Home Blog Page 12

DAUÐINN Á HORNINU

0

„Þessi mynd sem er niðri á Horni er af dauðanum með sprengjublómvönd. Hún er úr seríu síðan 1961 eftir Dag Sigurðarson skáld og myndlistarmann,“ segir Jakob Hörður Magnússon veitingamaður á Horninu í Hafnarstræti um áratugaskeið:

„Hún gæti vel átt við einmitt núna. Hittumst á Horninu.“

JAKOB OG SÚKKULAÐIÐ

0

„Ástæðan fyrir dýrtíðinni á Íslandi kom óvart í ljós í samtali við súkkulaðistelpu á Vísi,“ segir stjörnublaðamaðurinn Jakob Bjarnar sem þar starfar:

„Íslenskir bisnessmenn semja alltaf um kaup á hrávöru þegar heimsmarkaðsverð er í hæstu hæðum og fylla þá allar geymslur. Svo þegar geymslurnar eru að verða tómar hefur heimsmarkaðsverð tekið kipp uppávið…“

EINS OG MÁLVERK – FYRIR 80 ÁRUM

0

Reykjavík fyrir 80 árum – 1946. Bílarnir, ljósastaurarnir, fólkið – eins og málverk. Myndin er tekin frá Klapparstíg upp Laugaveginn.

BELL – RING, RING…!

0

Hugvitsmaðurinn Alexander Graham Bell (1847-1922), maðurinn sem fann upp símann, er afmælisbarn dagsins. Bell hefði kannski lagt uppfinniningu sína til hliðar ef hann hefði vitað hver þróunin yrði – öll heimsbyggðin glápandi í lófann á sér frá morgni til kvölds. Hann fær óskalagið Call Me.

HVAÐ GÆTI GERST HÉR?

0

Reykjavíkurborg leitar nú eftir áhugasömum einstaklingum eða hópum til að taka þátt í verkefninu Torg í biðstöðu 2026. Almenningsrýmin í borginni samanstanda ekki bara af torgum og görðum. Borgin lifir líka í rýmunum inni á milli, eins og á milli húsa, við jaðra lóða, í portum, bakgörðum, gangstéttum og öðrum áhugaverðum en ekki alltaf vel skilgreindum svæðum. Í sumar leitar Reykjavíkurborg að hugmyndum sem beina sjónum okkar að þessum rýmum borgarinnar.

Hvernig getur líf kviknað þar sem lítið virðist um að vera? Hvað gerist þegar við hægjum á okkur og skoðum rýmin sem við göngum vanalega framhjá?

      • Kannski verður til staður til að sitja þar sem enginn settist áður?
      • Kannski breytist port í samkomustað?
      • Kannski verður auður blettur að rými til að eyða tíma?

Markmiðið er ekki fullkomin lausn heldur spurning: Hvað gæti gerst hér?

Umsókn fer fram með rafrænum hætti í gegnum Mínr síður. Umsóknarfrestur er út mánudaginn 20. apríl 2026.

DANIEL „BOND“ CRAIG (58)

0

Fæðingardagur enska leikarans Daniel Craig sem var að leika á sviði í London þegar kallið kom – James Bond – og heimsfrægðin fylgdi. „Daniel Craig is known for his rugged good looks and raw sex appeal,“ var sagt í fjölmiðlum og er enn í gildi.

HUGSANDI HAFNFIRÐINGUR

0

„Ímyndaðu þér að samfélagsmiðlar lokuðu klukkan sex á hverjum degi. Eins og búð. Lokað,“ segir Hafnfirðingurinn Steindór Magnússon í hugleiðingu dagsins:

„Þá þyrftum við að hitta fólk í alvöru, vera með okkar nánustu og fara út. Njóta. Og fá loksins pásu frá grilluðu efni sem er troðið framan í mann. Fjölmiðlar þyrftu líka að vanda sig betur. Prentmiðlar og bóklestur gætu fengið endurkomu. Og líðan okkar allra myndi líklega batna til muna. Og fatta aftur að lífið er ekki app.“

HARRY BELAFONTE

0

Fæðingardagur Harry Belafonte (1927-2023). Fyrsti einstaklingurinn sem rauf milljón eintaka sölumúrinn á hljómplötumarkaðnum. Platan hét Calypso og Harry fékk viðurnefnið King of Calypso. Fæddist í Harlem í New York og leið hans lá víða á löngum ferli – kom meira að segja til Íslands sem velgjörðasendiherra UNICEF og þurfti að kaupa ný föt hjá Sævari Karli vegna þess að taskan hans týndist á leiðinni. Hann lét réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum mjög til sín taka og var trúnaðarvinur og ráðgjafi Martin Luther King.

BÓKIN BILAR EKKI

0

Hrefna Haraldsdóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta blæs í herlúður til varnar bókinni í Morgunblaðinu í dag.

GÍSLI MARTEINN VEIKUR OG BERGLIND FESTIVAL BRILLERAÐI

0

„Á mínu heimili líðst engum að hallmæla Gísla Marteini. Ég ætla að halda þeim sið,“ segir Hjörtur hjartarson hagfræðingur og landsþekktur baráttumaður fyrir nýrri stjórnarskrá í tilefni að því að Gísli Marteinn sjónvarpsstjarna var veikur í gærkvöldi og gat ekki mætt. Aldrei þessu vant. Berglind Festival settist því í stól hans og Hjörtur var að horfa:

„Það verður samt að segjast að þáttur Gísla Marteins var óvenju skemmtilegur. Flensan og Berglind Festival verða honum vonandi ekki að fjörtjóni.“

Þess má geta að Hjörtur Hjartarson er faðir hlaðvarpsstjörnunnar Þórarins Hjartarsonar – Ein pæling.