Home Blog Page 231

MEÐ OPIN AUGU – TVÆR BLINDAR KONUR Í 20 ÁR

0

Með opin augu heitir heimildarmynd um tvær blindar konur á 20 ára tímabili. Aðstandendur myndarinnar eru þau Ásta Sól Kristjánsdóttir, Elin Lilja Jónasdóttir og Ísak Jónsson. Safna þau nú fé á Karolina Fund upp í framleiðlukostnað – sjá hér.

Skyggnst er inn í hugarheim tveggja blindra kvenna, Ásrúnar Hauksdóttur og Brynju Arthúrsdóttur. Þeim er fylgt eftir við leik og störf, í gegnum sorg og sigra, en báðar eru þær mjög sjálfstæðar, yfirvegaðar, bjartsýnar og hafa húmor fyrir lífinu.

Í byrjun myndarinnar verður ekkert sem bendir sérstaklega til þess að konurnar tvær séu blindar, en áhorfendur uppgötva það smátt og smátt. Ýmis hljóð eru mögnuð upp og áhersla er á skynfæri.

Á meðan Ásrún nuddar á nuddstofu sinni og Brynja undirbýr matarboð, kynnast áhorfendur þeirra innri persónum, viðhorfum til lífsins, heyra sögur úr fortíðinni og vangaveltur um framtíðina. Ekki er um uppstillt viðtöl að ræða heldur er frekar hugsað um að mynda konurnar í eins náttúrulegum og óþvinguðum aðstæðum og mögulegt er, með léttu spjalli inn á milli.

EIR HAKKAÐUR Í SPAÐ – NÝR VEFUR KOMINN Í LOFTIÐ

0

Vefurinn eirikurjonsson.is var hakkaður erlendis frá fyrir skemmstu með þem afleiðingum að erfitt var að komast inn á hann. Sérstaklega í gegnum síma eða facebook. Framan af var leiðin greið í gegnum tölvu en svo fór vírusinn að breiða úr sér þannig á endanum var ekki við neitt ráðið.

Nú voru góð ráð dýr og sannarlega voru þau dýr þegar eina lausnin var að endurgera nýjan vef á nýjum grunni og nýju númeri án þess að breyta útliti. Nýi vefurinn er nú kominn í loftið, greiðfær og góður, og bjóðum við alla velkomna aftur á eirikurjonsson.is:

Fréttir fyrir fólk, ný forsiða daglega í bráðum 12 ár. Frítt inn!

JAMES DEAN (93)

0

James Dean (1931-1955) hefði orðið 93 ára í dag. Heillaði heila kynslóð ungmenna á Vesturlöndum með kvikmyndaleik þó hann hefði aðeins orðið 24 ára. Áhrif hans voru þvílík að jafnvel Bítlarnir rétt skákuðu honum síðar – og áhrif James Dean lifa enn.

FRÉTTAMAÐUR RÚV Á SPOTIFY

0

Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir fréttamaður á RÚV lætur sér fréttirnar ekki nægja heldur er einnig á Spotify:

„Ég gef út lagið Alice undir nafninu Kjerúlf á Spotify 16. febrúar. Þetta er fyrsta sólóverkefnið mitt og fæðingin var löng – mörg ljón í veginum, en þau búa flestöll uppi í toppstykkinu og lifa þar góðu lífi. Ég hlakka mikið til að leyfa ykkur að heyra lagið og á sama tíma líður mér eins og það væri líklega best að leka bara ofan í næsta niðurfall. Allt eftir uppskrift held ég. Mér líður eins og þetta lag sé lítið leyndarmál sem ég ætla allt í einu að segja öllum, sem ég hef nú almennt ekki lagt í vana minn með leyndarmál. En þið segið engum.“

HJÓNABANDSRÁÐGJÖF DAGSINS

0

Í þorpinu Biertan í Rúmeníu lét kirkjan útbúa herbergi þar sem hjón í skilnaðarhugleiðingum voru látin dvelja í tvær vikur – eitt rúm, stóll, borð, diskur og skeið. Aðeins einn skilnaður varð í þorpinu næstu 300 árin.

HALLGRÍMUR TVÍBURAAFI

0

Fréttamaðurinn skeleggi, Hallgrímur Indriðason, var að verða afi í fyrsta sinn – tvíburaafi!

VANN TRAKTOR Í HAPPDRÆTTI

0

Kristján Kristófersson kennari í Vestmannaeyjum tekur á móti glæsilegum Ferguson sem hann vann í Happdrætti DAS. Hvaða árgerð ætli þetta sé?

ÁSTARÓÐUR TIL KRISTÍNAR

0

Afmæliskveðjur taka á sig ýmsar myndir á Facebook. Hér er afmæliskveðja dagsins sem skákar öðrum út á kant. Signý Scheving Þórarinsdóttir ljósmóðir til Kristínar Eysteinsdóttur fyrrum Borgarleikhússtjóra:

Elsku ást lífs míns er fimmtug í dag! Elsku besta Kristín mín, þú þarft að umbera hyper væmni mína í dag, sem ég veit að þú gerir. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér. Ég get varla lýst með orðum hversu stórkostlega mögnuð þú ert. Þú sýnir mér á hverjum degi hversu mikla ást þú hefur að gefa, með hlýju þinni, tæra hjarta og einlæga brosi. Ég kollféll fyrir þér og ást mín og hjarta vex og stækkar á hverjum degi. Við höfum upplifað mörg ævintýri undanfarið árið, en það sem ég elska mest er hversdagsleikinn með þér. Að vakna við hlið þér á morgnana og drekka morgunkaffið, horfa í fallegu augun þín og kyssa þig.

Verð líka að minnast hversu góð móðir þú ert; alltaf með opinn hlýjan faðminn fyrir elsku dýrmætu drengina þína. Það bræðir mig.
Þú ert langbest; mesti töffarinn; rokkstjarnan mín; my partner in crime; minn eini sanni Elvis.
Ég elska þig undur heitt. Hlakka til að njóta lífsins með þér í dag í sólinni og sýna þér hversu mikils virði þú ert mér. Til hamingju með daginn, fallega ástin mín.“

KARLAKÓRAR SAMEINAST Í JÖTUNMÓÐ – MUN ÞAKIÐ HALDA?

0

Karlakórar Hreppamanna og Kópavogs renna saman í eitt á sameiginlegum tónleikum í Digraneskirkju á morgun, 3. febrúar.

Um 100 karlar munu kveða kulda – og hitaljóð í miklum jötunmóð. Mun þakið halda? Þorir þú að mæta?

Frítt inn.

Karlakórs Kópavogs

HARLEY DAVIDSON Í 110 ÁR

0

Þarna var ekki tjaldað til einnar nætur – William Harley og Arthur Davidson.

Hér er nýjasta útgáfan, model 2024: