Home Blog Page 3

HÁRHORNIÐ HREKST AF HLEMMI VEGNA HÚSALEIGU

0

Ein vinsælasta og ódýrasta rakarastofa Reykjavíkur, Hárhornið á Hlemmi, flytur sig um set eftir 29 ára á horninu á Hlemmi. Ástæðan er hækkandi húsaleiga sem verður ekki við unað.

Torfi heitinn Geirmundsson hárskeri stóð þarna vaktina öll þessi ár þangað til hann lést en Lilja dóttir hans tók þá við og hefur rekið ásamt góðu fólki. En húsaleigan er komin upp úr öllu valdi.

Rauðarárstígur 27 – þangað flytur Hárhornið á Hlemmi.

Lilja og hennar fólk hefur tryggt sér annað húsnæði örspöl frá, á Rauðarárstíg 27, í 200 metra fjarlægð. Næg bílastæði, meira pláss – og helmingi lægri húsaleiga. Þar verður opnað í sumar.

MALAGAFANGA SLEPPT – MILDI OG MANN’U[

0
Páskaskeyti frá Malaga:
Á miðvikudaginn, daginn fyrir skírdag, var fanga sleppt í Malaga á Spáni. Þó ekki íslenska Malagafanganum, enda er hann fyrir löngu sloppinn. Malagafanganum sem sleppt var í aðdraganda páska fékk náðun sem hluti af trúarathöfnum kaþólskra í Malaga í tilefni páskanna. Í eina og hálfa öld hefur þessi siður verið við lýði í þessari rammkaþólsku borg, tákn um mildi og mannúð.
Malagafanginn sem fékk lausn í gær hafði fengið tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir minniháttar ofbeldisbrot. Hann var losaður úr handjárnum fyrir framan gríðarlegan mannfjölda í miðborg Malaga sem fagnaði ógurlega.
Malagafanginn í forsíðuviðtali í Helgarpóstinum 1985. Nafnið „Malagafanginn“ varð hinsvegar til ættað úr smiðju DV sem fyrst fjallaði um málið.
Hvort íslenski Malagafanginn hafi verið svo heppinn að vera í Malaga um páskana og fá samskonar lausn er ekki vitað. En frægur varð hann á Íslandi og flestir sem komnir eru til ára sinna hugsa ti Malagafangans þegar þeir heyra talað um þessa suðrænu spænsku borg.

MALAGAFANGA SLEPPT – MILDI OG MANNÚÐ

TOMMI (77) & KOBBI (64)

0

Þeir eiga sama afmælisdag, Tommi á Búllunni (77) og Jakob Bjarnar Grétarsson (64) stjörnublaðamaður frá Eiríksstöðum í Jökuldal. Báðir elska þeir hamborgara með sínum hætti; Tommi notar nautakjöt en Jakob hreindýrakjöt að austan. Tveir skemmtilegir lífskúnstnerar sem njóta dvalarinnar á Hótel Jörð samferðamönnum sínum til ánægju alla daga.

ÍSLENSKAR PYLSUR Í NEW YORK TIMES

0

Ítarleg grein um íslenska pylsumenningu birtist í New York Times í gær undir fyrirsögninni „Inflation Hit Iceland Hard. Even It Beloved Hot Dog“ – Verðbólgan leikur Ísland grátt. Jafnvel á hina ástsælu pylsu.

Sjá New York Times hér.

1. APRÍL Í BÓNUS

0

Nú getur þú loksins fengið íslenskt loft í Bónus. Takmarkað magn í boði.

SUMARTÍMI Í DANMÖRKU

0

Það er kominn sumartími í Danmörku og þá lítur klukkan svona út.

STÚLKAN Í LOVE STORY (87)

0

Ali MacGraw er afmælisbarn dagsins (87) – unga stúlkan úr stórmyndinni Love Story. Titillagið fór eins og eldur um sinu um heiminn hér í flutningi Andy Williams:

PRETTY IN PINK

0

Ásdís Rán er líka komin í bleikan pels eins og Steinunn Ólína hefur verið að flagga á samfélagsmiðlum. Báðar voru þær í forsetaframboði fyrir skemmstu – pretty in pink er þetta kallað.

Sjá tengda frétt.

SMÁRÍKIÐ VIÐ HLIÐ BÓNUS Á GRANDA

0

Smáríkið er að gera klárt fyrir að opna á Granda, á besta stað við hliðina á Bónus. Sagt er að Vínbúð ríkisins hafi stefnt að því að flytja víbúðina í Austurstræti í þessa byggingu en þarna hefur Smáríkið sigrað Stórríkið í kapphlaupinu.

Greint var frá væntanlegri opnun Smáríkisins á Granda hér fyrir skemmstu þar sem kostir staðsetningarinnar voru taldir upp – Bónus, Krónan, Nettó, tvö apótek þvottahús og bílaþvottastöð. Í framhaldi barst póstur frá lesanda sem bætti um betur:

„Ekki gleyma því að langstærsta bókabúð landsins er úti á Granda og líka besta og vandaðasta vínyl-plötubúðin. Þá er þar að finna elstu rafhjólabúðina og vinsælasta golfherminn. Ekki má heldur gleyma Jysk, Prímavera í hádeginu, Farmers market og stærsta kjarna landsins af listamanna vinnustofum, sem margir myndu ætla harðduglegan markhóp.“