömmtunar lagði Davíð til atlögu við hið opinbera í því skyni að geta boðið Íslendingum upp á meira úrval og fjölbreytni. Þannig hefur athafnasemi hans og útsjónarsemi í viðskiptum verið meðborgurum hans til hagsbóta.“




