Home Blog Page 232

ÞÓRIR FÉKK ORÐU Í EISTLANDI

0

„Eistneski herinn sýndi mér þann sóma að veita mér orðu eftir tæplega tveggja ára starf á vegum íslenska utanríkisráðuneytisins fyrir Atlantshafsbandalagið innan höfuðstöðva hersins í Tallinn,“ segir Þórir Guðmundsson fyrrum fréttamaður og nú útsendur starfsmaður utanríkisráðuneytisins hjá Atlantshafsbandalaginu í Eistlandi.

„Við vorum nokkur sem fengum orðu á þessum degi en í tilkynningu hersins er vitnað í Veiko-Vello Palm hershöfðingja, sem nefndi framlag Íslands sérstaklega með þessum orðum:

„I would like to express my special thanks to our Icelandic colleague, whose contribution is both substantial and highly symbolic. Even a small country can contribute to NATO’s collective security with its know-how.“

Orðuveitingin minnir mig á að nú sér fyrir endann á dvölinni í þessu einstaka landi og meðal þessarar þjóðar sem mér þykir orðið afar vænt um. Óvægin saga hennar, sem leiksoppur stórþjóðanna í kring og þó sérstaklega í austri, minnir Eistlendinga stöðugt á þann dýrmæta fjársjóð sem felst í sjálfstæðinu.

Við athöfnina í dag nefndi Palm hershöfðingi líka þakklæti Eista fyrir það frumkvæði Íslendinga 1991 að vera fyrst þjóða til að viðurkenna endurheimt sjálfstæðis Eistlands. Eistar þekkja þessa sögu vel og meðal annars þess vegna hefur verið sérstaklega ánægjulegt að vera búsettur í Eistlandi undanfarin næstum tvö ár.“

FISKIKÓNGURINN OG KRISTRÚN JAFNGÖMUL

0
Fiskikóngurinn Kristján Berg átti fund með Kristrúnu Frostadóttur formanni Samfylkingarinnar og fór vel á með þeim. Fóru þau yfir fisksölu, þjóðmálin og atvinnulífið almennt:
„Kristrún hefur komið inní pólitíkina af krafti, er eldklár hefur mjög góða nærveru og mikla útgeislun. Áður en fundur okkar hófst, þá googlaði ég Kristrúnu, en ekki hvað. Komst að því að Kristrún er 36 ára gömul. Þess má til gamans geta að fyrirtækið okkar verður 35 ára í mars næstkomandi. Þannig að Kristrún og fyrirtækið Fiskikóngurinn eru á svipuðum aldri.
Niðurstaða fundarins: Hvetjum þjóðina til þess að borða meiri fisk.“

BIÐRÖÐ EFTIR ÆVISÖGU AFA BJARNA BEN

0

Stefán Bendiktsson arkitekt og fyrrum alþingismaður ætlaði að ná sér í ævissögu Sveins Ben á bókasafninu í Garðabæ en niðjar Sveins búa margir í Garðabæ og fjármálaveldi ættarinnar sem hann skóp stendur þar í blóma. Sveinn er afi Bjarna Ben sem nú ríkir. En ekki fékk Stefán bókina:

„Við höfum reynt að fá ævisögu Sveins Benediktssonar í Bókasafni Garðabæjar, en það er löng biðröð eftir henni. Garðbæingar lesa greinilega hægt.“

ÖLDUGANGUR Á 8,8 MILLJARÐA

0

Alda, brú yfir Fossvog, var til kynningar hjá umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í morgun. Undirbúningur fyrir útboð er langt á veg kominn en tvö útboð eru í undirbúningi, annars vegar fyrir fyllingar og hins vegar fyrir smíði brúarinnar. Alda er ætluð gangandi og hjólandi vegfarendum, ásamt því að vera lykillinn að leið Borgarlínunnar yfir Fossvog. 

Áætlað er að fyrsta útboð af tveimur fari fram með vorinu en þá verða fyllingar boðnar út. Fyllingar í Skerjafirði verða hluti af því útboði. 

Útboð á smíði brúarinnar og landmótun er síðan fyrirhugað um mitt sumar. Í síðari útboðinu er meðal annars gert ráð fyrir 900 tonnum af stáli í yfirbyggingu brúarinnar, sem verður í fimm höfum með steyptu brúargólfi. Gert er ráð fyrir að stórar forsmíðaðar einingar verði notaðar í stöpla og yfirbyggingu. Brúin verður 270 m að lengd.

Taka þarf sérstakt tillit til starfsemi Reykjavíkurflugvallar í báðum útboðum og þau áhrif sem flugumferð hefur á framkvæmdir við fyllingar og byggingu brúarinnar.

Áætlað er að vinna við landfyllingar hefjist í sumar og að byrjað verði á Kársnesi. Í byrjun næsta árs er svo áætlað að hefja vinnu við brúargerð og landfyllingar Reykjavíkurmegin. Fyrirhugað er að hefja vinnu við landfyllingar í Skerjafirði árið 2026 og samhliða verður unnið við brúargerð. Verklok eru áætluð á árinu 2027. 

Áætlaður kostnaður við brúna eru 6,7 milljarðar króna. Áætlaður kostnaður við landmótun og yfirborðsfrágang er 2,1 milljarður króna.

LISA MARIE PRESLEY (56)

0

Lisa Marie Presley (1968-2023) hefði orðið 56 ára í dag en hún lést í janúar í fyrra. Hér tekur hún lagið með pabba sínum:

PHIL COLLINS (73)

0

Stórstjarnan Phil Collins er afmælisbarn dagsins (73). Sló í gegn sem trommuleikari og söngvari Genesis og á að baki glæslilegan sólóferil, bæði í tónlist og kvikmyndum.

Þrígiftur: Andrea Bertorelli (1975–1980), Jill Tavelman(1984–1996), og Orianne Cevey (1999–2008). Phil og Orianne Chevey tóku þó saman aftur og hófu sambúð á ný nokkrum árum eftir skilnaðinn en sú sambúð endaði með málaferlum og nýjum skilnaði – sjá hér.

„Ég hef átt mínar dimmu stundir í einkalífinu,“ er eftir honum haft. „Ég eyddi tímanum í að drekka og horfa á sjónvarp. Ekki góð blanda.“

Phil Collins hefur átt við heilsubrest að stríða undanfarin ár sem sagt er að rekja megi til óhóflegrar og langvarandi drykkju.

VARÚÐ! BRJÁLAÐ VEÐUR SÍÐDEGIS

0

31. janúar: Gul viðvörun í Reykjavík kl. 12:30 -17:30 : Vestan hvassviðri eða stormur, dimm él og skafrenningur með lélegu skyggni. Líkur á samgöngutruflunum. Snjókoma en það skefur mikið þannig að færi mun spillast og blint verður í hryðjum.

Vetrarþjónustan í Reykjavík mun leitast við að halda aðalleiðum opnum á meðan þessu stendur en gott er að skipuleggja ferðir sínar í dag til að síðdegisumferðin verði ekki veruleg. Metið verður hvernig staðan verður í húsagötum og hvenær aðal snjómoksturinn fer fram þar.

Þegar gul viðvörun stendur yfir, þá eiga foreldrar og starfsfólk skóla að meta stöðuna, samkvæmt ráðleggingum almannavarna. Almenna ráðleggingin er að vera ekki á ferðinni á meðan viðvörunin stendur yfir. Farið varlega.

DANIELA BIANCHI (82)

0

Ítalska leikkonan, módelið og balletdansmærin Daniela Bianchi er afmælisbarn dagsins (82). Þekktust fyrir hlutverk sitt sem Bond-stúlkan Tatiana Romanova í Bondmyndinni From Russia with Love.

Tökum þetta góðum sundtökum!

0

“Myndirnar eru frá Klébergslaug á Kjalarnesi þar sem ég átti gott pottaspjall á dögunum eftir sundsprett,” segir Guðni forseti sem kann að blanda gerði við almenning og heldur svo áfram:

“Sundlaugamenning okkar Íslendinga er einstök, sterk stoð í samfélaginu sem bætir lífsgæði okkar. Lagt er til að hún verði sett á lista Menningarmálastofnunar Sameinuðu Þjóðanna, UNESCO, yfir óáþreifanlegan menningararf um víða veröld. Umsókn um það eflist ef fjöldi fólks semur stutta lýsingu á því hvaða máli sundlaugarnar skipta fyrir það í dagsins önn. Sjálfur er ég búinn að senda stuðningsyfirlýsingu og segi þar frá því hvernig sund og pottur bæta líkama og sál, hvernig við hittumst í laugunum, hreyfum okkur og spjöllum saman. Koma svo, tökum þetta góðum sundtökum!”

“…sund og pottur bæta líkama og sál, hvernig við hittumst í laugunum, hreyfum okkur og spjöllum saman.”

ÍSLENSKA KOKKALANDSLIÐIÐ Á LEIÐ Á ÓLYMPÍULEIKANA Í STUTTGART

0

Allir fremstu matreiðslumenn heims koma saman á Ólympíuleikum matreiðslu í Stuttgart í Þýskalandi í byrjun febrúar og keppa um stærstu verðlaun keppnismatreiðslu. Íslenska kokkalandsliðið hefur æft stíft undanfarna mánuði í tengslum við keppni þessa og stefnir á verðlaunapall. Ólympíuleikarnir verða settir 3. febrúar nk. og mun íslenska kokkalandsliðið keppa í tveimur greinum. Fyrri keppnisgreinin er „Chef´s table“, tólf manna 11 rétta matseðill og í hinni síðari þarf að afgreiða þriggja rétta matseðil fyrir 110 manns.

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir landsliðsþjálfari segir ekkert annað en verðlaunasæti koma til greina. Hópurinn samanstandi af reynslumiklu keppnisfólki sem og einstaklingum sem eru að fara að keppa á sínu fyrsta stórmóti. Snædís hefur lengi verið tengd keppnismatreiðslu en hún tók að sér þjálfun liðsins fyrr á þessu ári:

„Við ætlum okkur alla leið, þessi hópur er tilbúinn að leggja gríðarlega mikið á sig til að ná sem bestum árangri,“ segir Snædís og bendir á að æfingar fari fram aðra hverja viku, þrjá til fjóra daga í senn þar sem hver æfing er um tíu til fjórtán klukkustundir.