Home Blog Page 4

CHRISTOPHER WALKEN (83)

0

Einn mesti töffari hvíta tjaldsins, Christopher Walken, er 83 ára í dag. Líklega þekktastur fyrir hlutverk sín í The Deer Hunter, Catch Me If You Can og Pulp Fiction. Þá þykir hann ekki siðri á leiksviði eða sem dansari. En nú bankar ellin upp á.

ERIC CLAPTON (81)

0

Stórstjarnan Eric Clapton er afmælisbarn dagsins (81). Hér situr hann með kaffibolla á „Prikinu“ í New York og raular „Smile“ eftir Chaplin.

ELÍSABET KLIPPIR Í HOLLYWOOD

0
Elísabet Ronaldsdóttir.

Það segir sitt um hve langt Elísabet Ronaldsdóttir (60) er komin í Hollywood þegar nafn hennar birtist sem klippari einnar nýjustu bíómyndarinnar á Netflix, The Fall Guy með Ryan Gosling og Emily Blunt. Rómantísk gaman- og hasarmynd sem fær ágætis dóma.

Næst á eftir Baltasar Kormáki er Elísabet líklega sá Íslendingur sem hefur náð mestum frama í kvikmyndaheiminum. Hún hefur klippt urmul af bíómyndum og sjónvarpsþáttum, þar á meðal Deadpool 2, Contraband, John Wick, Love hurts, Nobody 2, Reykjavík Rotterdam, Kate og Atomic Blonde. Verkefnalisti Elísabetar á IMDB bíómyndavefnum er langur og þar eru nokkrar íslenskar myndir. Á upphafsárum sem klippari voru danskar myndir aðallega á verkefnalista Elísabetar.

FÉ HEFUR HÆGÐIR

0

„Peningar eru eins og skítur: Þeir valda vexti og grósku ef vel er úr dreift, ef ekki sviðnar jörðin undan þeim og það er þá bara skítalykt af þeim,“ segir Ragnar Önundarson sem veit allt um málið enda fyrrum bankastjóri.

Þórunn Valdimarsdóttir rithöfundur svarar honum um hæl og bætir um betur: „Fé hefur hægðir.“

MEISTARAKOKKUR MEÐ BORGARA Á BENSÍNSTÖÐ

0

Páskaborgarinn á Grill 66 á bensínstöðvum Olís er kreóla-borgari sem nefnist Newburgh og er sköpunarverk Róberts Ólafssonar, matreiðslumeistara og eiganda á Forréttabarnum. 

Róbert er hrifinn af bragðmiklum mat og margbreytileika í bragðsamsetningum og í Newburgh mætast margar andstæður; rík sýra úr Dijon-sinnepi og sýrðum gúrkum, sæta frá hunangi og BBQ-sósu, smá „kick“ frá suðrænni cajun-kryddblöndu og mjúk sterkja frá Gouda-osti.

KONA Í RÖNDÓTTUM SUNDBOL – HVENÆR FARA EINHLEYPIR MENN Í SUND?

0

Rúmlega fertug kona, nýflutt aftur í vesturbæinn, birtir færslu á Vesturbæjarvefnum undir dulnefni og tekur fram að vonandi sé eftirfrandi ekki óviðeigandi:

„Nenni ekki mikið út á lífið eða skrá mig á öpp en hvar er heppilegast að kynnast fólki af hinu kyninu? Fékk meðmæli með Melabúðinni á matmálstíma, ráð frá vinkonu mömmu, en held að allir séu bara almennt mjög tjattý þar og veit ekkert hvort það sé eitthvað á bakvið það. Hvenær fara einhleypir menn í sund? Er einhver svoleiðis stemmning í pottunum eða sánunni? Kv. konan í röndótta sundbolunum í Vesturbæjarlauginni.“

LADY GAGA (40)

0

Fjöllistakonan Lady Gaga er fertug í dag. Hún er eina kvensöngkonan sem selt hefur fjögur laga sinna í rúmlega 10 milljónum eintaka á heimsvísu –  ekkert gaga við það.

BERGDÍS SENDIHERRA Í KÍNA

0

Bergdís Ellertsdóttir, þrautreyndur dipómat, er á leið til Kína til að taka við sem sendiherra Íslands þar. Sendiherraembættið í Peking er orðið eitt það mikilvægasta í íslensku utanríkisþjónustunni og því mikið undir.

Bergdís var áður sendiherra í Washington þar til Svanhildur Hólm Valsdóttir og Logi Bergmann tóku þar við. Þar áður var Bergdís í Brussel og víðar.

Bergdís þegar hún afhenti Donald Trump trúnaðarbréf sitt í Hvíta húsinu sem sendiherra Íslands í Washington. Með henni er eiginmaður hennar, Jón Óskar Sólnes.

VEITINGASTAÐUR TIL SÖLU Á BRASK OG BRALL

0
Til sölu veitingastaður (rekstur hefur verið stöðvaður) á 7 milljónir.
Staðsetning: Drafnarfell 18.
Velta síðasta árs: um 40 milljónir.
Leiguhúsnæði.
Fullbúið eldhús, bar og salur fyrir 50–60 gesti.
Gilt leyfi fyrir mat og áfengi.
Öryggiskerfi til staðar (myndavélar) og samstarf við tvö öryggisfyrirtæki.
Virkar og uppsettar netrásir: Google, Facebook og Instagram.
Staðurinn er fullbúinn og tilbúinn til rekstrar, nýr eigandi getur hafið starfsemi strax án frekari undirbúnings.

VALUR Í VANDRÆÐUM

0
„Kæru vinir!“ segir Valur Gunnarsson rithöfundur í pósti á samfélagsmiðlum en en Valur lenti í slysi og hrakförum í Afríku eins og hér var frá greint. Og heldur áfram:
„Enn og aftur nálgast þessi leiðinlegasti tími mánaðar þegar reikningarnir koma inn en engin laun. Ekkert nýtt í því svosem og oftast tekst mér að ná þessu saman en þá má ekkert útaf bregða. Nú hefur hins vegar brugðið útaf. Það sem ég hélt að væri tognun reyndist vera þvagsýrugigt sem leyndi fótbrot sem þróaðist út í æðatappa. Svo kom í ljós að ég var rifbeinsbrotinn líka en maður kveinkar sér nú ekki útaf því. Frekari rannsóknir munu sennilega leiða í ljós hvers vegna ég er enn að drepast í löppinni þótt beinið eigi að vera gróið. Ég er ekki vinnufær (utandyra) og þó ég væri það hef ég engan tíma til að vinna þar sem ég er að ganga frá einni bók fyrir sumarið og annarri fyrir haustið. Það er dýrara að vera sjúklingur á Íslandi en mig hafði grunað, það var 30.000 fyrir Röntgen í Dómus, svo 30.000 fyrir ómskoðun og aftur 30.000 fyrir frekari rannsóknir, 4.000 fyrir leigubíl á slysó og 9.000 fyrir skoðun þar (ómskoðarinn keyrði mig heim), 30.000 fyrir blóðþynningarlyf. Ég á enn 400.000 frá ykkur síðan síðast en reikningarnir hljóða upp á 500.000 (meðal annars fyrir flugfarinu heim). Hélt að þetta myndi sleppa en þá munar einmitt um sjúkrakostnaðinn. Því hlýt ég að skilja þetta eftir hér:
Bnr: 513-26-201889
Kennitala: 2608763339″