Home Blog Page 224

SVANUR MÁR MEÐ FYRSTU BÓKINA UM SIGUR RÓS Á HEIMSMARKAÐ

0

„Bókin fjallar um stofnun Sigur Rósar, þann 4. janúar 1994, og hljómsveitinni er fylgt fram til þess tíma er Ágætis byrjun slær í gegn á heimsvísu í kringum 2000-1. Hún er unnin í sagnfræðilegum stíl, með tilvísunum og neðanmálsgreinum og góðri heimildaskrá. Fyrsta svona bókin um Sigur Rós í heiminum og vonandi sæmileg hjá mé,“ segir Svanur Már Snorrrason fjömiðlamaður og nú rithöfundur:

„Allt er tilbúið nema að samþykkja prenttilboð. Íslensk og ensk útgáfa af bókinni verður prentuð á sama tíma, og svo er í vinnslu að þýða bókina á japönsku – og í raun er sú vinna kominn vel af stað. Nákvæm dagsetning liggur ekki fyrir, en það verður fljótlega. Mjög fljótlega.  Bókin mun bera nafnið: …það besta sem guð hefur skapað… Von sem varð að Ágætis byrjun – Sagan af Sigur Rós. Gotti Bernhöft gerði kápuna, en hann gerði einmitt plötuumslagið af Ágætis byrjun.  Ég fór í ritlist í haust – hætti í blaðamennskunni og áfangi í ritlist varð að heilli bók um bestu íslensku hljómsveit allra tíma og þótt víðar væri leitað. Huldar Breiðfjörð lektor í ritlist á þakkir skilið fyrir að hlúa svona vel að mér.“

JOHNNY CASH (92)

0

Johnny Cash (1932-2003) er afmælisbarn dagsins (92). Hjá Johnny Cash fá menn allt fyrir peninginn.

HLJÓMPLÖTUM VIKINGS HEIÐARS STOLIÐ ÚR PLÖTUBÚÐUM

0

Borið hefur á þjófnaði á plötum píanósnillingsins Víking Heiðars í hljómplötuverslunum erlendis. Því hafa kaupmenn gripð til þess ráð að fjarlægja þær úr hillum og færa í skjól aftan við afgreiðsluborð. Slíkur er áhuginn á Víkingi Heiðari.

HEIMILISLAUSIR TJALDA VIÐ VALDASTOFNANIR Í WASHINGTON DC

0

Deilt hefur verið um tjaldbúðir á Austurvelli fyrir framan Alþingishúsið en það er víðar tjaldað á túnum nærri opinberum valdastofnunum. Þessi mynd sýnir tjaldbúðir í garði við helstu stjórnsýslubyggingar Bandaríkjanna í Washington DC.

Þarna eru ekki mótmælendur að vekja á sér athygli líkt og á Austurvelli heldur heimilislaust fólk sem á ekki í nein hús að venda í Washington. Tjöldin hafa verið þarna lengi og fólkið er ekkert að fara því það getur ekkert farið. Það vita yfirvöld og sitja því hjá. Ekki bara þarna heldur víða um Bandaríkin.

JÓHANN OG MARGRÉT Í FANGELSI UNDAN STRÖND MAURITIUS

0

„Við erum stödd í 4 stjörnu fangelsi undir strönd Maurasitius 25. febrúar 2024. Við erum föst um borð í skipinu!,“ segir Jóhann Helgi Hlöðversson athafnamaður sem er í heimssiglingu ásamt Margréti Ormsdóttur eiginkonu sinni:

„Það kom upp rassakvef og við fáum ekki að taka land! Við áttum að vera í Réunion í gær en þeir neituðu að taka við okkur. Þess í stað áttum við að taka land á Mauritius í gærkveldi kl 19 en höfum ekki enn fengið landvistarleyfi. Í gærkveldi kom tilkynning um að heilbrigðisyfirvöld Mauritius væru komin um borð og þau óskuðu eftir að fá að ræða við farþega. Þeir óttast Kólerusýkingu! Það tekur allt að 24-48 klst að fá það staðfest. Um borð eru 2400 farþegar og rúmlega þúsund starfsmenn. Skipstjórinn var að tilkynna okkur að við fáum ekki að taka land fyrr en á þriðjudaginn! Eftir tvo daga og það er mikill pirringur um borð. Flestir pökkuðu í gærkveldi og létu töskurnar út fyrir dyrnar sínar þar sem þær voru settar niður í lest. Þetta ástand hefur gríðarlega keðjuverkun þar sem 2-3000 manns á leið úr skipinu eiga bókuð flug eða hótel og sami fjöldi eru núna að bíða á bryggjunni eftir að komast um borð. Eins er öll ferðaáætlun skipsins í uppnámi og sem þar með hefur áhrif á komandi farþega sem flestir hafa pantað ferð frá fyrirfram ákveðnum stað á ákveðnum tíma. Nú þegar er farið að bera á skorti á ýmsum matvælum eins til dæmis eggjum og morgunkorni. Við Magga ákváðum að láta þetta ekki eyðileggja fyrir okkur daginn, sóttum handklæði og lögðumst í sólbað. Viti menn á sama augnabliki varð skýfall og við urðum frá að hverfa.“

KONUDAGUR ERLU

0

„Dreymdi að ég væri með túrverki,“ segir Erla Hlynsdóttir fjölmiðlakona. „Vaknaði og er alls ekki með neina túrverki. Gleðilegan konudag, ladies!“

DÆGURSKÁLD HLJÓMA (82)

0

Þorsteinn Eggertsson textahöfundur og myndlistarmaður er afmælisbarn dagsins (82). Þorsteinn ólst á kantinum hjá Hljómum í Keflavík og byrjaði ungur að dæla í þá textum við tónlist Gunnars Þórðarsonar og félaga sem kom á færibandi – og textar Þorsteins líka. Hann var eiginlega fimmti Hljóminn. Hér er Lífsgleði:

PÆLINGAR JÁRSNSMIÐSINS

0
„Lítið hef ég fundið um hvernig stjörnvöld landa, bæja og borga, bregðast við ef íbúar þurfa að flýja heimili sín vegna nátturuhamfara og annara manngerða hamfara, um tíma eða frambúðar,“ segir Sveinn Markússon járnlistamaður í Hafnarfirði sem getur orðið hættusvæði:
„Nú er ég aðalega að spá í hvernig fólk fær bætt híbýli sín að fullu eða jafnvel ekki.
Ekki er ég komin langt í mínu grúski, enn rakst á áhugaverða grein um stórslysið í og við Fukushima.

MELÓDÍUR MINNINGANNA – GUÐRÚNAR Á. SÍMONAR 100 ÁRA

0

„Mig langar að heiðra með nokkrum orðum 100 ára minningu söngkonunnar góðu, Guðrúnar Á. Símonar, sem var ein af okkar albestu er hér á landi hafa komið fram. Það er svo sem löngu vitað,“ segir Jón Kr. Ólafsson söngvari – Melódíur minninganna í Bíldudal – í minningagrein í Morgunblaðinu í dag:

 

„Guðrún var ung þegar hún kom fyrst fram, um 15 ára, þá mest meðal vina og kunningja. Á sínum tíma kom svo að því að Bjarni Böðvarsson hljómsveitarstjóri heyrði Guðrúnu syngja og eftir það söng hún með hljómsveit hans um nokkurra ára skeið og kom þá fyrst fram í útvarpi, þá um 17 ára gömul. Hreif hún alla sem til heyrðu með söng sínum og var þá stundum kölluð Deanna Durbin Reykjavíkur eða bara Íslands. Guðrún fór snemma til náms til útlanda, til Bretlands og Ítalíu. Hún söng inn á margar plötur, þar má nefna Fálkann og Íslenska tóna. Á seinni árum gáfu SG hljómplötur út þriggja platna sólóalbúm. Einnig gáfu SG hljómplötur út jólaplötu þar sem Guðrún og Guðmundur Jónsson sungu saman. Síðan var það á 40 ára söngafmæli hennar þegar Guðrún ásamt mörgum öðrum söngvurum kom fram. Þau fylltu Háskólabíó fimm sinnum sem var glæsilegt og öllum til sóma. Ég vil líka í þessum skrifum heiðra minningu tveggja listamanna sem voru á sama aldri og Guðrún Á., en þeir eru Haukur Morthens söngvari og Hannes Pálsson ljósmyndari. Ég þakka þeim öllum góð kynni mér til handa. Með vinsemd og virðingu, Jón Kr. Ólafsson söngvari.“

Tengd frétt:

DAGUR HRIFINN AF SNYRTISTOFUM Á LAUGAVEGI

0

„Laugavegurinn hefur reyndar aldrei verið líflegri og skemmtilegri en einmitt síðustu misseri. Ekki þarf annað en að rölta þar um til að sannfærast um það, mæli reyndar einnig með samburði við gamlar myndir,“ segir Dagur B. Eggertsson fyrrum borgarstjóri vegna umræðu um snyrtistofur útlendinga sem spretta eins og gorkúlur upp á Laugavegi:

„Hvet alla til að líta við á snyrtistofunum og spjalla við eigendurna sem oft hafa skemmtilegar sögur að segja. Og prófa. Reyndar skilst mér að skynsamlegt sé að panta tíma með einhverjum fyrirvara til að prófa – því þær eru sumar býsna umsetnar.“