Home Blog Page 230

DANSKUR ÞINGMAÐUR MEÐ 15 ÁRA KÆRUSTU

0

Danski þingmaðurinn Mike Fonseca er í kröppum dansi og pressaður af dönsku pressunni svo undir tekur fyrir að eiga 15 ára kærustu en sjálfur er þingmaðurinn 28 ára.

Þingmaðurinn, sem var fjölskylduvinur á heimili kærustunnar, segist hafa kynnst barninu þegar það var 10 ára en ekki átt í nánum samskiptum við stúlkuna fyrr en hún var 15 – en lögaldur er 18.

Fonseca var þingmaður Moderaterne (Hófsemdarflokksins) sem Lars Lökke Rasmussen fyrrum forsætisráðherra Danmerkur stofnaði þegar þegar hann klauf sig úr Venstre (gamli danski Framsóknarflokkurinn) vegna deilna um framtíðarsýn en þar hafði hann verið formaður.

Mike Foneseca hvarf úr þingflokknum vegna þessa og er nú í lausagöngu á danska þinginu með alla dönsku pressuna á hælunum – sjá hér.

FYRIR DAGA FLOKKUNNAR

0

Hér áður fyrr var sorp ekki flokkað heldur var öskuhaugunum lokað í júlí, líklega vegna sumarleyfa starfmanna eða kannski til að varast ofhitnun á haugunum ofanjarðar í sumarblíðunni.

FALSKAR TENNUR 91 ÁRS KONU BROTNUÐU Á GRUND – UNDARLEG VIÐBRÖGÐ

0

Starfstúlka missti falskar tennur 91 árs gamallar hreyfihamlaðrar konu á hjúkrunarheimilinu Grund í síðustu viku. Lofað var að Grund borgaði skaðann. Viku seinna fóru aðstandendur að spyrja eftir tönnunum vegna þess að hin háaldraða kona gat varla matast né talað. Þá kom í ljós að hún átti sjálf að fara með þær til tannsmiðs. Tennurnar fundust brotnar inni í skáp.

JODIE FOSTER OG FRÚ

0

Þessi mynd var tekin á Golden Globe hátíðinni skömmu áður en Laufey, eftirlæti þjóðarinnar, hlaut verðlaunin fyrir tónlist sína. Þarna er Íslandsvinurinn Jodie Foster ásamt eiginkonu sinni, Alexöndru Hedison, en þær hafa verið giftar síðan 2014. Alexandra er listakona, ljósmyndari, leikstjóri og leikkona.

BRÚÐKAUPSMYNDIN SEM KLIKKAÐI

0

Svona var brúðkaupsmyndin á kirkjutröppunum af frönsku leikkonunni Catherine Deneuve þegar hún gekk að eiga David Bailey 1965. Eilítil gola sem lyfti kjólnum. Bailey varð síðar heimsfrægur ljósmyndari og átti í ástarsambandi við mörg módela sinna. Um skilnað við Deneuve sagði hann:

„We just drifted apart. She was in Paris, I was in London. She phoned me once and said, ‘Oh, Bailey, it’s great.’ ‘What’s great?’ ‘We got divorced today.’ I said, ‘Is that great?’ She said, ‘Yes, it means now we can be lovers.“

SHERYL CROW (62)

0

Bandaríska tónlistarkonan Sheryl Crow er afmælisbarn helgarinnar (62). Þekkt fyrir kvikmyndtónlist sína sem urðu jafnvel smellir eins og Tomorrow Never Dies – James Bond. Eftir að hafa greinst með sérstakt afbrigði af brjóstakrabba stofnaði hún Sheryl Crow Imaging Center með skurðlækni sínum, Kristi Funk.

VILHJÁLMUR OG EGILL Í RIMMU UM MANNÚÐ

0

„Skattborgarar hafa aldrei verið spurðir um afstöðu sína til mannúðar,“ segir Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir og fyrrum alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag og heldur áfram:

„Það hefur ekki hvarflað að nokkrum ráðamanni að áætla kostnað af mannúð. Fólk með mannúð segir að hælisleitendur fari strax að vinna. Kann að vera! En þá fylgir fjölskyldusameiningin.Hætt er við að einum ungum hælisleitanda í fylgi nokkrir fullorðnir, jafnvel aldraðir.”

Egill Helgason fjölmiðlamaður rís þá upp með andmæli:

„Einn stærsti blettur á samvisku þessarar þjóðar er að hafa ekki tekið á móti fleiri gyðingum á árunum fyrir stríð. Sumir stjórnmálamenn stóðu reyndar í því að hrekja burt þá sem hingað komust. Við hefðum getað tekið á móti miklu fleiri – bjargað fleiri mannslífum. Þetta var í miðri kreppunni. Veldur ennþá vanlíðan. Nú er ríkidæmi okkar margfalt miðað við það sem þá var – og miðað við flestar aðrar þjóðir.“

BRAD PITT GRUNAÐUR UM ANDLITSLYFTINGU

0

Áratugir liða og lítið breytist.Brad Pitt vakti mikla athygli þegar hann mætti á Santa Barbara International Film Festival í gærkvöldi. Ekki bara vegna klæðnaðar en Brad var með hornspangargleraugu og klæddur í brúnt frá toppi til táar, heldur fékk orðrómur um meinta andlitslyftingu hans þarna byr undur báða vængi. Húðin aldrei sléttari þó sextíu ár séu að baki. Þeir áköfustu þóttust merkja ör við eyra sem er fylgifiskur anlitslyftinga. Sjá nánar hér.

Kom þá upp í hug viðstaddra hlutverk hans í kvikmyndinni um Benjamin Button sem eltist aftur á bak.

BARN TEKIÐ HÖNDUM (1960)

0
„Svo segir í yfirskrift með þessari mynd sem birtist í Morgunblaðinu árið 1960,“ segir Örn Jónasson á vefnum Gamlar ljósmyndir sem er einn sá fróðlegasti á netinu:

„Ekki kemur fram hvert tilefnið er, en Ólafur K. Magnússon sem var blaðaljósmyndari Morgunblaðsins í nær hálfa öld, fangaði þetta augnablik, en hann hafði gott auga fyrir ýmsu sem fyrir auga bar. Reyndar var barnið ekki handtekið, heldur sóttu lögreglumennirnar barnið fyrir utan verslun eina í miðbænum þar sem barnið hafði gleymst fyrir utan.

Sagan segir að stúlka ein sem var barnapía barnsins hafi komið við í þessari verslun og skilið barnið eftir fyrir utan verslunina á meðan hún brá sér inn. Þegar hún kom út úr versluninni, var hún eitthvað utan við sig og gleymdi barninu og fór sína leið í burtu.

Voru því margir farnir að undrast af hverju barnið væri svona lengi eitt og yfirgefið fyrir utan verslunina. Var því lögreglan kölluð til sem sótti barnið í vagninum og óku því niður á gömlu lögreglustöðina við Pósthússtræti þar sem nú er Pósthús Mathöll.“

EIGUM VIÐ AÐ HITTAST Í KAFFI?

0

Eigum við að hittast í kaffi?

Já, endilega. Hvar?

Hvað segirðu um Kex hostel? Alltaf svo huggulegt þar á pallinum úti.

Ok – see you there.