Þessi unga stúlka var kjörin Miss America 1924 eftir að hafa orðið Miss Fíladelfia skömmu áður. Ekki er vitað um afdrif hennar.
GEORGE HARRISON (81)
George Harrison (1943-2001) gítarleikari Bítlanna er afmælisbarn helgarinnar, hefði orðið 81 árs á sunnudaginn. Stundum nefndur þögli Bítillinn en hann átti sinn eigin tón líkt og félagar hans John, Paul og Ringo. Hvílíkur kvartett.
TAPAÐI TRÚLOFUNARHRING Í AIRBNB
Erlend kona sem dvaldi í Airbnb íbúð í miðbæ Reykjavíkur trúlofaði sig þar og setti upp hring frá væntanlegum eiginmanni. Svo hvarf hringurinn og konan sá þá ekki annað ráð en festa upp auglýsingu á ljósastaur á Bjarnarstíg: Lost ring – Reward to finder!
RATCLIFFE VIÐ HEGNINGARHÚSIÐ
Sérhannaður Land Rover auðmannsins og Íslandsvinarins Jim Ratcliffe var lagt við Hegningarhúsið á Skólavörðustíg í gær. Land Rover er eitt helsta áhugamál Ratcliffe og merkir hann framleiðsluna Ineos Grenadier en Ineos er nafn á einu fyrirtækja hans. Líklega hefur Ratcliffe sjálfur ekki verið þarna á ferð heldur frekar starfsmaður hans hér á landi sem hefur þá fengið þennan „gullvagn“ til afnota.
Þetta er dýrasta útgáfa af Land Rover sem framleitt hefur verið og íslenski spaðinn sem lenti í fréttunum um daginn þegar hann keypti Benz jeppa á 60 milljónir bliknar í samanburði.
AMMA ELLIÐA DÆMD TIL DAUÐA
„Hún langalangaamma mín, Guðrún Þórðardóttir, var dæmd til dauða árið 1857 fyrir það að eignast barn sem var getið af fósturföður hennar,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi sem var að grúska í ættfræði sinni:
„Dómnum var aldrei fullnægt. Frá henni eru komnir 1886 afkomendur, nú á lífi eru 1.783 einstaklingar. Hvorki ég né þau hefðum nokkurn tímann orðið til hefði dómnum yfir langalangömmu verið framfylgt.“
HANNES HEIM FRÁ RÍÓ
„Rio til Lissabon, níu tíma flug,“ segir Hannes Hólmsteinn sem dvalið hefur í Ríó í Brasilíu að undanförnu í gleðskap og gríni eins og hann hefur skrásett skemmtilega á samfélagsmiðlum.
AFMÆLISSÖNGUR JÓNS BALDVINS Í RIIGIKOGU
„Eistneskir þingmenn sungu afmælissönginn fyrir Jón Baldvin Hannibalsson í Riigikogu, eistneska þinghúsinu í gær,“ segir Þórir Guðmundsson fjölmiðlamaður og nú starfsmaður Atlantshafsbandalagsins í Eistlandi á vegum íslenska ríkisins:
„Tilefnið var að honum hafði verið boðið að halda ræðu um aðdraganda þess að Ísland tók forystu um að viðurkenna endurreisn sjálfstæðis Eista árið 1991. Ræðuna hélt Jón Baldvin á sínum 85. afmælisdegi. Þarna er kona hans, Bryndís Schram, til vinstri en hægra megin er Kersti Kaljulaid, fyrrverandi forseti Eistlands. Til fundarins voru sérstaklega boðnir ungir þingmenn til að tryggja að þessir afdrifaríku dagar falli ekki í gleymsku.“
SVAVAR ÖRN (50)
Svavar Örn, hárgreiðslumeistari fræga fólksins um árabil, er fimmtugur í dag. Svavar Örn er skemmtilegur rakari sem kann sitt fag og hann fær óskalagið I´m Gonna Wash That Man Right Out Of My Head.
ÆVINTÝRASTÖRF Á HÁLENDINU Í BOÐI
Highland Base sem rekur ferðaþjónustuna í Kerlingafjöllum auglýsir ævintýraleg störf á hálendi Íslands:
- Ræstingafólk
- Tjaldverðir
- Þjónusta í sal.
- Fjögur störf í boði.
- Umsóknir hér.
TOBBA Í KERFINU
Tobba Marinós, ein helsta dægurstjarna sinnar kynslóðar, hefur verið ráðin upplýsingaulltrúi viðskipta – og menningaráðuneytisins sem Lilja Alfreðsdóttir stýrir. Umsækjendur voru 43 og Tobba vann.
„Ég hlakka til að segja ykkur frá öllu því skemmtilega sem hið blómlega menningar- og viðskiptaráðuneytið stendur fyrir. Til dæmis eru fjölda margir styrkir auglýstir á síðu ráðuneytisins.“

