Home Blog Page 221

ÚTSÝNISGLUGGI JFM Á NÝJU SKRIFSTOFUNNI – FYRSTA ÍBÚÐIN SEM HANN KEYPTI BLASIR VIÐ

0

Jakob Frímann Magnússon alþingismaður var að flytja inn í skrifstofu í umdeildiri nýbyggingu Alþingis við Tjörnina. Jakob átti eins von á útsýni eins og á Litla Hrauni sem kvartað hefur verið yfir. En viti menn! Útsýnisgluggi Jakobs spannar Ráðhúsið, Tjörnina og fyrstu íbúðina sem hann keypti í Tjarnargötu 10 B.

„Gæti ekki verið betra. Þarna í risíbúðinni voru tekin upp mörg minnistæð atriði úr kvikmyndinni Með allt á hreinu; sjónvarpstæki stútað og plötuspilari fauk út um gluggann,“ segir Jakob ánægður með nýja útsýnisgluggann sinn.

BROTHÆTT HAMINGJA ÍSLENDINGA

0

Hver eru skilyrði þess að þjóð teljist hamingjusöm?

Íslendingar eru samkvæmt könnunum í hópi hamingjusömustu þjóða heims á eftir Finnlandi, Danmörku og Noregi eins og fram kemur í umfjöllun New York Times. Þessar þjóðir búa við góð efnahagsleg skilyrði og lífsgæði.

Bandaríkin eru í 19. sæti, Frakkland í 24. sæti og Japan í 58. sæti. Sex skilyrði eru lögð til grundvallar í mælingu á hamingjustigi þjóða. Þau eru eftirfarandi:

(1) Verg landsframleiðsla á mann (þar er Ísland að vísu í 23. sæti)

(2) Velferðarkerfi (Ísland er ekki í hópi tíu helstu velferðarríkja heims)

(3) Heilsa og lífslikur en þar er Ísland í 20. sæti (lífslíkur fyrir bæði (öll?) kyn tæp 83 ár

(4) Félagslegt frelsi en þar er ísland í 7. sæti á eftir Sviss, Nýja Sjálandi, Eistlandi, Danmörku, Írlandi og Svíþjóð (skv. ,,Human Freedom Index“)

(5) Örlæti (Ísland í 23. sæti (skv. „World Giving Index“)

 Lítil spilling en þar er Ísland í 19. sæti (skv. ,,Corruption Perception Index“ og ,,Transparency International“). Mútur, pólitísk misbeiting valds og veikt réttarkerfi einkenna spillingu. Samkvæmt ofangreindum mælingum er Ísland ekki að skora hátt þegar grannt er skoðað.

JOE SNÝR ALDRI OG REYNSLU SÉR Í HAG

0

ELSTU ÞJÓÐARLEIÐTOGAR HEIMS

0

HÉR HVÍLIR DÍANA PRINSESSA

0
Systkinin.
Systkinin.

Charles Spencer, bróðir Díönu prinsessu, birtir þessa mynd af fallegum stað þar sem Díana systir hans hvílir í gröf sinni. Staðurinn er eingöngu aðgengilegur með bát og ekki opin almenningi.

LANDIÐ, LÖGIN, LANDSVIRKJUN OG LANDSÞEKKTIR FRAMBJÓÐENDUR

0

Lykilatriði þess að ná árangri í forsetakosningunum er að vera landsþekktur og þóknanlegur ,,kerfinu“. Í þann hóp fellur Alma Möller landlæknir sem varð landsþekkt á tímum Covid í stöðugum sjónvarpsútsendingum með Víði Reynissyni og Þórólfi smitsjúkdómalækni. Þó eru ekki allir sem tengja Ölmu lækni við þetta æðsta embætti í íslenskri stjórnskipun.

Sá aðili af þeim sem fram eru komnir og þekkingu hefur á stjórnskipuninni er Arnar Þór Jónsson lögfræðingur sem hefur skrifað um nauðsyn þess að vernda íslenskt fullveldi. Hann er því ekki vel þokkaður innan kerfisins og af glóbalistum samfylkingar á vinstri væng. Ekki er enn vitað hvort Katrín tekur stökkið en hún mun vera spennt fyrir því.

Sagt er að af landsþekktum aðilum sé Katrín forsætisráðherra sú sem gæti náð afgerandi forystu sem væn og velliðin kona á landsvísu. Flokkur hennar er hins vegar að þurrkast út sakir aðgerðaleysis VG í mörgum mikilvægum málaflokkum: Ekkert hefur orðið úr auðlindaákvæði í stjórnarskrá; auðmenn og útlendingar kaupa upp auðlindir, fjöll og undirlendi. Samþjöppun auðs og valda er eitt og þegar bein yfirráð yfir heilum og hálfum landsfjórðungum bætast við er stutt í gamla lénsveldið. Þá raungerist staða Jim Ratcliffes sem Goða sem sendir sína menn á þing og Íslendingar verða þegnar stórfyrirtækjaelítu. Ekki er enn vitað hvort Katrín tekur stökkið en hún mun vera spennt fyrir því.

Ólafur Jóhann Óiafsson rithöfundur ku einnig vera spenntur, greindur maður og flínkur, fyrrum aðstoðarforstjóri Time Warner sem fékk rúmlega 15 milljónir dollara í sinn hlut þegar hann vann að samrauna risafyrirtækjanna Time Warner og fjölmiðlafyrirtækisins AT&T árið 2018. Þeim samruna var líkt við banahögg bandarísks lýðræðis með nýrri gullöld einokunar. RÚV sendi fulltrúa sinn (fyrrum forsetaframbjóðanda) til að taka viðtal við Ólaf Jóhann vegna samrunans en þar var ekkert minnst á áhyggjur af lýðræðinu vegna risasamrunans og verður því væntanlega ekki spurt um það í komandi kosningum. Sá fyrrum forsetaframbjóðandi fór frá RÚV yfir til Landsvirkjunar í fyrra en það gæti beðið nýs Forseta Íslands tímabilið 2024-2028 að fara yfir lög um afdrif þess þjóðhagslega mikilvæga fyrirtækis. Þá er spurning hvort Bessastaðir yrðu virkjaðir og þjóðhagslega mikilvæg lagafrumvörp borin undir þjóðina.

TILBOÐ Í TILBREYTINGU

0

Tene er ágæt en þessi tilboð eru líka til:

Ameríkuferðir bjóða upp á Route 66. Keyrt frá Chicago til Los Angeles og þessi frægi þjóðvegur þræddur frá A-Ö. Sextán dagar á 229.000 krónur með flugi, hótelum og appi með ferðalýsingu.
Bændaferðir bjóða upp á Færeyjaferð í fimm daga, fararstjóri Gísli Jafetsson og verðið líkt og Route 66, 299.900 krónur. Aukagjald fyrir eins manns herbergi, 42.000 krónur.
Kúbuferðir eru með tveggja vikna Kúbuferð í október á 439.900 krónur. „Saga, matur, tónlist, sól, frábærir staðir, strendur og mannlíf.“
Og svo framvegis.

GRÍMULAUST DAÐUR VIÐ AUÐ

0

VIVALDI

0

Fæðingardagur Antonio Lucio Vivaldi (1678-1741), barok tónskáld allra tíma, elskaður og dáður af mörgum kynslóðum og er enn. Þekktastur fyrir Árstíðirnar fjórar – gerið svo vel:

BÆJARSTJÓRINN GRILLAR HEIMILDINA

0
Vignir bæjarstjóri.„Í gær náði skautun samfélagsins nýjum hæðum,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi:
„Ég horfði ég á undankeppni evrópsku söngvakeppninnar á RUV. Með mér voru tvö börn sem höfðu mjög gaman að. Bæði höfðu klætt sig upp til stuðnings síns lags og bæði höfðu fengið að kaupa sitt uppáhalds nammi. Annað þeirra studdi bræðurna í VÆB og hitt studdi Heru. Hvort þeirra fyrir sig fékk að hringja einu sinni til að kjósa.
Það var svo ekki fyrr en í morgun að ég vissi að með þessu voru þau að gera sig sek um ,,virkt afstöðuleysi svo úr varð absúrdismi” (Jón Trausti, Heimildin). Jafnvel um rasisma og gerst stuðningsfólk þjóðarmorðs (fávitar á Facebook).“