Home Blog Page 223

LÍFEYRISSJÓÐIR SUKKA MEÐ SJÁLFSTÖKULIÐI

0
„Vihjálmur Birgisson vakti máls á því í fyrra að lífeyrissjóðirnir eiga um 3/4 hlutafjár, bæði í Högum og Festi,“ segir Ragnar Önundarson samfélagsrýnir og fyrrum bankastjóri:
Hagar eiga eftirfarandi fyrirtæki:
• Bónus
• Hagkaup
• Olís
• Aðföng
• Bananar
• Zara
• Stórkaup
• Eldum rétt
Festi á eftirfarandi fyrirtæki:
• Krónuna
• Elko
• N1
Hér er um augljósa hringamyndun að ræða. Þetta hefur ekki bara gerst fyrir framan nefið á Samkeppniseftirlitinu, stofnunin hefur gefið leyfi sitt fyrir þessu….Fákeppni og sjálftaka er að verða eitt mesta böl samfélagsins…Ástæða er til að stjórnvöld bregðist við sjálftöku forréttindafólksins. Hættið nú að rífast og takið á þessu!“

WEST SIDE STORY

0

„Ég óska eftir innsýn frá íbúum Vesturbæjar um hvað einkennir hverfið. Það gæti verið bygging, gróður, gata, landslag, dýr, menning – hvað sem er. Ég er að vinna að lokaverkefninu mínu í Listaháskólanum og þætti vænt um að heyra frá ykkur.,“ segir Emelía Bjarkar. Og ekki stendur á viðbrögðum:

Egil Helgason sjónvarpsstjarna: Nokkuð stórir garðar – gróður – gamla höfnin sem eitt sinn var líka leiksvæði barna í hverfinu – barnvænt umhverfi og reyndar vænt fyrir eldra fólk líka – gott til göngu – því miður of mikil bílamergð í stæðum núorðið – ágætt samræmi í byggingastíl og stærð húsa – mitt viðhorf mótast af því að hafa búið í Vesturbænum norðan Hringbrautar.

Ólafur Ísleifsson fv. alþingismaður: Ekki missa af dýrlegum arkitektúr. Dæmi: Byggingar við Melatorg. Melaskólinn, Neskirkja, Hagaskóli, Hótel Saga, Háskólabíó, Birkimelsblokkin, húsin í kring. Tékkaðu á höfundum þessara bygginga. Farðu um hverfið og skoðaðu byggingardjásnin. Dæmi: Kvisthagi 12. Mörg svona dæmi. Þetta er bara byrjunin. Þú hefir úr gríðarmiklu efni að moða. Gangi þér vel.“

GÁTA DAGSINS

0

Veitingamaðurinn tók sér pásu í anddyrinu og beið þess sem kvöldið myndi færa.

  • Hver er veitingastaðurinn?
  • Hver er veitingamaðurinn?
  • Hver á málverkin á veggnum?
  • Verðlaun verða veitt: Hakkabuff með lauksósu og spældu eggi fyrir tvo frá Matstöðinni á Höfða.

BRIAN JONES (82)

0

Brian Jones (1942-1969) stofnandi Rolling Stones er afmælisbarn dagsins (82). Sveitarforingi þar til Mick Jagger og Keith Richard ráku hann vegna óreglu og tóku yfir. Hann var sá myndarlegasti í hópnum, lék á öll hljóðfæri en drukknaði í sundlauginni heima hjá sér aðeins 27 ára gamall. Það var synd.

TATTÚKÓNGURINN Á FOOD & FUN

0

Danski meistarakokkurinn Jesper Krabbe er farinn að hita upp fyrir Food & Fun í Reykjavík 6.-10 mars. Kokkarnir á veitingastaðnum Brút í Pósthússtræti eru orðnir spenntir:

„Við hlökkum rosalega til að taka á móti honum enda var alveg brjálæðislega gaman hjá okkur í fyrra.“

Ekki er nóg með að Jesper sé frábær kokkur heldur er líka gaman að sjá hann elda í stutterma bol því hann er með tattú á hægri öxl, grillpulsa á gaffli, aðeins neðar er kartöfluplanta og sjóðandi pottur á hægri öxl.

HVAÐAN ERTU?

0
maður
hvaðan ertu?
maður
þú ert þaðan
sem minningar afa þíns og ömmu
sitja á hverri þúfu
hverjum hól
í hverjum læk
undir hverju fjalli
maður
þú ert til orðinn
úr minningum ættar þinnar
Jónatan Hermannsson

ÁSI Í BÆ 110

0

Í dag er fæðingardagur Ása í Bæ. 110 ár frá fæðingu hans.

STREISAND SYNGUR SÖGUR

0

Barbra Streisand tók við verðlaunum fyrir ævistarf sitt um síðustu helgi – Life Achievement Award at the 30th Screen Actors Guild Awards.

„Það er frábært að fá þessi verðlaun, sérstaklega vegna þess að þú ert látin vita fyrirfram að þú fáir þau. Ef ekki þá brosir þú bara,“ sagði Barbra í þakkarræðu sinni.

Veislustjórinn hafði á orði að að að Barbra léti sér ekki nægja að syngja sína söngva heldur væri hún frekar og ekki síður að segja sögu.

ELIZABETH TAYLOR (92)

0

Elizabeth Taylor (1932-2011) hefði orðið 92 ára í dag. Líklega þekktasta kvikmyndastjarna sinnar samtíðar. Tvisvar fékk hún Óskarinn og giftist átta sinnum.

BUBBI VILL LÖGLEIÐA KANNABIS

0

Þjóðverjar lögleiða kannabis, leyfilegt verður að vera með 25 grömm í vasanum, 50 grömm heima og þrjár plöntur út í glugga. Bubbi stekkur á vagninn:

„Hættum að fangelsa fólk fyrir að reykja gras lögleiðum það – komið nóg af fullum fangelsum af fólki sem notar gras eða hass.“