Home Blog Page 226

NAGLADEKK Í REYKJAVÍK RÁÐGÁTA

0

„Var sunnan heiða um helgina og vakti það eftirtekt mína hvað götur Reykjavíkur og nágrennis voru slitnar af nagladekkja-umferð, auk drullunnar sem fylgir,“ segir Þröstur  Jónsson sveitastjórnarmaður Miðflokksins á Egilsstöðum:

„Það er nokkuð langt síðan að maður uppgötvaði að nagladekk gefa fyrst og frems falskt öryggi. Mjúk vetrardekk tam. frá Yokohama virðast af minni reynslu gera gott betur en negld dekk, jafnvel við hálustu erfiðustu aðstæður eins og niður Stafina í Fjarðarheið.

Ég get ekki séð að þessi mjúku dekk slitni eitthvað meira en önnur.

Hvað menn eru að gera á nagladekkjum suður í Reykjavík er mér ráðgáta, þar sem allt er saltað í tætlur um leið og hitastigið fer niður fyrir frostmark.

Er ekki tími til kominn að leggja álögur á nagladekk? Menn geta svo sem valið þau, en borga þá bara fyrir aukið vegaslit og sóðaskapinn sem af hlýst.“

WC-FISKABÚR

0

Hér hefur salernisskál verið breytt í fiskabúr. Hvernig á þetta eiginlega að virka?

BÓKSALI FLYTUR

0

Bóksali í Southampton á Englandi óskaði eftir aðstoð viðskiptavina sinna að flytja bókalager sinn í nýja verslun til að spara húsaleigu sem hafði hækkað upp úr öllu valdi.

Ekki stóð á viðbrögðum því 250 manns á öllum aldri mættu og mynduðu keðjuröð og létu þúsundir bóka ganga frá hendi til handar í nýju bókabúðina sem var handan hornsins og tók þetta aðeins klukkustund.

NINA SIMONE (91)

0

Nina Simone (1933-2003) var frumkvöðull í því að taka upp lög annarra sem henni þótti í varið og gera að sínum. Áhrif hennar skutu víða niður kolli; Elton John, Adele, David Bowie, Madonna og Aretha Franklin. Að auki var hún baráttukona fyrir mannréttindum sem um munaði.

SVIMAKAST SIGMUNDAR – „Í HVAÐA HEIMI BÝR ÞETTA FÓLK?“

0

„Mig svimaði eftir að hafa lesið kynningu ríkisstjórnarinnar á svo kölluðum aðgerðum í útlendingamálum,“ segir Sigmundur Davíð fyrrum forsætisráðherra og formaður Miðslokkssins:

„Líklega var það vegna allrar froðunnar eða reiðinnar yfir því að borgurum landsins skuli boðið upp á aðra eins óstjórn á sama tíma og hver stjórnmálamaðurinn af öðrum viðurkennir að málaflokkurinn sé stjórnlaus.

Þarna birtast engir tilburðir til að ná stjórn á vandanum. Bara leiðir til að viðhalda honun.

Aukin þjónusta, aukinn kostnaður og nýjar aðferðir fyrir ríkið til að sölsa undir sig húsnæði til að hýsa hælisleitendur.

Einnig er það beinlínis gert að markmiði að fá fleira fólk til að flytjast til landsins frá ríkjum utan EES (á sama tíma og erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað um meira en 15 fyrir hvern 1 Íslending sem bætist við).

Það er að vísu hent inn setningum á borð við „Með því að fækka umsóknum sem ekki uppylla skilyrði um vernd og auka skilvirkni í afgreiðslu umsókna sparast fé…” Þetta fé á að nota til að auka þjónustuna. Ekki er útskýrt hvers vegna umsóknum ætti að fækka með meiri þjónustu.

Talsvert er fjallað um nýja hugtakið „inngildingu”, þ.e. að Íslendingar lagi sig að útlendingum. Orðið aðlögun er ekki nefnt. Þó stendur til að gefa út bæklinga á ýmsum tungumálum um hvaða reglur gildi á Íslandi. Þannig verður hægt að lesa á arabísku um jafnan rétt „allra” kynja. Það hlýtur að leysa málið!

Fram kemur að „farið verði í sérstakt tveggja ára kynnningarták til að auka umburðarlyndi gagnvart íslensku með hreim”. Í hvaða heimi býr þetta fólk?

Ég veit ekki betur en að Íslendingar kunni mjög að meta það þegar útlendingar leggja á sig að læra málið. Vandinn liggur ekki þar.

Tungutakið og áherslurnar benda til að skjalið og stefnan séu fyrst og fremst unnin í félagsmálaráðuneytinu. VG fær allt sitt strax en í lokin er þó getið um að enn standi til að ráðast í breytingar á regluverki á sviði verndarmála til samræmingar við löggjöf á Norðurlöndum.

Þið getið sjálf metið líkurnar á að það klárist hjá þessari ríkisstjórn.

VG bíta svo höfuðið af skömminni með því að láta þingflokka Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks afgreiða málið úr sínum þingflokkum fyrst á meðan þeir segjast þurfa meiri tíma til að velta því fyrir sér.

Niðurlægingin fullkomnuð.“

UMHVERFISMAT VÍKUR FYRIR NÝJU LANDSLAGI VERKFRÆÐINGA

0

„Maðurinn geng náttúruöflunum!“ segir Sigurður Már Jónsson blaðamaður og fyrrum upplysingafulltrúi ríkisstjórnarinnar:

„Þessa mynd fann ég á síðu áhugamanna um Caterpillar jarðýtur á Íslandi (fyrir lengra komna má þarna sjá Komatsu 375, cat D9R, cat D11R, cat D11og liebherr 776).

En myndin sýnir þá einstöku baráttu sem fer nú fram á Reykjanesinu þar sem sífellt stærri jarðýtur hamast við að skapa mennskt landslag til að verjast því óvænta sem kemur úr iðrum jarðar. Fyrir stuttu var svo komið að ekki mátti hreyfa stein þarna án vandlegs umhverfismats en nú vinna tröllauknar vinnuvélar við að ýta upp nýju landslagi eftir teikningum verkfræðinga sem breytast frá degi til dags. Hið nýja ómótaða Ísland hefur tekið við.“

KOKKA OPNAR KAFFIHÚS Á EFRI HÆÐINNI

0

Tísku og búsáhaldaverslunin Kokka á Laugavegi hefur opnað kaffihús á efri hæðinni hjá sér og eigendurnir segja:

„Líkt og mörg ykkar vita þá opnuðum við kaffihús á efri hæðinni í vikunni sem leið. Við erum ótrúlega þakklát fyrir móttökurnar og stemninguna sem skapast hefur hérna. Við viljum að Kokka sé fjölskylduvænn vinnustaður ásamt því að leggja vinnu og metnað í þetta nýja ævintýri.“

FJÖRUGT ÁSTALÍF PRÓFESSORA Í HÁSKÓLANUM

0

Fréttaskeyti úr Háskóla Íslands:

Guðni Elísson prófessor í bókmenntafræði og kona hans Alda Björk Valdimarsdóttir doktor í bókmenntafræði eru skilin. Þau kynntust er hún nam hjá honum. Guðni er kominn með nýja og hún er líka doktor og fyrrum nemandi hans, Sigrún Margrét Guðmundsdóttir.

SPAUGSTOFAN Á GRAND HÓTEL

0

Gamla Spaugstofan var mynduð á Grand Hótel í Reykjavík í morgun – allir saman. Þjónarnir létu sem ekkert væri en gestir skáskutu augum yfir til þeirra og hugsuðu: „Hvað er að gerast?“

BRENDA „VERA“ BLETHYN (77)

0

Eftirlæti margra í sjónvarpi, Brenda Blethyn sem leikur Veru rannsóknarlögreglu í Englandi, er afmælisbarn dagsins (77). Reyndar er Brenda þekktust fyrir hlutverk sitt í Secrets & Lies sem hún hlaut Baftaverðlaun fyrir og tilheyrandi heimsfrægð. En Vera stendur fyrir sínu á efri árum og brillerar á sinn sérstaka hátt.