Home Blog Page 6

KEBAB OG VÍN Í SMÁRANUM

0
Guðmundur Ingólfsson.
Guðmundur Ingólfsson.

Svona er þetta í Smáranum – einkarekin Kebab veitingastaður og ríkisrekin Vínbúð. Ef þessu væri snúið við, Kebab staðurinn ríkisrekin og Vínbúðin einkarekin myndi þessi ljósmynd Guðmundar Ingólfssonar líka snúast við. Kebab staðurinn grár veggur og Vínbúðin fagurlega skreytt flöskum og freyðandi bjór.

WESSMANN BORGAÐI SJÁLFUR REIKNING „ENGLA ALHEIMSINS“ Í GRILLINU

0

Í endurminningum Wilhelms Wessmann hótel- og veitingafrömuðar er sagt frá uppákomu í Grillinu á Hótel Sögu sem rataði síðan inn í bókina Englar alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson og samnefnda bíómynd. Atriðið í Grillinu gerðist semsé í raun og veru, en það sem færri vita er að Wilhelm borgaði úr eigin vasa reikninginn fyrir kvöldverðinum dýra.

Í endurminningum sínum, „Lífsins ferðalag“ sem komu út fyrir síðustu jól, segir Wilhelm svo frá uppákomunni:

„Eitt þekktasta atriði íslenskrar kvikmyndasögu er úr kvikmyndinni Englar alheimsins, þrjár af aðalpersónum sögunnar fara í Grillið á Hótel Sögu og fá sér flottan kvöldverð. Þegar þjónninn kemur með reikninginn segir einn þeirra: „Við erum allir vistmenn á Kleppi, verið svo vinsamlegir að hringja á lögregluna strax.“ Atriðið er auðvitað byggt á bók Einars Más Guðmundssonar sem ber sama titil og kvikmyndin. Leiksýning var einnig byggð á bókinni frægu.

Atvikið er enginn skáldskapur heldur byggt á sönnum atburði, nánast frá A til Ö, þegar ég var framkvæmdastjóri á Sögu árið 1986. Mennirnir þrír voru í sínu fínasta pússi þegar þeir komu í Grillið. Í þá daga giltu strangar reglur um klæðaburð. Menn gátu ekki komið inn í Grillið í gallabuxum eða bindislausir. Þeir pöntuðu það dýrasta á matseðlinum og drukku bestu vín hótelsins með, eins og Chateu Mouton Rotschild 1982 sem er einn besti árgangur Bordeaux- vína á síðustu öld. Það er því greinilegt að mennirnir hafa verið smekkmenn á mat og drykk. Vínið kostaði sitt, flaskan var á 26.800 kr þá. Svo reyktu þeir kúbanska vindla frá Davidoff. Þetta voru eiginlega einu Kúbuvindlarnir sem hægt var að fá á þessum tíma. Stykkið kostaði 1.200 kr. Í þá daga var hægt að fá hádegisverð í Grillinu fyrir sömu upphæð.

Til þess að mega selja vindlana þurfti að uppfylla ströng skilyrði. Ég þurfti að senda alla þjónana mína á námskeið í meðhöndlun á vindlunum. Þegar gestir pöntuðu svona vindla þurfti að klippa þá sérstaklega og var það eins konar athöfn sem endaði með því að þjónarnir kveiktu í vindlunum fyrir gestina.

Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar Halldór Sigdórsson, veitingastjóri í Grillinu, hafði samband. Hann sagði mér að þarna væru þrír vistmenn á Kleppi sem væru búnir að borða dýrustu réttina, drekka fínustu vínin og reykja flottustu vindlana. Þeir gætu ekki borgað reikninginn og lögreglanv æri í lobbýinu. Hann spurði mig hvað hann ætti að gera í málinu.

Grillið var fullt af gestum og ég bað Halldór því að láta lögregluna bara bíða eftir mönnunum. Ég taldi augljóst hvort sem er að við hefðum tapað þeirri upphæð sem mennirnir höfðu borðað og drukkið fyrir. Mér fannst því mikilvægast að ónáða ekki hina gestina með einhverri uppákomu. Mennirnir fengu því að klára máltíðina og mættu svo lögreglumönnum í anddyrinu. Síðan var þeim bara ekið inn á Klepp í lögreglufylgd eins og fínum herrum.

Ég sagði Halldóri að leggja reikninginn á skrifborðið mitt. Það má því segja að ein besta sena í íslenskri kvikmyndagerð sé orðin til vegna fagmannlegra vinnubragða okkar starfsmanna í Grillinu. En ég greiddi reikninginn.“

DORRIT Í STUTTBUXUM Á SKÍÐUM Í ASPEN

0
Og líka á skautum í stuttbuxum.
Og líka á skautum í stuttbuxum.

Dorrit Moussaieff fyrrum forsetafrú er á skíðum í Aspen í stuttbuxum, birtir myndir og segir „Thank you for a great day.“

Dorrit er 76 ára og leikur sér eins og táningur. Stöðugt á ferð og flugi og leyfir heiminum að fylgjast með á samfélagsmiðlum. Ólafur Ragnar er sjaldnast með á þessum myndum – enda sex árum eldri.

KOLBRÚN BALDURSDÓTTIR (67)

0

Kolbrún Áslaug Baldursdóttir sálfræðingur og pólitíkus er afmælisbarn dagsins, orðin 67 ára og fær þá frítt í sund og afslátt í Brauð & Co og Lyfju osfrv. En líklega hefur hún notið þeirra fríðinda til margra ára sem oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur 2018, varaþingmaður  Sjálfstæðisflokksins 2006, varaþingmaður Flokks fólksins 2022 og nú alþingismaður Flokks fólksins frá því í síðustu kosningum og 6. varaforseti Alþingis. Hún fær óskslagið Time Is On My Side:

 

KRISTRÚN UPPSKER LÓFAKLAPP

0
„Tökum ábyrgð hvert á öðru. Þannig vegnar Íslandi best. Þegar réttur og skylda fara hönd í hönd og allir leggja sitt af mörkum. Þetta er okkar hugmyndafræði: Það sem aðgreinir Samfylkingu og sósíaldemókrata frá öllum öðrum flokkum. Alltaf stolt. Alltaf jafnaðarfólk. Alltaf til þjónustu reiðubúin, fyrir fólkið í landinu.
Því saman erum við svo miklu meira en bara einstaklingar með eigin hagsmuni. Við erum samfélag. Eins og fjölskylda. Og við eigum eitthvað alveg sérstakt saman hérna á Íslandi, sem er dýrmætt. Sem okkur ber skylda til að vernda og varðveita, fyrir framtíðarkynslóðir.
Þess vegna býður Samfylkingin fram til Alþingis og sveitarstjórna: Við stöndum þétt með þjóðinni. Við tökum ábyrgð á Íslandi og við tökum ábyrgð á nærsamfélagi okkar, hringinn í kringum landið. Velkomin í Samfylkinguna.“
Úr ræðu Kristrúnar Frostadóttur á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær.

SPÁNARDRAUMUR NAFNLAUSU KONUNNAR

0
„Nú veit ég ekki hvort ég sé á réttri síðu með erindi mitt. Ég bið afsökunar á að koma fram nafnlaus, en það er gert með vilja til að forðast spurningar fjölskyldunnar,“ segir kona sem á sér draum um Spánarblíðu á heimasíðuni „‘Íslendingar á Spáni Costa Blanca“ – og heldur áfram:
„Ég er 64 ára og hef haft þann draum að prófa að vera á Spáni í ca 2 mánuði til reynslu, áður en stærri ákvörðun verður tekin. Ég er að hugsa um sept og október 2026. Mér hefur verið bent á að byrja svona. Ég á íbúð heima en vil ekki leigja hana fyrr en ég er búin að kanna annað. Mig langar að vera í litlum rólegum bæ þar sem ég myndi mögulega reyna að byrja að læra smávegis í málinu. Ef einhverjir hér búa í rólegum litlum bæ, og eru ánægðir, viljið þið segja mér nöfnin á bænum og hvert þá best væri að leita eftir íbúð með tveim svefnherbergjum og jafnvel tveim baðherbergjum, ef ég fengi heimsókn. Ég er þá að meina flug til Alicante og bær einhversstaðar á þessu svæði.
Kærar þakkir og bestu kveðjur.“

BARRON TRUMP (20)

0

Barron Trump, sonur Donalds Trump og Melaniu, er afmælisbarn dagsins – tvítugur. Hann er þegar farin að sýna fjárfestingum og fasteignaumsýslu áhuga og þykir hafa vit á. Mætir á fundi fyrir hönd foreldara sinna í fjölskyldufyrirtækjunum og leggur gott til. Hann fær óskalagið Father And Son:

FURÐULEGAR VINSÆLDIR PABBA LAUFEYJAR

0

Fyrir rúmum tveimur árum birtist hér frétt um Jón Þ. Sigurgeirsson föður stórstjörnunnar Laufeyjar sem þá var að taka við nýju embætti. Hún stökk strax í fyrsta sæti vinældarlistans.

Milli jóla og nýárs 2025 var sama frétt aftur komin í toppsætið án þess að hafa verið endurbirt eða á hana minnst.

Í dag, 20. mars 2026, er hún svo aftur komin í fyrsta sætið án þess að nokkur hafi hreyft legg né lið.

Skýringin er aðeins ein: Svona mikið er Laufey gúggluð á netinu.

 

FRIÐRIK MINNIST CHUCK NORRIS

0

„RIP Chuck Norris,“ segir Friðrik Indriðason sem eitt sinn vr kvikmyndagagnrýnandi líkt og Arnaldur bróðir hans sem síðar varð metsöluhöfundur:

„Ég man eftir Chuck þegar ég skrifaði kvikmyndagagnrýni á barnsárum blaðamennsku minnar. NB á síðustu öld. Hann átti góðu senu á móti Bruce Lee í einni bestu kungfu mynd hins síðarnefnda. Síðan hallaði undan fæti og kappinn endaði í sjónvarpsseríu um einhvern kúreka í Texas.
En Kanar elskuðu Chuck enda gekk kúrekaserían árum saman. Og það var alltaf hægt að elska kappann. Ég man að ég rakst á eina af þessum Expendables myndum Stallone (á YouTube) þar sem Chuck fór með aukahlutverk. Og svei mér þá hann alveg brilleraði sem, í raun, hann sjálfur.“

HAMINGJUGANGA Í HÁDEGINU

0

Reykjavíkurborg efnir til hamingjugöngu í hádeginu föstudaginn 20. mars en þá er Hamingjudagur Sameinuðu þjóðanna þar sem bæði hamingjunni og krafti trjánna verður fagnað. Rannsóknir benda til þess að trjágróður styðji við andlega heilsu; gönguferð í skógi eða það af hafa útsýni á tré úr glugga getur dregið úr kvíða, streitu og hreinlega bætt skapsmuni.

Trjágróður og mannlíf í Reykjavík.
Trjágróður og mannlíf í Reykjavík.

Gangan hefst í Fógetagarðinum og endar við Háskóla Íslands. Gleðigjafinn Edda Björgvinsdóttir leiðir gönguna ásamt Ingrid Kuhlman og Margréti Leifsdóttur með dyggri aðstoð Bjarkar Þorleifsdóttur úr Grasagarði Reykjavíkur.

Gengið verður um miðborg Reykjavíkur, stoppað verður við söguleg og merkileg tré, og á meðan á göngunni stendur verður staldrað við og viðstöddum gefinn tími til að anda, hlusta, njóta og fanga hamingjuna – jafnvel í miðri borginni. Þátttakendur eru beðnir um að klæða sig eftir veðri. Aðgangur ókeypis.