Home Blog Page 5

TARANTINO (63)

0

Súparstjarnan Quentin Tarantino er afmælisbarn dagsins (62). Sá kvikmyndaleikstjóri í Hollywood sem ber höfuð og herðar yfir aðra leikstjóra og eru Woody Allen, Cohen bræður og hinn spænski Almodovar þá meðtaldir. Byrjaði með Reservoir Dogs  1992 og síðan komu Pulp Fiction, Kill Bill, Inglourious Basterds, Django Unchained osfrv.

Tarantino er Íslandsvinur og hefur komið margoft hingað til lands á vegum Jóns Ólafssonar athafnamanns. Er þeim vel til vina.

BLEIKA ÆÐIÐ

0

Bandaríski rapparinn Jaden Smith klæddist bleikri loðkápu á Tískuvikunni í París á dögunum. Þessa kápu kannast Íslendingar við af myndum sem leikkonan Steinunn Ólína hefur birt af sér við ýmsar aðstæður á samfélagsmiðlum.

LÍFLEGAR GÍNUR Í ASÍU

0

Svona eru útstillingargínurnar í veslunarmiðstöðvum víða í Asíu. Á fleygiferð, hoppandi, dansandi og jafnvel á haus. Líflegt.

62% MINNI UMFERÐ Í MORGUN

0

Heildarfjöldi ökutækja á höfuðborgarsvæðinu á alls 110 talningarstöðum þegar skoðaður er fjöldi frá miðnætti til hádegis sýnir að umferðin er 62% minni samanborið við umferðina í gær. Heildarfjöldi ökutækja var 566.322 á þessu tímabili í gær, 25. mars, en 217.799 ökutæki í dag, 26. mars. Munurinn er heil 348.523 ökutæki miðað við þessa talningarstaði. 

JÓNÍNA BEN (1957-2020)

0

Jónína Ben (1957-2020) hefði orðið 69 ára í dag. Blessuð sé minning hennar. Hún var óður til gleðinnar.

FRJÓSEMI BERGLJÓTAR

0
„Ég veit ekki hvaða frjósemi er í gangi í kringum mig.“ segir listakonan Bergljót Arnalds og veit varla hvað hún á að halda:
„Ég fékk túlípanabúnt með mörgum tvíburatúlípönum þar sem tveir og jafnvel þrír túlípanar uxu úr sama stöngli. Síðan fékk ég tvær eggjarauður úr sama eggi, ekki bara einu sinni heldur sex sinnum í röð.
Veit þetta á eitthvað?“

SMÁRÍKIÐ OPNAR Á GRANDA

0

Smáríkið, vinsæl vínbúð víða á höfuðborgarsvæðinu, færir út kvíarnar og opnar nýja búð á Granda í vesturbæ Reykjavíkur í næsta mánuði. Íbúar þar taka því fagnandi því á Granda er allt til alls – Bónus, Krónan, Nettó, tvö apótek, bílaþvottastöð og þvottahús.

„Það eina sem hér vantar er „Ríkið“. Annars þyrtum við aldrei að fara neitt,“ eins og Grandabúi orðaði það.

Nú verður íbúum að ósk sinni. Smáríkið opnar og það er engin smáopnun – opið til ellefu á kvöldin á virkum dögum og til miðnættis um helgar. Bara panta á netinu og sækja svo.

ELTON JOHN (79)

0

Elton John er 79 ára í dag. Elton hefur skemmt heimsbyggðinni með söng og leik síðan á áttunda áratug síðustu aldar og er enn að – „The best-selling music artists in the world,“ eins og sagt er. Kveðjusöngur hans til Díönu prinsessu við útför henar 1997 er enn í dag eins mest selda plata sögunnar bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum.

HVER ER KONAN?

0

Hún klæðist hlýrabol í íslensku fánalitunum og er vinsæl samfélagsstjarna í Udon Thani í Tælandi með tvær milljónir fylgjenda. Hér er hún að kynna fiskrétt með grjónum á vefsíðu sinni í íslenska fánabolnum. En hvar fékk hún bolinn?

Erfitt er að ráða í vefsíðu hennar því alltaf er skrifað með tælenskum táknum og þannig heitir hún พรีซ ณภัคอร จิรรัชตภัค.