Home Blog Page 2

SOVÉSKA VÖRUSÝNINGIN Í MIÐBÆJARSKÓLANUM

0

 

Guðjón við Miðbæjarskólann.

„Sumarið 1955 var haldin gríðarlega stór sovésk vörusýning í gamla Miðbæjarskólanum og næsta nágrenni hans,“ segir Guðjón Friðriksson sagnfræðingur og rithöfundur og birtir mynd á vefnum Gamlar ljósmyndir:

„Hún var stærsta vörusýning sem fram að þeim tíma hafði verið haldin á Íslandi. Ber kannski vott um að Sovétríkin bundu vonir við að Ísland yrði fleygur í NATO eftir að þeir færðu út landhelgina 1952 og Bretar settu löndunarbann á íslenskan fisk í Bretlandi í kjölfarið.“

Árni Bergmann rithöfundur og fyrrum ritstjóri Þjóðviljans leggur orð í belg: „Ég vann þarna sem túlkur.“

VOPNAHLÉ – „RISASPARK Í PUNGINN“

0
„Jedúddamía. Hópur af geitasmölum í Íran hefur sigrað mesta herveldi sögunnar,“ segir Friðrik Indriðason, þrautreyndur blaðamaður, í tilefni af fréttum dagsins:
„Það sem Íran fær út úr þessu tveggja vikna „vopnahléi“ er töluvert. Ekki hvað síst umráð yfir Hormuz sundinu. Nú munu þeir reka Hormuz á svipaðan hátt og Panama skurðinn. Olíufélögin munu borga milljón dollara fyrir hvert skip sem fær, á annað borð, að sigla um sundið.
Það sem Donald Trump fær út úr „vopnahléinu“ er risaspark í punginn.“

JULIAN LENNON (63)

0

Julian Lennon, bítlasonur, er afmælisbarn dagsins (63).

DREAM TEAM

0

Bjarni Benediktsson naut páskana með fjölskyldunni. „Dream team“ nefnir hann þessa mynd sem hann birti sjálfur.

MÚSAGILDRUR GEGN VASAÞJÓFUM

0

Vasaþjófar herja á erlenda ferðamenn hér á landi og eru til vandræða. Friðrik Brekkan, þrautreyndur leiðsögumaður, er með lausn:

„Þessar sterku músagildrur fást í Kemi. Tilvalið fyrir ferðamenn að hafa nokkrar efst í bakpokanum á meðan á Íslandsdvöl þeirra stendur. Fást á góður verði, 710 krónur, og myndu örugglega gleðja margan vasaþjófinn. Margar ferðaskrifstofur lána faþegum mannbrodda og hverni væri að lána ferþegum vasaþjófafælur eins og þessar. Hef skoðað og þær klemma ansi fast.“

RUSSEL CROWE (62)

0

Stórstjarnan Russel Crowe er afmælisbarn dagsins (62). Glæstur ferill hans er þakin verðlaunagripum af öllu tagi og hann getur leikið hvað sem er, spengilegur eða akfeitur, skiptir ekki máli. Hann er alþýðlegur þegar hann kemur til Íslands, borðar á Búllunni og tekur lagið á almannafæri sé þess óskað. Enda ágætur tónlistarmaður líka…

FINNSK PÁSKAEGG

0

Svona páskaegg er hægt að fá í Finnlandi. Líta út eins og venjuleg egg í eggjabakka frá súkkulaðiframleiðandanum Fazer. Svo er skurnin fjarlægð og sjá: Eggið er fullt af súkkulaði!

KÁRI (77)

0

Töfralæknirinn, athafnamaðurinn og áhrifavaldurinn Kári Stefánsson er afmælisbarn páskahelgarinnar (77). Kári er ljúflingur í eðli sínu og góðgjarn og alls ekki jafn grimmur og hann stundum vill vera láta. Þjóðin á honum margt að þakka þó ekki væri nema það að segja henni til syndanna reglulega. Til hamingju!

SNJÓKARLINN Á BEKKNUM

0

Miðbæjarlistin tekur á sig ýmsar myndir í Reykjavík. Hér situr snjókarl á bekk fyrir framan Drekann, söluturn á Njálsgötu. Líkt og blindfullur um miðjan dag. Höfundur óþekktur.

LÍF – ENGIN FILTER

0

„Vinstrið. Engin filter,“ segir Líf Magneudóttir borgarfulltrúi á leið í kosningaslag. Hún birtir þessa mynd án þess að fótósjoppa sem tíðkast vart um þessar mundir í pólitík.