Home Blog Page 229

ALL YOU NEED IS LOVE

0

Elskendur allra landa sameinist! Til hamingju með daginn!

VALDÍS OG VALENTÍNUSARDAGURINN

0

„Það var Valdís Gunnarsdóttir, sem kynnti Ísland fyri Valentínusardegi, man vel þegar hún kom til mín, með þessa tillögu, hún vildi láta þennan dag vera líka til á Íslandi,“ segir Jón Ólafsson athafnamaður og stofnandi Bylgjunnar í tilefni dagsins:

„Það var sett mikið kynningarstarf í gang, eftir 2-3 ár var Valentínus orðin Ástar Goð hér sem annarsstaðar. “All you need is love”.

Valdís Gunnarsóttir lék stórt hlutverk þegar frjálst útvarp var að ryðja sér til rúms hér á landi en lést langt fyrir aldur fram í desember 2013 aðeins 55 ára.

ÖSKUDAGSMESSA Í HALLGRÍMSKIRKJU

0
Öskudagsmessa verður í Hallgrímsskirkju á morgun og hefst klukkan 10 fyrir hádegi. Er messan hluti af undirbúningi fyrir páskana.
Í Öskudagsmessunni verður altarisganga og fá þau sem fara í altaristgönguna að vera signd öskukrossi á enni sem er í samræmi við forna kristna hefð. Sr. Kristján Valur Ingólfsson sér um helgihaldið.

FORSETAHJÓNIN SAMAN Í GRINDAVÍK

0

Forseti Íslands og forsetafrú heimsóttu hjúkrunarheimilin í Reykjanesbæ, Heilbrigðisstofun Suðurnesja og miðstöð Almannavarna á svæðinu á laugardaginn. Með i för var yngsta dóttir þeirra, Edda Margrét. Er þetta í fyrsta sinn í töluverðan tíma sem forsetahjónin sjást saman í opnberum erindagjörðum og ætti að slá á sögusagnir sem geisað hafa um land allt um hugsanlega skilnað þeirra.

KRISTJÁN ÆTLAR AÐ GANGA HRINGINN EINS OG REYNIR PÉTUR

0

Jæja kæru vinir og fjölskylda. Hér er ég með stóra tilkynningu: einhvern tímann í nánustu framtíð ætla ég að labba hringinn í kringum landið eins og vinur minn, fyrirmynd og aðalgersemi Sólheima gerði árið 1985, Reynir Pétur Steinunnarson,“ segir Kristján Atli Sævarsson, félagi Reynis á Sólheimum í Grímnesi:

„Tilgangur göngu minnar er að safna fyrir nýjum brennsluofni fyrir leirgerð Sólheima því hinn ofninn er orðinn svo gamall. Ég ætla að ganga sömu leið og Reynir Pétur, en eins og þið vitið hefur vegurinn breyst mikið frá því árið 1985 og er alveg malbikaður og engin möl. Þetta verður mesta hreyfi-áskorun mín og ég er mjög spenntur. Haldið þið að ég geti það?“

FRAMSÓKN LAUMAST INN Í VG

0

Ragnar Auðun Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vinstri grænna. Sambýliskona hans, Karítas Ríkharðsdóttur, er fyrrum starfsmaður Framsóknarflokksins en nú sérfræðingur í samskiptum hjá Landsbankanum. Reyndar er Ragnar sonur Árna Þórs Sigurðsson fyrrum þingmanns VG og í framhaldi sendiherra VG í í ýmsum sendiráðum erlendis.

HANNES Í AFMÆLISGÍR Í RÍÓ

0

„Gaman að hitta tvær vinkonur mínar frá São Paulo á dansleiknum á Copacabana Palace gistihúsinu 10. febrúar, sem markar upphaf kjötkveðjuhátíðarinnar, Leilane Sabatini og Paula V. Ferrero,“ segir Hannes Hólmsteinn sem dvelur í Ríó í góðum gír:

„Ég hitti þær líka í fyrra, þar sem við vorum borðnautar. Þá hélt ég upp á sjötugsafmælið með þeim, sem bar upp á miðnætti á dansleiknum. Nú er sjötíu og eins árs afmælið í undirbúningi 19. febrúar og verður líklega grillveisla heima hjá mér.“

BOLLUDAGURINN Á AÐ STANDA Í VIKU EINS OG TIL FORNA

0

Nú berast fréttir þess efnis að Bolludagur á mánudegi sé að færast yfir á heila viku. En þannig var þetta alltaf þar til menn gleymdu því eða svo segir í Almanakinu:

Bolludagur er mánudagurinn í Föstuinngangi 7 vikum fyrir Páska en Föstuinngangur kallast síðustu þrír dagarnir fyrir Lönguföstu sem hefst á miðvikudegi með Öskudegi.

Algengt var í Kaþólskum sið að fastað væri á kjöt dagana tvo fyrir Lönguföstu og var það boðið í Þjóðveldislögunum. Önnur merki um siði tengda þessum degi er ekki að finna fyrr en á 19. öld. Í Sturlungu og Biskupasögum er talað um „að fasta við hvítan mat“ (mjólkurmat) í Föstuinngang.

Dönsk bolludagsbolla úr vínarbrauðsdeigi.
Dönsk bolludagsbolla úr vínarbrauðsdeigi.

Líklegt er að menn hafi nýtt sér þessa daga fyrir langt föstutímabil til að gæða sér á ýmsu góðgæti ekki síst brauðmeti. Í Dönskum heimildum frá því um 1700 er talað um hveitibollur sem muldar eru og hrærðar með mjólk og smjöri og borðaðar í Föstuinngang. Bolluát og feitmetisát virðist á öðrum Norðurlöndum reyndar hafa verið meir bundið við þriðjudaginn næsta í föstu. En á Íslandi hafa menn bundið þennan sið við mánudaginn, sennilega til að trufla ekki hefðbundinn matarsið Sprengidagsins. Á síðustu áratugum hefur bolluátið einnig færst að stórum hluta yfir á sunnudaginn.

CHARLES DARWIN (215)

0

Charles Darwin (1809-1882) ) hefði orðið 215 í dag. Ein áhrifamesta persóna sögunnar, náttúrufræðingur, líffræðingur og jarðfræðingur, sem sýndi fram á mannskepan væri komin af öpum í riti sínu, Theory of Evolution – Þróunarkenning Darwins. Hann fær óskalag með Monkees:

 

BJARGVÆTTIRNIR Á RÚV

0

Feðginin Arnar Björnsson og Kristjana Arnardóttir hafa birst sem frelsandi englar í dagskrá Ríkissjónvarpins en framganga þeirra á skjánum hefur hefur virkað sem lyftiduft á greiðendur afnotagjaldanna,

Arnar var eiginlega hættur í íþróttafréttum Stöðvar 2 þegar honum var kippt yfir í ríkisjötuna þar sem hann gengur í öll verk með glans og gæti samstarfsfólkið ýmislegt af honum lært. Svo dúkkaði Kristjana dóttir hans upp og glansar eins og pabbi, ekki bara í íþróttafréttum heldur einnig í spurninga – og skemmtiþáttum eins og ekkert væri.