Home Blog Page 7

ILMUR (48)

0

Ilmur Kristjánsdóttir leikkona er afmælisbarn dagsins (48). Hér tekur hún Línu langsokk með stæl:

ELDISFISKAR ERU LÍKA DÝR

0
„Slæmt ástand eldisdýra er til umfjöllunar í fréttum Rúv. Ráðherra bregst við, það er gott,“ segir Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir:
„Ástæða er til að minna á að eldisfiskar eru líka dýr. Þeir eru sumir “étnir lifandi” af laxalúsinni. Við sjáum ekki það sem er niðri í kvínni, í búrinu.“

VALDI VILL ÞENNAN Í VAXTAUMHVERFIÐ NÚNA

0
Valdimar Tómasson.

Valdimar Tómasson ljóðskáld lætur sér ekki nægja að gefa út ljóðabækur og selja, hann safnar ritmáli líka. Það nýjasta er frá Sögusafni heimilanna:

„Við þurfum þennan í vaxtaumhverfið núna. 18 hefti vel með farin. Öll serían,“ segir hann og flaggar á mynd.

BJARGVÆTTURINN Í ÖLFUSÁ

0

Aðfaranótt 6. september 1944 féll Ölfusárbrúin gamla við Selfoss og tveir vörubílar fóru í ána. Annar bíllinn lenti a grynningum en hin fór á bólakaf í hylinn. Bílstjórinn bjargaðist með undraverður hætti.

Um þetta fjallar sýningin Bjargvætturinn sem opnuð verður í Kirkjubæ á Eyrarbakka laugardaginn 28. mars – um bjargvætt bílstjórans niður ána.

 

REYKVÍKINGUR ÁRSINS MEÐ LEIÐSÖGN Á PÓLSKU Í SJÓMINJASAFNINU

0
Marta við Elliðaárnar eftir að hún hafði verið útnefnd Reykvíkingur ársins 2024.

Borgarsögusafn býður upp á leiðsögn á pólsku sunnudaginn 22. mars, kl. 14:00-15:00 á Sjóminjasafninu í Reykjavík. Marta Wieczorek, Reykvíkingur ársins og aðstoðarskólastjóri Pólska skólans í Reykjavík, sér um leiðsögnina.

Leiðsögnin fjallar um sýningu safnsins Fiskur & fólk – sjósókn í 150 ár og er bæði fræðandi og skemmtileg fyrir alla aldurshópa.
Leiðsögnin er ókeypis og öll þau sem tala pólsku eru boðin hjartanlega velkomin – eða eins og segir á pólsku:

Muzeum miejskie zaprasza na rodzinne oprowadzanie w niedzielę 22 marca w godzinach 14:00-15:00 w Muzeum Morskim (Sjóminjasafn) w Reykjaviku. Przewodnikiem będzie Marta Wieczorek, wicedyrektor Szkoły Polskiej w Reykjaviku im. J. Korczaka i Reykjaviczanka roku 2024.

Zwiedzanie koncentruje się na wystawie „Ryby i ludzie – 150 lat rybołówstwa” i ma charakter zarówno edukacyjny, jak i rozrywkowy i jest skierowane do wszystkich grup wiekowych.
Oprowadzanie jest bezpłatne, zapraszamy serdecznie wszystkie osoby polskojęzyczne.

VALUR UNDIRITAÐI ÚTGÁFUSAMNING Í LONDON EFTIR HRAKFARIR Í AFRÍKU

0

Valur Gunnarsson rithöfundur skrifaði á dögunum undir bókasamning við Sölku í London. Þangað kom hann frá Nairóbí í Kenía þar sem hann hafði setið við skriftir þar til hann fótbrotnaði í mótorhjólaslysi eftir að hraðbanki hafði étið kortið hans.

Valur var þarna í vanda eins og greint var frá í frétt á Vísi „Fótbrotinn og févana í Afríku“.

Allt er gott sem endar vel. Valur komst til London að hitta útgefendur sína hjá Sölku og samningurinn í höfn.

VANESSA WILLIAMS (63)

0

Söngkonan, fyrirsætan, leikkonan og dansarinn Vanessa Williams er afmælisbarn dagsins (63). Fyrsta blökkukonan sem kjörin var Miss America 1984.

SNJÓDÍS Í REYKJAVÍK

0

Þetta er ekki snjókall eða snjókelling – þetta er snjódís.

Snjóskúlptúr, stytta búin til úr snjó. Maður stendur hjá.
Um 1955-1965.
Ljósmyndari Óskar Sigvaldason (1908-1998).
Ljósmyndasafn Reykjavíkur.

NORSKA NEYTENDASTOFAN VARAR VIÐ SKÍTHÆLUM Í NETHEIMUM – MYNDBAND

0

Norska Neytendastofan hefur látið gera myndband til að vara við skíthælum og bragðarefum sem vaða uppi í netheimum. Trikkið felst í því að fegra hlutina og gera þá svo illa – Make It Shitty…

ÓÐINN UPPFÆRIR

0

Sjónvarpsmaðurinn snjalli, Óðinn Svan Óðinsson, hefur uppfært prófílmynd sína á samfélagsmiðlum enda á leið í bæjarmálapólitíkina á Akureyri. Hans er sárt saknað úr sjónvarpsfréttum ríkisins þar sem hann bar af.