Lagahöfundur hippana, James Taylor, er afmælisbarn dagsins (78). Þekktastur fyrir lagið You´ve Got a Friend sem fleytti honum inn á lista Rolling Stone yfir 100 mestu listamenn allra tíma. Fimmfaldur Grammy verðlaunahafi með hundrað milljónir seldra platna og að auki sæmdur Presidential of Freedom orðunni.
ÓLAFUR RAGNAR MEÐ UPPISTAND Á FUNDI ÞINGNEFNDAR UM FORSETARITARA
Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum forseti Íslands var kallaður á fund stjórnskipunar – og eftirlitsnefndar Alþingis í gær til að ræða fyrirhugaðar breytingar á ráðningu forsetaritara. Til stendur að ráðning foretaritara verði í forsætisráðuneytinu en ekki hjá forsetanum sjálfum eins og tíðkast hefur.
Talaði Ólafur Ragnar látlaust í hálfan annan tíma og sannaði þarna að hann er einn besti uppistandari þjóðarinnar að Davíð heitnum Oddssyni gengnum.
Ólafur Ragnar leggst alfarið gegn þessum breytingum á ráðningu forsetritara sem hann telur aðför að sjálfstæði forsetaembættisins og hefur skilað greinagerð þar um. Þingmenn eru margir á öðru máli og hafa jafnvel á orði að sporin hræði.
DON´T WORRY, BE HAPPY (76)
Bobby McFerrin sem samdi, söng og lék af fingrum fram einn þekktasta dægursmell allra tíma, Don’t Worry, Be Habby, er afmælisbarn dagsins (76). Hann varð þaulsetinn á toppi bandarískra vinsældalista og hampaði Grammy verðlaunum fyrir. Hafði sérstakt lag á að breyta rödd sinni í hvaða hljóðfæri sem var.
GYLFI ÆGIS (80)
Fæðingardagur Gylfa Ægissonar (1946-2025) sem orðið hefði áttræður í dag. Einn fárra lagahöfunda sem þjóðin kann svo gott sem utanbókar og getur sungið með við öll tækifæri. Hér með Megasi og Rúnari Þór:
SVONA Á AÐ BJARGA ICELANDAIR
Jón Karl Ólafsson fyrrum forstjóri Icelandair hefur áhyggjur af því að félagið verði keypt á spottprís miðað við gengi í dag og lagt niður.
Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir kann ráð til bjargar, líkt og í hruninu, og segir:
„Sagt er að verðmæti hlutafjár Icelandair á markaði sé nú minna en upplausnarvirði félagsins með sölu eigna þess. Félagið er án vafa “þjóðhagslega mikilvægt.” Samgönguráðherra lýsti áhyggjum af stöðunni, sem gerir félagið berskjaldað fyrir yfirtöku. Af þessu tilefni vek ég máls á aðferð til að “valda” stöðuna og það þarf að gera strax:
BJÖRN FORSETAMAKI SETUR STÓRA PLOKKADAGINN
Stóri plokkdagurinn 2026 verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl næstkomandi.
Björn Skúlason forsetamaki mun setja Stóra plokkdaginn formlega kl. 10:30 en Björn steig inn fyrir forsetann í fyrra þegar hún þurfti að vera við jarðaför páfans í Róm. Birni tóks eintaklega vel upp og er orðin einn af plokkurum landsins í framhaldi. Staðsetning opnunarplokksins verður kynnt síðar.
YNDISLEGT Í ESB

Að gefnu tilefni hefur Ómar Sigurðsson þetta til málanna að leggja:
„Yndislegt í ESB. Kaffibollinn á 150 krónur, bjórinn á 200 krónur og íspinninn á 100 krónur.“
H20 – LITIR VATNSINS Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG
:Guðrún Anna Matthíasdóttir var að opna ljósmyndasýningu í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg sem opin er á verslunartíma út mánuðinn.
Vatnið hefur alltaf heillað Guðrúnu sem viðfangsefni í ljósmyndun og hefur hún tekið ógrynni af myndun af því í gegnum árin. Oftast hefur hún notast við macro- eða aðdráttarlinsur til að fá meiri nálægð – enda heitir sýningin H20.
Undanfarin ár hefur Guðrún verið að vinna með formin og litina sem speglast á yfirborði vatnsins. Með því að nálgast yfirborðið birtist önnur sýn og speglunin í vatninu tekur á sig sjálfstæða og abstrakt mynd. Tilgangurinn er að koma á óvart, á þann hátt að það sé ekki alltaf augljóst að þetta séu myndir af vatni eða hvað það er sem speglast í vatninu.
Guðrún leggur stund á ljósmyndun, málun og skriftir. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum og gefið út tvær barnabækur.
Sýningin H2O – litir vatnsins hefur verið sett upp tvisvar á Korsíku og einu sinni á Íslandi.
SIGMUNDUR ERNIR (65)
Sigmundur Ernir Rúnarsson alþingismaður er afmælisbarn dagsins (65). Hann er frá Akureyri og fær því óskalag með hljómsveit Ingimars Eydal.

