Home Blog Page 234

VETRARHÁTÍÐ SETT FYRIR FRAMAN HEGNINGARHÚSIÐ

0

Vetrarhátíð verður haldin dagana 1. – 3. febrúar í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Listaverk höfða til allra skynfæra og vekja fólk til umhugsunar ásamt því að lýsa upp skammdegið á líflegan hátt. Eitthvað verður í boði fyrir öll þessa daga.

Tilgangur Vetrarhátíðar er að lífga upp á borgarlífið á dimmustu vetrarmánuðunum með því að tengja saman ólíka menningarlega þætti sem allir tengjast þema hátíðarinnar, ljósi og myrkri. Hátíðin skiptist í þrennt: Ljósaslóð, Sundlauganótt og Safnanótt og er aðgangur ókeypis.

Hátíðin verður sett 1. febrúar klukkan 19:00 fyrir framan Hegningarhúsið á Skólavörðustíg.

SIGMUNDUR OG ELÍN FLUTT TIL TENE

0

Fjölmiðlahjónin Sigmundur Ernir Rúnarsson og Elín Sveinsdóttir eiginkona hans eru flutt til Tenerife tímabundið þar sem þau baða sig í sól og sælu:

„Við Ella höfum vetursetu í fiskimannaþorpinu San Andrés, nyrst á Tenerife, fjarri glys og glaumi sollsins í suðri – og störfum hér við skriftir bóka og undirbúning sjónvarpsþátta, milli þess sem við förum í göngur og klifrum á fjöll. Héldum utan 2. janúar og skilum okkur heim einhvern tíma í mars, en biðjum að heilsa heim á hina eyjuna,“ segir Sigmundur.