Home Blog Page 11

VONBRIGÐI VÍSIS

0

Vísir missti af fréttinni um brotthvarf ritstjóra DV úr ritstjórastóli sem birtist hér í gær. En eitthvað urðu þeir að segja og datt ekkert betra í hug en þetta – sjá mynd.

SEXTUGUR OG SÍUNGUR Á SVIÐINU

0

Söngvarinn ástæli, Stefán Hilmarsson, fagnar sextugsafmæli sínu með tónleikum í Hörpu í sumar þar sem hann fleytir rjómann ofan af tónlistarstarfi sínu í 40 ár. Forsala miða hefst eftir helgi.

Sextugur og sætur.
Sextugur og sætur.

Frá fyrstu tíð hefur Stefán látið að sér kveða sem höfundur, einkum textasmiður. Hann er í hópi afkastamestu höfunda landsins síðustu áratugi og hafa á fjórða hundrað verk eftir hann verið hljóðrituð og gefin út. Auk þess að semja fyrir sig og sína, hefur Stefán samið fyrir fjölda þjóðþekktra flytjenda, svo sem Björgvin Halldórsson, Eyjólf Kristjánsson, Sigríði Beinteinsdóttur, Pál Rósinkrans, Bjarna Arason, Stjórnina, Hljóma, Í svörtum fötum, Írafár, Selmu Björnsdóttur, Friðrik Ómar, Margréti Eir og Regínu Ósk, svo einhverjir séu nefndir.

Hann var útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs árið 2008 og bæjarlistamaður sama bæjarfélags áratug síðar. Fyrir liðlega áratug rann Stefáni blóðið til skyldunnar,  þegar hann var beðinn að taka sæti  skólanefnd Kvennaskólans og gegndi hann þar formennsku um skeið.

Meðfram tónlistarstörfum hefur Stefán starfað við ýmislegt, m.a. við þýðingar fyrir kvikmyndir og sjónvarp og við grafíska hönnun. Stefán er með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, kvæntur Önnu Björk Birgisdóttur og eiga þau tvo syni, Birgi Stein (f. 1992) og Steingrím Dag (f. 2004). Árið 2023 bættist barnabarn í hópinn, Emanúel Dagur Birgisson.

PALLI ÞJÓÐARGERSEMI

0
Listamaðurinn.
Listamaðurinn.

Þrándur Þórarinsson myndlistarsjéní hefur sent frá sér nýja mynd sem hann nefnir „Palli þjóðargersemi“ og segir:

„Takk Páll Óskar fyrir alla slagina sem þú hefur tekið og alveg sérstaklega fyrir þennan slag.“

BJÖRN HÆTTIR SEM RITSTJÓRI DV

0

Björn Þorfinnsson ritstjóri DV hefur ákveðið að láta af störfum eftir að afa stýrt fjölmiðlinum í fimm ár.

„Ég er að renna inn í síðustu vikuna,“ segir Björn sem kveður af fjölskylduástæðum:

„Það má orða það sem svo að þetta sé hluti af endurskipulagninu fjölskyldulífsins. Eiginkona mín er í kefjandi verkefni við að stofna fjármálafyrirtæki og þar þurfa allir að leggjast á eitt heima fyrir.“

Björn segist þó ekki vera hættur í fjölmiðlum, verkefnin verði bara minni og sértækari þegar fram líða stundir.

ÓDÝRARA AÐ KAUPA SKÓ EN LEITA LÆKNIS Í HÁLKUNNI

0

Vefverslunin Norva stekkur til í hálkutíð og bendir vegfarendum á að hagstæðara sé að kaupa nýja skó en leita læknis. Og sýna það svart á hvítu. 50% afsláttur núna.

EVA MENDES (52)

0

„Most beautiful Latin woman“ var hún kölluð í eina tíð og er enn. Leikkonan Eva Mendes er 52 ára í dag. Eva hefur verið fastur liður á listum tímarita yfiir hitt og þetta tengt kvenlegri fegurð: Most Desirable Women, Sexiest Women in the World, and Beautiful at Every Age. Hún er gift leikararanum Ryan Gosling og er ánægð með – og hann líka.

Hjónin.
Hjónin.

STEFNUMÓT VIÐ GRÁMÓÐU OG LITLEYSU

0

„Færðu mér liti“ segir Eygló Harðardóttir myndlistarkona en samnefnd sýning hennar blaktir í vindi eins og þvottur á snúru og kallast á við snjóinn í Höggmyndagarðinum á Nýlendugötu. „Þetta er litríkt stefnumót við grámóðu og litleysu.“

Eygló lærði í Myndlista- og handíðaskóla Íslands (1983–87) og AKI Academy of Art & Design, í Enschede, Hollandi (1987–90), en auk þess hefur hún lokið Meistaragráðu í kennslufræðum við Listaháskóla Íslands (2014). Eygló er fædd í Reykjavík 1964.
Eygló lærði í Myndlista- og handíðaskóla Íslands (1983–87) og AKI Academy of Art & Design, í Enschede, Hollandi (1987–90), en auk þess hefur hún lokið Meistaragráðu í kennslufræðum við Listaháskóla Íslands (2014). Eygló er fædd í Reykjavík 1964.

Sýningin er unnin sérstaklega fyrir Höggmyndagarðinn. Verkið er innsetning þar sem skúlptúrískir eiginleikar málverksins eru kannaðir og stærðargráður þess ýktar. Verkin skapa eina heild og var handritið að sýningunni upphaflega þróað sem innsetning í smáum skala inní líkan af Höggmyndagarðinum. Lokaútkoman er trú skissukenndum eiginleikum smágerðra frummyndanna. Byggingarefni verkanna eru litir, tjalddúkar, timbur og kopar. Löngun í liti, leikur með skala og áhugi á almenningsrýmum borgarinnar eru stórir áhrifavaldar við gerð verkanna.

Lítið við – sýningunni lýkur 8. mars.

VIVALDI (1678-1741)

0

Fæðingardagur ítalska tónskáldsins Antonio Lucio Vivaldi (1678-1741), fiðlusnillingurinn sem reis hæst allra á baroktímanum með einstæðri tækni og hugarafli í sköpun. Þekktastur fyrir verk sitt um árstíðirnar fjórar, sumar vetur, vor og haust; The Four Seasons. Þrátt fyrir velgengni framan af lenti hann í alvarlegum fjárhagsvanda á efri árum sem dró úr honum kraft.

DAUÐINN Á HORNINU

0

„Þessi mynd sem er niðri á Horni er af dauðanum með sprengjublómvönd. Hún er úr seríu síðan 1961 eftir Dag Sigurðarson skáld og myndlistarmann,“ segir Jakob Hörður Magnússon veitingamaður á Horninu í Hafnarstræti um áratugaskeið:

„Hún gæti vel átt við einmitt núna. Hittumst á Horninu.“

JAKOB OG SÚKKULAÐIÐ

0

„Ástæðan fyrir dýrtíðinni á Íslandi kom óvart í ljós í samtali við súkkulaðistelpu á Vísi,“ segir stjörnublaðamaðurinn Jakob Bjarnar sem þar starfar:

„Íslenskir bisnessmenn semja alltaf um kaup á hrávöru þegar heimsmarkaðsverð er í hæstu hæðum og fylla þá allar geymslur. Svo þegar geymslurnar eru að verða tómar hefur heimsmarkaðsverð tekið kipp uppávið…“