FLUGDÓLGUR GÓLAÐI EINS OG KONA
HÓSTAKÓRINN Í HÖRPU – „ANNAÐ HVORT FERÐ ÞÚ ÚT EÐA ÉG“
HANNES HÓLMSTEINN (71)
„Í dag er ég sjötíu og eins árs, segir Hannes Hómsteinn prófessor í skeyti frá Ríó í Brasilíu þar sem hann dvelur:
„Brasilíumenn kunna að njóta lífsins. Lífið er ekki talið í fjölda stundanna, heldur gæðum þeirra. Það er best að njóta þess sem mest og best, á meðan það er, og hafa minni áhyggjur af bankareikningum og greiðslukortum!“
Hér eru Rolling Stones í Ríó 2006 á stærstu rokktónleikum sögunnar – 1,5 milljónir gesta á Copacabana ströndinni.
UPPSELT Á SVIPSTUNDU HJÁ ERNU MIST
„Góðir hlutir gerast hægt. Undirbúningur sýningarinnar tók tvö ár en síðan seldust öll verkin 12 á svipstundu,“ segir Skúli Gunnlaugsson læknir og listaverkasafnari um sýningu Ernu Mist í galleríi Jóns Óskars og Huldu Hákon, Kontórnum, fyrir ofan Gráa köttinn á Hverfisgötu:
„Opnunin í gær heppnaðist frábærlega en því miður fengu færri en vildu. Svona er listin óútreiknanleg. En þetta er gott veganesti fyrir Ernu sem nú heldur til Los Angeles og opnar þar einkasýningu í lok þessa mánaðar. Svo þarf hún eflaust langt frí eftir þetta allt saman. Um leið og við þökkum öllum fyrir komuna þá hvetjum við listaáhugafólk til að koma og sjá. Opið alla daga til 7. mars.“
JÓN VIÐAR FÓR Á LÚNU
„Fór að sjá „Lúnu“ í gærkveldi,“ segir Jón Viðar leiklistargagnrýnandi þjóðarinnar no. 1 og svo kemur það:
„Ég ætla ekki að skrifa hér neins konar leikdóm, nema hvað að ég naut sýningarinnar þrátt fyrir óvenjulega lengd án hlés og sýndist flestir aðrir gera slíkt hið sama, þótt salurinn væri raunar framan af áberandi varkár í viðbrögðum. Verð þó að segja að Heiðar snyrtir er enn ein rósin í hnappagat Hilmis Snæs sem skilar meistaralega fágaðri og yfirvegaðri túlkun sem allir leikhúsvinir verða að sjá. Og útlitið er gott: áhorfendur streyma á sýninguna sem eins og við munum fékk alveg ókeypis auglýsingu úr óvæntri átt (eða ekki óvæntri) og nýtur þess nú.“
SVARTI FOLINN Á TOPPNUM

Svarti folinn Hylur fæddur 2013 með hæstu einkunn yfir 9’0 fyrir byggingu. Hæst dæmdi stóðhestur í heimi af íslensku bergi. Faðir Herkúles frá Ragnheiðarstöðum, móðir Rás frá Ragnheiðarstöðum.
BMW 1950.
Þessi hjón keyptu sér bíl 1950, fín tegund, BMW Isetta. Þð var sest inn í bílinn að framanverðu, svo lokað og ekið af stað.
GÍSLI MARTEINN HLÍTIR RÁÐLEGGINGUM OG GLANSAR
Gísli Marteinn, skemmtistjóri Ríkissjónvarpsins á föstudagskvöldum, hefur lengi legið undir ámæli og verið skammaður fyrir að leita ekki langt að gestum í þætti sína – helst ekki lengra en út á næsta kaffihús.
En nú hefur hann tekið sér tak, hlítir ráðlegginum og glansaði í gærkvöldi með frábæra gesti úr ýmsum áttum, flott tónlistartriði og Berglind Festival er sífellt að ná betri tökum á absurd viðtölum sínum og glansar líka. Flott Festival.
ED SHEERAN (33)
Ed Sheeran er afmælisbarn dagsins (33), eitt vinsælasta söngvaskáld sinnar kynslóðar, rétt rúmlega þrítugur og hefur þegar selt 150 milljónir platna um heim allan.
GRJÓNAGRAUTUR EDDU HANS STEINGRÍMS
Gamall Framsóknarmaður skrifar:
–
Um miðjan febrúar árið 1984 – fyrir 40 árum. Steingrímur Hermansson í sjónvarpi þar sem Ásmundur Stefánsson gerði harða hríð að forsætisráðherra. Sagði launafólk vera í slæmri stöðu vegna efnahagsmála og kjaraskerðinga. Fjöldi fólk þyrfti í harðærinu að lifa á grjónagraut:
„Já, mér finnst nú grjónagrautur góður matur,“ sagði landsfaðirinn.
Gagnrýnin þangaði, Ásmundur tapaði debattinum. EIR fór í símann og sendi GVA í Mávanesið – þar sem Edda kona Steingríms var við eldhúsverkin. Fréttamál í allra hæsta gæðaflokki.

