Home Blog Page 228

PÉTURSBÚÐ MEÐ PUTTANN Á PÚLSINUM

0

Hvar fást bestu raksköfurnar? Hjá Axel kaupmanni í Pétursbúð, Bárugötu 15, 101 R.

LÓÐRÉTTI SKÓGURINN Í MÍLANÓ

0

Þessi bygging í Mílanó nefnist lóðrétti skógurinn – og rís undir nafni.

SONNY BONO (89)

0

Sonny Bono (1935-1998) sem skapaði stórstirnið Cher unga að aldri þegar hún var eiginkona hans, hefði orðið 89 ára í dag en hann lést fyrir aldarfjórðungi. Ýmsum sögum fór af hjónabandi þeirra Sonny & Cher en Sonny sneri sér að stjórnmálum, var bæjarstjóri í Palm Springs og þingmaður fyrir Kaliforníu. Hér er smellurinn sem keyrði þau upp 1965:

BRUNAVERÐIR Á PÖBBKVISS KALLAÐIR ÚT Í ELDSVOÐA

0

Slökkviliðið þurfti á öllu sínu að halda í gærkvöldi þegar eldur kom upp í Fellsmúla. Fyrst var vaktin kölluð út, svo frívaktin og svo allt liðið eins og það lagði sig. Þar á meðal voru slökkiviðsmenn að gera sér glaðan dag saman á pöbbkviss hjá Stefáni Pálssyni varabogargarfulltrúa VG sem lýsir þessu svona:

„Var með pöbbkviss hjá brunavörðum í kvöld. Pínkulítið sérstök tilfinning að upplifa það eftir því sem leið á kvöldið að fólkinu í salnum fækkaði jafnt og þétt eftir því sem fleiri voru kölluð út til að slökkva brunann í Hallarmúla. Slökkviliðsmenn eru mitt fólk!“

FRÚ FRIÐRIKA FÆR ÍSSKÁP

0

Þessi mynd var tekin þegar frú Friðrika fékk ísskáp.

ÖRNÓLFUR (83)

0

Örnólfur Árnason, lífskúnstner, rithöfundur og leiðsögumaður, er afmælisbarn dagsins, 83 ára. Hann gengur ekki í takt við flesta jafnaldra sína sem sestir eru niður til hvíldar heldur skipuleggur hann Asíuferðir út og suður, situr með ferðalöngum sínum í rútunum ytra og eys úr viskkubrunni sínum af þekkingu og reynslu þannig að úr verður brosandi skemmtiferð. Hér tekur Olga Guðrún systir hans lagið í tilefni dagsins:

SOFIÐ Á HLEMMI

0

Hlemmur hefur tekið á sig ýmsar myndir frá því að strætómiðstöðin var þar reist. Frá því að vera félagsmiðstöð unglinga og skjól utangarðsmanna í að verða glæsileg Mathöll millistéttarinnar þar sem fólk sefur í skýlunum fyrir utan og vaknar ekki endilega við fyrsta hanagal.

TOLLI OG FACEBOOK

0
„Að skrifa eithvað á Feisbók er auðvitað samskifti við ykkur þar úti,“hæ hér er ég og eitthvað að segja“ og vissulega snúast færslurnar hjá manni um það að vera inná og taka þátt, vera með,“ segir fjöllistamaðurinn Tolli Morthens:
„En svo er þetta líka samtal við sjálfan mig, að staðfesta eitthvað frá mér til mín og setja eitthvað inn sem skiftir máli fyrir mig og „partana“ mína.“

VALENTÍNUSARVÍSA PÁLS

0
Læt ég fyrir ljósan dag
ljós um húsið skína
ekki til að yrkja brag
eða koma neinu í lag
heldur til að horfa á konu mína.
Páll Ólafsson var fæddur á Dvergasteini í Seyðisfirði og alinn upp á Kolfreyjustað í Fáskrúðsfirði en þar var faðir hans, Ólafur Indriðason, prestur. Páll var bóndi á nokkrum bæjum á Austurlandi en lengst bjó hann á Hallfreðarstöðum í Hróarstungu. Hann var tvígiftur, átti fyrst Þórunni Pálsdóttur, en eftir að hún dó átti hann Ragnhildi Björnsdóttur. Hann unni Ragnhildi afar heitt og orti til hennar margar fallegar ástavísur. Páll var einstaklega vel hagmæltur og urðu margar lausavísna hans landfleygar. Þá orti hann og talsvert af lengri ljóðum. Skáldskapur hans er yfirleitt í rómantískum anda, léttur og lipur.

ROLLS ROYCE Í AFMÆLISGJÖF

0

Mick Jagger gladdi unnustu sína til margra ára og barnsmóður, Mel Hamrick, á 37. afmælisdegi hennar með því að gefa henni Rolls Royce bifreið. Hann kostaði milljón dollara.