Home Blog Page 220

PUFFIN FOR PRESIDENT

0

„Puffin for president. Nýtt verk, framlag mitt til forsetakosninga allra tíma,“ segir Björgvin Ólafsson listamaður og lífskúnstner.

MICKY „MONKEES“ DOLENS (79)

0

Micky Dolens trommuleikari og söngvari The Monkees er afmælisbarn dagsins (79). Hann byrjaði snemma í bransanum, fyrst sem sirkusstrákur og endaði svo við trommurnar hjá The Monkees í hverjum sjónvarpsþættinum á fætur öðrum.

PÓLITÍSK ÁHRIF Á TÍSKUNA – EKKI SKARTA AUÐI

0

Ástandið í heiminum hefur áhrif á tískuna, segir áhrifafólk í tískuheiminum. Ógeðfelldur ójöfnuður og andúð á lífstíl þeirra ofurríku, sem kunna ekkert annað en að berast á smitast yfir á tískuhönnuði eins og aðra sem eru með fingurinn á púlsinum.

Ofurhannaðir skrautkjólar eins og sjást á rauðu dreglunum þykja orðið hallærislegir. Allt er nú á lágstemmdari og sígildari nótum. Svart og hvítt stendur enn fyrir sínu. Naumhyggja er aftur að ryðja sér til rúms. Ráðin frá tískuritstjórum (fremur en tískuhúsum) eru að koma sér upp góðum grunni af nothæfum fatnaði eins og rykfrakka, þröngu pilsi, buxnadragt og góðum gallabuxum.

Lágstemmdur glæsileiki Carolyn Bessette stenst tímans tönn.
Lágstemmdur glæsileiki Carolyn Bessette stenst tímans tönn.

Tískufyrirmyndirnar núna eru því þær sem berast ekki á og eru glæsilegar á lágstemmdum nótum. Tekið er dæmi af konu eins og Carolyn Bessette eiginkonu John Kennedy yngri en bæði fórust í flugslysi í lok síðustu aldar. Hún vann hjá Calvin Klein og myndir af henni sýna hvernig þessi lágstemmdi elegansi stenst tímans tönn. Lauren Sanchez fylgdarkona eins auðugasta manns heims fellur á hinn bóginn ekki í þennan flokk lágstemmds glæsileika þar sem hún skartar 105 þúsund dollara eða rúmlega 14 milljón króna bleikri Birkin tösku þegar hún fer á kaffihús. Ekki smart!

FORSETINN MÁ EKKI VERA MYRKFÆLINN

0

Það ku reimt á Bessastöðum. Fyrrum forsetar hafa orðið varir við vofu Apollóníu Schwarzkopf sem dó þar fyrir réttum þremur öldum eða um Jónsmessu 1725.

Angist Apollóníu
Angist Apollóníu

Appólónía og amtmaðurinn á Bessastöðum, Níels Furhman, höfðu verið trúlofuð um árabil í Kaupmannahöfn. Þegar hann sleit trúlofuninni stefndi Appollónía honum fyrir heitrof og var hann dæmdur til að kvænast henni. Það vildi hann ekki og fór til Íslands 1718, þar sem hann hafði verið skipaður amtmaður. Hæstiréttur í Danmörku staðfesti síðan dóm undirréttar þar sem Níels amtmanni var gert að kvænast henni ellegar borga henni árlega tvo þriðju af launum sínum yrði ekkert af brúðkaupi.

Appolónía sigldi til Íslands með Hólmskipi í sumarbyrjun 1722 til að reyna að fá Níels til að efna heit sitt. Í þrjú ár dvaldi Apollónía á Bessastöðum við erfitt hlutskipti og engar efndir á hjúskparheiti amtmanns. Níels Furhman var kominn með aðra ástkonu, Karen Holm, en móðir hennar Katrín var ráðskona á Bessastöðum. Þessar dönsku konur eru grunaðar um að hafa eitrað fyrir Appolóníu.

Áður en Níels kynntist Appolóníu hafði hann svikið aðra stúlku í tryggðum. Sú veslaðist upp af þunglyndi en áður en hún dó óskaði hún Furhman alls ills og að hann yrði ógæfumaður. Það virðist hafa ræst. Hann dó bitur maður 1733 og er grafinn undir gólfinu í Bessastaðakirkju við hlið Appolóníu. Þar hafa þau legið með sín óuppgerðu mál í þrjár aldir. Appolína reikar því eirðarlaus um nætur á Bessastöðum. Kannski bíður hún nú á þessum tímamótum eftir skilningsríkri og lífsreyndri manneskju í embætti forseta. Sjálf var hún sögð góð og velviljuð kona.

ÁRAMÓTAHEIT BOLLA

0

„Strengdi þess heit um síðustu áramót að horfa aldrei á Gísla Martein,“ segir Bolli Kristinsson athafnamaður kenndur við 17.

MELTINGARVEGURINN Í MARS

0

RAVEL (1875-1937)

0

Fæðingardagur franska tónskáldsins Maurice Ravel (1875-1937). Hans frægasta verk er eflaust Boléro sem flogið hefur víða en Ravel var fyrstur tónskálda til að átta sig á að hljóðupptökur og dreifing tónverka á hljómplötum væri leiðin til að ná til stærri hlustendahóps en í tónleikasölum eingöngu. Og það var gert.

TÍSKAN VOR OG SUMAR 2024

0

Tískan vor og sumar 2024

 

Barbiebleikt var litur ársins 2023 en fyrir árið 2024 er fjólublár arftaki  þess bleika. Vogue hefur kynnt litasamsetningar sem setja svip sinn á tískuna núna og eru það þessar helstar.

 

(1)  Brúnt og ,,navy“-blátt. 

Þessir litir voru lengi vel ekki paraðir saman. Nú þykir þessi samsetning ofursvöl, glæsileg og fersk. Smart að vera í brúnum leður- eða rúskinnsjakka yfir blárri skyrtu eða peysu.

 

(2)  Rautt og grátt

Rautt er áfram í uppáhaldi en í stað þess að blanda því við svart er grái liturinn notaður með rauðu.

 

(3)  Grátt og skærgrænt

Hreinn grænn litur sem er staðsettur á milli þess bláa og gula á litrófinu er ferskur litur fyrir vorið og tónar vel með gráu.

 

(4)  Rautt og khaki-grænt

Nú þegar árstíð ljósu rykfrakkana gengur í garð er flott að blanda saman khakilitnum við djúprauðan lit (sjá leðurfatnað á mynd).

 

(5)  Fjólublátt og hermannagrænt

Hér er rúsínan í pylsuendanum, svalasta litasamsetningin núna er fjólublátt og hermannagrænt. Fjólublái liturinn er kominn í stað bleika litsins frá því í fyrra sem tískulitur ársins og með khakigrænu er hann geggjaður.

RAX (66)

0

Ragnar Axelsson listaljósmyndari er afmælisbarn dagsins (66). Fáir sjá heiminn eins og hann í gegnum linsuna og lífsstarf hans er hreint úr sagt eitt stór ævintýri. Hann fær óskalagið Kodacrom – Simon og Garfunkel í Central Park NY:

HITASTIGIÐ HÆKKAÐI UM 20 GRÁÐUR EFTIR RÁÐNINGU NÝS VEÐURSTOFUSTJÓRA

0

Hildigunnar H.H. Thorsteinsson hafði ekki fyrr verið ráðin nýr Veðurstofustjóri en hitastigið í Reykjavík hækkaði um 20 gráður – úr 10 stiga frosti í 10 stiga hita. Þetta er árangur án hliðstæðu á  örfáum dögum. Hildigunnur er ráðin til 5 ára og ef áframhald verður á stefnir í hamfarahlýnun í borginni með tilheyrandi eldsvoðum og óáran áður en ráðningatími hennar rennur út.