Home Blog Page 222

RAGNHILDUR STEINUNN Í EINS KJÓL OG PRINSESSAN AF WALES

0

Ragnhildur Steinunn var í konunglega skreyttum kjól þegar hún kynnti Eurovison þáttakendur í gærkvöldi. Alveg eins kjól og Katrín prinsessa af Wales þegar hún heilsaði upp á James Bond.

FISKIKÓNGURINN Á TVÆR SYSTUR SEM HEITA LOVÍSA

0

„Ég á tvær systur sem heita Lovísa,“ segir fiskikóngurinn Kristján Berg og þykir sumum skrýtið. En ástæðan er einföld:

„Þær eru báðar hálfsystur mínar. Lovísu Ásgeirsdóttur hef ég umgengist allt mitt líf og þekki út og inn. Elska hana mikið. Hina Lovís – Lútherdóttur, hef ég ekki umgengist, aðeins hitt hana 5-6 sinnum á ævinni.

Ég þurfti að fara í klippingu. Vissi að hún er að vinna sem hárgreiðslukona/klippari, á Aristo í Mosó. Ég ákvað að panta tíma hjá systur, biðja hana um að klippa mig. Við áttum notalega stund saman og fengum okkur kaffibolla á eftir og spjölluðum smá. Notaleg stund.

„Ég verð að segja það að það er smá blik í augunum á okkur og ég finn fyrir tengingu á milli okkar. Yndislegt að hitta systur, knúsa og hitta og það er einhver óútskýranleg tenging, sem ég get ekki lýst með orðum. Mér líður alla vegna vel í hjartanu eftir þessa klippingu.

Það er gaman að segja frá því að báðar Lovísurnar mínar hafa gaman af því að klippa hár. Lífið er svo einfalt og skemmtilegt. Elska ykkur báðar.“

DELUXE Á ÍSAFIRÐI

0

Í júní árið 1960 tók þessi prúðbúna fjölskylda á Ísafirði á móti Ford Anglia DeLuxe fólksbifreið sem þau fengu í Happdrætti DAS.

80 ÁR FRÁ FÆÐINGU ÁRNA JOHNSEN

0

Í gær hefði Árni Johnsen orðið áttræður. Gísli Helgason tónlistarmaður úr Eyjum minnist hans með skrautlegri sögu.

Árni gat oft verið mjög uppátækjasamur. Kannski er í lagi að rifja upp smá sögu þar sem ég blandaðist óvart inn í.

Þegar félagið Vísnavinir starfaði héldum við svokölluð vísnakvöld, fyrst á Borginni og svo í Þjóðleikhúskjallaranum og víðar. Daginn sem ég varð þrítugur, það var á mánudegi var vísnakvöld. Fljótlega þegar ég kom niður í Þjóðleikhúskjallara kom Árni, sagði mér að hann ætlaði að raula ljóðið Eyvindarstaðaheiði eftir Indriða G. Þorsteinssom en hann væri búinn að semja lag við kvæðið. Árni sagðist vera með einn úr meirihluta þjóðarinnar sem gæti ekki tjáð sig um verk manna að eyðileggja ekki beitilönd. Hann væri með veturgamlan hrút með sér til þess að leggja áherslu á efni kvæðisins. Svo spurði hann hvernig hann gæti komið hrútnum inn í kjallarann. Við fundum út úr því vinirnir og svo hófst kvöldið. Man ekki hvort Eyfi var kynnir eða einhver annar.

Dagskráin hófst og svo var komið að Árna sem kynnti kvæðið og náði í leynigestinn.

Hrúturinn steig á svið, var tiltölulega rólegur og át hey sem Árni hafði komið með og hrútur skildi eftir sig nokkur spörð á sviðinu. Það varð algjört uppistand á meðal gesta og menn vissu ekkert hvaðan á þá stóð veðrið og einhverjir vorkenndu hrútnum.

Svo hóf Árni gítarinn í fang sér og byrjaði að spila og syngja. Hrútnum varð ekki um sel, stangaði gítarinn og rauk út á gólf. Nokkrir hrútvanir menn og eitt fljóð fönguðu hrútinn, fóru með hann afsíðis og þar fékk hann næði til þess að eta nóg af heyi.

Það urðu nokkur eftirmál á milli mín og dyravarðanna sem sögðu að kjallarinn væri fyrir fólk en ekki fyrir skítandi hrúta. Ég spurði hvort það væri eitthvað verra að þrífa upp spörð eftir einn hrút eða ælur eftir fólk, dauðadrukkið. Lyktir urðu þær að dyraverðir kváðu upp úr með það að hrúturinn hefði ekki verið nógu vel klæddur og þar að auki langt undir lögaldri. Ég og við dyraverðir skildum nokkuð sáttir og ég baðst afsökunar á ungum aldri hrútsins. Líklega hefur hrútur ekki komið síðan í Þjóðleikhúskjallarann.“

GUÐSTEINN LOKAR Á LAUGAVEGI

0

Enn eitt vígið fellur á Laugavegi. Verslun Guðsteins lokar eftir rúma viku. Í tilkynningu segir:

Kæru viðskiptavinir
Þann 9.mars mun Verslun Guðsteins loka á Laugavegi 34.
Við verðum með lager/ rýmingarsölu frá 1.-9.mars , þar sem hægt er að gera mjög góð kaup,
40-90% afsláttur
Verðdæmi:
Peysur kr. 3,000-7,000
Skyrtur kr. 3,000,-
Jakkar kr. 15,000
Jakkaföt kr. 20,000
Opnunartími:
Föstud. 1.mars kl. 12-18
Laugard. 2.mars kl.12-17
sunnud. 3.mars kl.13-16
4.-8.mars kl.12-18
Laugard. 9.mars kl.12-17 LOKADAGUR
Við minnum á að ný og stærri verslun okkar að Ármúla 11 verður opin áfram og fagnar Verslun Guðsteins 106 ára afmæli á þessu ári.
Kær kveðja
Verslun Guðsteins

ARNAR ÞÓR LEGGUR ÚR HÖFN

0

„Í dag hefst formlegt kynningarstarf á framboði mínu til embættis forseta Íslands,“ segir Arnar Þór Jónsson lögfræðingur og forsetaframbjóðand:

„Búið er að opna heimasíðu með völdum greinum, viðtölum og fréttum sem uppfærð verður reglulega. Í Morgunblaðinu í dag birtist heilsíða þar sem erindi framboðsins er undirstrikað. Framundan er áhugavert ferðalag og verðugar áskoranir. Með ykkar stuðningi mun ég sigla heilu skipi í höfn.“

LAUFEY Í KLEMMU KERFISINS – HVERNIG Á ÞETTA AÐ GANGA UPP?

0

„Nú er komið að mánaðarmótum og kvíðinn að ná hámarki, hvernig í ósköpunum á þetta að ganga upp?“ spyr Laufey Elíasdóttir landsþekkt leikkona og ljósmyndari:

„Ég var úrskurðuð sem öryrkji af læknum (a.m.k. tímabundið) og fannst erfitt að kingja þeirri pillu svo ég var rög við að senda umsókn í lífeyrissjóðinn og TR. Lífeyrissjóðurinn gefur sér 3-6 mánuði til þess að vinna úr þessu og TR taldi að endurhæfing væri ekki fullreynd, sem ég fagnaði. TR var ekki lengi að svara öryrkjaumsókninni en gefur sér góðan tíma að vinna úr endurhæfingarumsókninni. Þetta er kvíðvænlegt fyrir einstæða móður sem er að vinna sig útúr áföllum og því sem lífið hefur hent í hana. Það að hafa ekki eitthvað fjárhagslegt öryggi hægir á bataferlinu, þó svo að peningarnir dugi ekki til þess að ná endum saman. Ég lamast og í því ástandi gerist ekki neitt. Það er margt sem ég hef verið að vinna að eins og t.d. að opna ljósmyndastúdíóið mitt, fara að leika o.s.frv. Á meðan það er verið að finna útúr allskonar læknaveseni og lyfjastilla hitt og þetta þá þarf ég þetta öryggi sem apparatið okkar á að veita okkur sem veikjumst og förum í þrot. Nú er mánuður nr. 2 að ganga í garð án nokkurrar greiðslu og ég þoli illa að safna skuldum. Annað var það ekki.“

HOLLRÁÐ HEBBA

0

„Allir hafa áhrif,“ segir Herbert Guðmundsson söngsjarmur og það með réttu:

„Viðhorf okkar og hamingja endurspeglast í því sem við segjum og gerum og það hefur áhrif á allt og alla í kringum okkur. Birtum upp eins og þessi fallegi sólardagur í dag er að gera.“

STJÖRNURNAR HENTU HÆLUNUM Í CANNES

0

Á kvikmyndahátíðinni í Cannes gilda þær reglur að leikkonur skuli vera í háhæla skóm þegar þær ganga eftir rauða dreglinum. Julia Roberts sagði nei takk og mætti berfætt og það gerðu Kristen Steward og Susan Saradon líka.

Og ekki nóg með það – galakjólunum var skipt út fyrir þægilega svarta yfirhöfn sem kalla mætti kjól.

GRILLIÐ Á SÖGU ENDURGERT Í UPPHAFLEGRI MYND

0
Háskóli Íslands tilkynnir:

Grillið á Sögu var lengi rómað fyrir gæði í mat og mikinn lúxus með útsýni yfir sundin blá og borgina alla og þar hafa sest að snæðingi nokkrar af skærustu stjörnum listasögunnar sem áttu náttstað á hótelinu. Þar gerist líka ein vinsælasta sena íslenskrar bókmennta- og kvikmyndasögu þar sem sögupersónur Einars Más Guðmundssonar úr skáldverkinu Englar alheimsins mæta og gera sér glaðan dag.

©Kristinn Ingvarsson

Grillið er nú partur af Háskóla Íslands eins og flest vita og mörg sem eiga leið um Vesturbæinn og Melana hafa rekið augun í mikið hús í undarlegum stíl sem liggur eins og mara ofan á Sögu og hefur eiginlega étið Grillið með gleri og stáli. Það hafa jafnvel borist fyrirspurnir til HÍ um hvort þetta nýja furðurhús eigi varanlegan samastað á þaki Sögu.

„Nei, alls ekki,“ segir Kristinn Jóhannesson, sviðsstjóri framkvæmda- og tæknisviðs við Háskóla Íslands. „Það er verið er að endurbyggja Grillið í upphaflegri mynd. Til þess að hægt væri að vinna að þessu í vetur var nauðsynlegt að byggja skýli yfir Grillið svo hægt væri að athafna sig óháð veðri og vindum,“ segir Kristinn sem ræðir á vef HÍ um stöðu framkvæmda á Sögu en þangað flytur Menntavísindasvið skólans í haust.