Home Blog Page 9

LYGAVEFUR Í RÁÐHÚSI

0
Pirraður bíleigandi sendir skeyti:
Ég átti því miður erindi í miðborg Reykjavíkur og hugðist leggja í bílakjallara ráðhússins. FULLT stóð á skilti við innkeyrsluna.
Ég gerði mér því ferð í kjallarann til að sannreyna þessa fullyrðingu. Lygin blasti við út um allt, það voru 38 laus stæði. Samt sagt FULLT.
Vissulega þarf fólk með fasta áskrift að ganga að einhverjum lausum stæðum. En nokkuð vel í lagt að fjórðungur af öllum stæðunum standi ónotaður.
Kannski að nýr meirihluti taki fyrir svona rugl.
Lygin blasti við út um allt, það voru 38 laus stæði. Samt sagt FULLT.
Lygin blasti við út um allt, það voru 38 laus stæði. Samt sagt FULLT.

ÖRBYLGJUSAMSKIPTI

0

Þetta blasti við eiginmanninum þegar hann ætlaði að hita upp mexíkóska kjúklingasúpu í örbylgjuofninum – skilaboð frá eiginkonunni.

Hann hlýddi:

KÁRI (24)

0

Kári Egilsson tónskáld er afmælisbarn dagsins (24). Kári hefur náð undraverðum árangri í list sinni þannig að nánast einstakt má teljast.

DÖMURÍKIÐ Á LAUGARÁSVEGI

0

Vínbúðin á Laugarásvegi um 1970, einskonar umsátursástand. Bílum lagt út um allt, engar stöðumælasektir og búðin sjálf pakkfull af fólki – eins og síld í tunnu.

Guðbjartur Walther H Ólafsson bitir þessa mynd og kann skýringu á ástandinu:

„Í þá gömlu daga fengu landsmenn greitt klukkan 17:00 á föstudögum og Ríkið lokaði klukkan 18:00, þá myndaðist oft svona skemmtileg röð við Laugarásveg.“

Þessi vínbúð var kölluð Dömuríkið því þegjandi samkomulag var á milli kynjanna um að þarna skyldu konur kaupa sitt áfengi. Þær mættu yfirleitt með sólgleraugu.

DAÐI SELUR GULA GULLMOLANN Á NÝLENDUGÖTU

0

Daði Guðbjörnsson listmálari og eiginkona hans hafa sett einýlishús sitt á Nýlendugötu, rétt ofan við Reykjavíkurhöfn, á sölu. Húsið er áberandi í hverfinu, stendur eitt og sér og er áberandi gulmálað í anda listamannsins.

Húsið er 225 fermetrar, þar af 60 fermetra íbúð í kjallara, 7 herbergi, tvö baðherbergi og ásett verð rétt tæpar 190 milljónir.

Húsið setur svip á Nýlendugötuna.

ALMENNINGSGARÐUR Í BREIÐHOLTI POPPAÐUR UPP

0

Reykjavíkurborg leitar eftir hugmyndum frá íbúum til að að bæta almenningsgarðinn í Efra-Breiðholti, sem liggur milli Fella- og Hólabrekkuskóla.

Reykjavíkurborg og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti ásamt ellefu evrópskum borgum eru þátttakendur í samstarfsverkefninu GreenInCities. Markmið verkefnisins er að auka gæði grænna svæða bæði fyrir íbúa og dýralíf. Almenningsgarðar geta skapað vettvang fyrir samveru og styrkt félagsleg samskipti og tengsl íbúa. Garðurinn í Efra-Breiðholti þjónar mikilvægu hlutverki fyrir hverfið og er hann viðfangsefni verkefnisins í Reykjavík.

Starfsfólk Reykjavíkurborgar og samstarfsaðilar í verkefninu verða með viðveru í Breiðholtslaug á eftirfarandi tímum: 17. mars kl. 9-18, 18. mars kl. 9-16, 19. mars kl. 9-18, 20. mars kl. 9-16. Eru íbúar hvattir til að mæta að segja sína skoðun.

NEIL SEDAKA (87)

0

Bandaríski lagahöfundurinn Neil Sedaka er afmælisbarn dagsins, orðinn 87 ára. Lög hans smullu á vesturhvel jarðar eitt af öðru enda ferillinn orðin langur, 60 ár og 500 lög fyrir sjálfan sig og hina og þessa: Oh! Carol, Calender Girl og Breaking Up Is Hard To Do standa þar upp úr í milljóna upplögum.

MATJURTAGARÐAR TIL LEIGU

0

Opnað verður fyrir umsóknir Reykvíkinga um matjurtagarða í borginni á hádegi mánudaginn 16. mars. Um 600 matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar, þar af eru tæplega 200 í Skammadal. Matjurtagarðarnir eru í boði í Vesturbæ, Fossvogi, Meðalholti, Laugardal, Árbæ, Grafarvogi og Kjalarnesi við Fólkvang. Matjurtagarðarnir verða opnaðir 1. maí. Sótt er um í gegnum „Mínar síður“ á vef Reykjavíkurborgar.

Garðarnir verða merktir. Vatn er aðgengilegt á öllum svæðum. Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með görðunum. Fyrir byrjendur má geta þess að algengast er að fólk rækti kartöflur og alls konar kál og rófur. Einnig er gott að hafa í huga að hægt er að nálgast forræktað grænmeti í allflestum gróðrastöðvum.

Leigugjöld ársins 2026 eru 7.760 kr. fyrir garðland í Skammadal (um 100 fermetrar) og 6.420 kr. fyrir garð (um 20 fermetrar). Kassar í Grafarvogi, Árbæ, Fossvogi, Meðalholti og Kjalarnesi verða á kr. 5.180 kr. kassinn (8 fermetrar).

Í Meðalholti, sem er ný staðsetning, eru þrettán kassar, þar af eru fjórir aðgengilegir matjurtakassar hentugir fólki sem notar hjólastóla, göngugrindur eða eiga erfitt með að vinna á hnjánum.

NASISTI HRELLIR SVAVAR KNÚT

0

Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur segir farir sínar ekki sléttar. Þýskur öfgamaður reynir að hafa áhrif á tónleikahaldara sem tengjast væntanlegu tónleikahaldi hans og hvetur þá til að aflýsa tónleikum Svavars Knúts vegna fordæmingar hans á þjóðarmorðinu á Gaza. Svavar Knútur sendir skilaboð sín á ensku enda heimurinn undir:

Alright, apparently, some weirdo in Germany is working really hard right now on getting venues to cancel concerts in my upcoming tour because I oppose the genocide in Gaza and war generally, sending “concerned emails” to them and being basically obnoxious. Just goes to show, there’s no target too small for islamophobe right wing cancel culture.
Sadly, they guy is a fellow musician. Always pitiful when artists try to hurt other artists living. I have no doubt that one or two venues might buckle to such dishonest acts of cancel culture, it’s just where we are right now. But I have 100% faith that my community knows me and understands my character and what I stand for and most venues will dismiss this ridiculous bullshit. Also, I never get political on stage. That’s not the purpose of my concerts. But if I truly get cancelled, there’s always the fishing boats I really don’t mind.
More money, less worries. I actually think my family would appreciate it, to be honest. But in the meantime, fuck Nazis, whatever new form they take.

SIGMUNDUR DAVÍÐ Á AFMÆLI Í DAG

0

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er afmælisbarn dagsins (51).

Fæddur í Reykjavík 12. mars 1975. Foreldrar: Gunnlaugur M. Sigmundsson (fæddur 30. júní 1948) cand. oecon., framkvæmdastjóri og fyrrverandi alþingismaður og Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir (fædd 5. október 1948) lífeindafræðingur og skrifstofustjóri. Maki: Anna Sigurlaug Pálsdóttir (fædd 9. desember 1974) mannfræðingur. Foreldrar: Páll Samúelsson og Elín Sigrún Jóhannesdóttir. Dóttir: Sigríður Elín (2012).

Stúdentspróf MR 1995. BS-próf frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ 2005 auk hlutanáms í fjölmiðlafræði. Skiptinám við Plekhanov-háskóla í Moskvu. Nám við stjórnmálafræðideild Kaupmannahafnarháskóla í alþjóðasamskiptum og opinberri stjórnsýslu. Framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla með áherslu á tengsl hagrænnar þróunar og skipulagsmála.

Þáttastjórnandi og fréttamaður í hlutastarfi hjá Ríkisútvarpinu 2000–2007. Forsætisráðherra 23. maí 2013 til 7. apríl 2016. Dómsmálaráðherra 26. ágúst til 4. desember 2014.

Afmælisbarnið fær óskalagið Middle Of The Road: