Home Blog Page 8

SNJÓDÍS Í REYKJAVÍK

0

Þetta er ekki snjókall eða snjókelling – þetta er snjódís.

Snjóskúlptúr, stytta búin til úr snjó. Maður stendur hjá.
Um 1955-1965.
Ljósmyndari Óskar Sigvaldason (1908-1998).
Ljósmyndasafn Reykjavíkur.

NORSKA NEYTENDASTOFAN VARAR VIÐ SKÍTHÆLUM Í NETHEIMUM – MYNDBAND

0

Norska Neytendastofan hefur látið gera myndband til að vara við skíthælum og bragðarefum sem vaða uppi í netheimum. Trikkið felst í því að fegra hlutina og gera þá svo illa – Make It Shitty…

ÓÐINN UPPFÆRIR

0

Sjónvarpsmaðurinn snjalli, Óðinn Svan Óðinsson, hefur uppfært prófílmynd sína á samfélagsmiðlum enda á leið í bæjarmálapólitíkina á Akureyri. Hans er sárt saknað úr sjónvarpsfréttum ríkisins þar sem hann bar af.

GÖMUL FÁVITAFRÉTT

0

Hér má sjá gamla frétt á prenti um opinbera skýrslu sem verið var að vinna að. Fréttin vekur athygli á samfélagsmiðlum i dag og Eva Hauksdóttir lögfræðingur setur fram þessa athugasemd:

Eva Hauksdóttir.
Eva Hauksdóttir.

„Þessi orð þóttu lýsandi og voru ekki hugsuð sem niðrandi. Þau voru hinsvegar notuð á niðrandi hátt og þessvegna voru þau aflögð hjá hinu opinbera og þess í stað var talað um vangefna, sem þótti lýsandi og ekki niðrandi. Það var samt notað í niðrandi merkingu og þá þótti rétt að nota orðið þroskaheftur, sem lýsandi en ekki niðrandi. Fólk fór þá að nota þroskahefur í niðrandi merkingu og þessvegna var farið að tala um þroskafrávik, þroskaskerðingu, greindarskerðingu eða fólk með vitsmunalegar áskoranir.“

NAT KING COLE (1919-1965)

0

Í dag er fæðingardagur jasspíanistans og söngvarans Nat King Cole (1919-1965). Heimurinn lagði við hlustir þegar hann lét í sér heyra. Síðasta hljómplata hans, L-O-V-E, var hljóðrituð á meðan hann barðist við krabbamein sem dró hann til dauða. Nat King Cole var fyrsti bandaríski blökkumaðurinn sem fékk sinn eigin sjónvarpsþátt stranda á milli – The Nat King Cole Show.

ÓKEIPISS ER ÓKEYPIS MYNDASÖGUBLAÐ

0
Hugleikur Dagsson og Nexus kynna Mydasöguáskorun 2026 í tilefni af útkomu nýs tölublaðs Ókeipiss 2. maí. Ókeipiss er ókeypis myndasögublað sem kemur út á Ókeypismyndasögudeginum og eru allir hvattir til að taka þátt og senda inn efni.
Reglurnar í ár eru þessar:
a) Að minnsta kosti ein síða. Í mesta lagi tvær síður.
b) Má vera í lit og má líka vera ekki í lit.
c) Má vera eftir einn eða fleiri. höfundar og teiknarar sameinist!
d) Ekki enda söguna á „framhald síðar“. Sagan verður að standa ein og sér.
z) blaðið verður prentað í stærðinni B5 (176mm × 250mm). En A4 sleppur líka alveg.
Bestu sögurnar verða birtar í blaðinu.
Sendið sögurnar í góðri upplausn á okeipiss@gmail.com
Skilafrestur er 15. apríl. Fyrir miðnætti.

PÁLL ÓSKAR (56)

0

„56 ár smakkast bara ágætlega, takk fyrir,“ segir stórstjarnan Páll Óskar sem á afmæli í dag, fæddur 1970. Mánuði eftir fæðingu Páls Óskars tilkynnti Paul McCartney brotthvarf sitt úr The Beatles, hóf sólóferil og þeir eru báðir enn að, Páll Óskar og Paul – 56 árum síðar.

GUÐNI EIGNAST RÚSSAJEPPA

0

Fregnir herma að Guðni Ágústsson sagnameistari og fyrrum formaður Framsóknarflokksins hafi eignast Rússajeppa árgerð 1966. Bíllinn verður sprautaður grænn og fær númerið X6.

 

GODFATHER FRUMSÝND Í NEW YORK 1972

0

Á þessum degi 1972 var kvikmyndin Godfather frumsýnd í New York með Al Pacino og Marlon Brando í aðalhlutverkum. Ári síðar fékk hún Óskarinn sem besta mynd ársins. Hér flytur Sinfóníuhljómsveit Danmerkur titillag myndarinnar:

NÝ VIKUTÍÐINDI – BAKSÍÐAN 1963

0

Ný vikutíðindi var vikublað sem keppti við annað og stærra, Mánudagsblaðið, upp úr miðri síðustu öld. Blöðin seldust í bílförmum í sjoppum enda lítið annað að hafa nema málgögn stjórnmálaflokkana.

Hér er baksíðan á Nýjum vikutíðindum 25. janúar 1963. Áfengismálin hafa verið ritstjóranum ofaralega í huga – smellið hér!