Home Blog Page 219

SJÓNVARRPSGREIÐUR ERU FORNMINJAR

0

Víða standa sjónvarpsgreiður upp úr strompum og húsþökum, engum til gagns. Fyrir löngu er hætt að senda sjónvarp út „á öldum ljósvakans“ – allar útsendingar eru komnar á netið. Greiðurnar og örbylgjuloftnetin standa því eftir sem minnisvarði um fyrri tíma, þar sem þau tærast og ryðga smám saman þar til húseigandinn drífur í að hringja á körfubíl til að taka draslið niður áður en það hrynur ofan á sólpallinn.

BAD BUNNY (30)

0

Tónlistarmaðurinn Bad Bunny, frá Portó Ríka, er afmælisbarn dagsins (30). Bad Bunni er einn vinsælasti tónlistarmaður hins spænskmælandi heims og hlaut Latin Grammy verðlaunin fyrir fyrstu plötu sína, X 100pre og hefur skorað hæst á Billboard 200 vinsældarlistanum. En Bad Bunny hefur afrekað annað og kannski meira en hann er eini karlmaðurinn fyrir utan kanínukónginn Hugh Hefner sem hefur skreytt forsíðu Playboy. Menn komast vart lengra á þeim slóðum.

SIÐBLINDA Í RÍKISSJÓNVARPINU

0

Sagt er að Bergsteinn Sigurðsson einn af umsjónarmönnum Kastljósþáttar ríkisins skrifi brandarana ofan í Gísla Martein sem hann nefnir Fréttir vikunnar. Nú síðast fjallaði ein „fréttin“ um samstarfsmann þeirra félaga sem ruglaðist á veðurkortum og úr varð mikill hlátur.

Nú er það  þannig að ekki er venja fyrir því að gera grín af mistökum samstarfsmanna sinna í skemmtiþætti í beinum útsendingum eins og þarna var gert. Eitthvað siðrof hefur orðið þegar þeir félagar, Gísli Marteinn og Bergsteinn ætluðu að stytta sér leið með því að fara þennan hliðarveg en lásu ekki vegvísinn á gatnamótunum þar sem stóð einfaldlega: Dead End.

100 Á BIÐLISTA Á ÁRSHÁTÍÐ HAFNARFJARÐAR

0

Árshátíð Hafnarfjarðarbæjar var haldin á í íþróttahúsinu á Ásvöllum í gærkvöldi. Mikill áhugi var meðal starfsmanna bæjarins en brunaeftirlitið gaf aðeins leyfi fyrir 1.500 veislu og voru þar makar meðtaldir – starfsmenn bæjarins eru reyndar miklu fleiri og lentu því 100 manns beint á biðlista.

Rósa Guðbjarts bæjarstjóri bauð í kokteil á fallegu heimili sínu í hrauninu en nú styttist í að hún láti af bæjarstjórn og afhendi völdin Framsókn samkvæmt samningi í ljósi úrslita síðuðustu kosninga. Talið er víst að Rósa leiti nú á önnur mið og beinast liggur við að taka stefnuna á Austurvöll þar sem Alþingishúsið stendur.

VILTU FARA Í BISNISS MEÐ PARÍSARHJÓL VIÐ HÖFNINA? – BORGIN BÝÐUR ÞÉR 725 FERMETRA LÓÐ

0

Reykjavíkurborg óskar eftir samstarfsaðila til að reka parísarhjól á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn. Parísarhjól verður spennandi viðbót við fjölbreytt borgarlíf.

Parísarhjól í Reykjavíkurhöfn - unnin mynd

 

Verkefnið kom upp í skýrslu um tækifæri fyrir haftengda upplifun í Reykjavík og var samþykkt að vinna það áfram. Mögulegur rekstraraðili mun standa allan straum af uppsetningu og rekstri parísarhjóls, en framlag borgarinnar til samstarfsins yrðu afnot af lóð Faxaflóahafna í fyrirfram ákveðinn tíma.

Frestur til að skila inn tillögum að samstarfi er til 22. mars kl 14:00.

Hæðartakmörkun: Vegna staðsetningar sem er beint undir fluglínu fyrir flugbraut 01-19 eru 30 m hæðartakmarkanir á mögulegu parísarhjóli.

Stærð svæðis sem borgin gæti lagt til undir verkefnið er 725 fermetrar. Á svæðinu ætti að vera hægt að koma fyrir 20 metra löngum vagni með Parísarhjóli.

Árstíð: Um sumarafþreyingu væri að ræða, tímabilið er maí – september.

Öryggiskröfur: Rekstraraðili þarf að skila inn gögnum um að hjólið og búnaðurinn þoli íslenskar aðstæður þ.m.t. vindálag og jarðhræringar. Frekari útlistun á kröfum varðandi öxulþyngd vagnsins má finna í athugun Verkís um parísarhjól á Miðbakka.

KATRÍN SKIPTIR UM PRÓFÍL

0

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var að skipta um prófílmynd á Facebook. Gerið svo vel!

GUÐJÓN FRIÐRIKS (79)

0

Guðjón Friðriksson sagnfræðingur er ötull við að deila þekkingu sinni með almenningi í bókum og ekki síst ásamfélagsmiðlum þar sem hann myndar sögufræg hús og útskýrir á mannamáli hvað sé svo merkilegt við þau. Guðjón er afmælisbarn dagsins (79). Húsin í höfuðborginni eru honum næst hjarta og fær hann því óskalagið Ó borg mín borg.

SKÍÐALYFTUMARTRÖÐ ÖNNU HILDAR

0
„Slysin gera ekki boð á undan sér og á stundum er raunveruleikinn skáldskapnum lygilegri, eins og ég fékk svo sannarlega að upplifa á eigin skinni síðastliðinn laugardag,“ segir Anna  Hildur Wolfram Björnsdóttir  sem lenti í skíðalyftumartröð andskotans:
„Ég var stödd á skíðasvæði úti á landi í geggjuðu færi og frábæru veðri ásamt fjölda annarra skíða- og brettafólks. Undir miðjan dag er ég á leið upp með diskalyftu og er komin nokkuð áleiðis þegar lyftan tekur að hegða sér furðulega. Ég lyftist ögn frá jörðu tvisvar sinnum með stuttu millibili og er að nálgast eitt mastranna sem bera togvírinn uppi. Áður en ég veit af hefur lyftan kippt mér upp frá jörðu og þeytt mér upp í topp mastursins sem hafði verið framundan, á að giska ca. 5-6 metra hátt. Ég fæ verklegt högg á vinstra læri þegar ég skell utan í hjólin á toppi mastursins, diskurinn sem ég hafði haft skorðaðan milli fótanna losnar frá mér og á einhvern undraverðan hátt næ ég góðu taki á hjólunum á mastrinu og hangi hálf á hvolfi, með annan fótinn fastan í snjóbrettinu, brettið upp í loft og horfi upp í himininn.
Ég átta mig fljótt á því að ég mun ekki geta bjargað mér úr þessari klípu af sjálfsdáðum og rígheld mér því í hjólin og hreyfi hvorki legg né lið af ótta við að missa takið og hrapa til jarðar með höfuðið fyrst. Að óljósum tíma liðnum heyri ég vélsleða nálgast og skömmu síðar kallar starfsmaður svæðisins til mín. Hann klifrar upp stiga á mastrinu til að ná til mín, losar snjóbrettið af fætinum á mér og aðstoðar mig við að rétta mig við, ná taki á stiganum og klöngrast niður.
Eftir heimsókn á Heilbrigðisstofnun svæðisins reyndist ég blessunarlega óbrotin, en illa marin, verulega bólgin og með húðblæðingar. Lyftunni var samstundis lokað og tilkynning send á Vinnueftirlitið, sem framkvæmir úttekt á atvikinu sem og lyftubúnaðinum áður en heimilt verður að taka hana í notkun á ný.
Ég þekki ekki lagaumhverfi í kringum öryggisatriði tengt lyftum sem þessum, en spyr mig hvort tímabært sé að endurskoða almennt regluverk og eftirlit með þeim í ljósi nýliðins atburðar. Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda ef eitt barnanna sem voru gestir á svæðinu þennan dag hefði tekið flugið í minn stað.
Atvik sem þetta eiga ekki að geta átt sér stað, enda almennt mikið lagt upp úr öryggi toglyftubúnaðar. Staðreyndin er engu að síður sú að hið ótrúlega raungerðist og fyrir hreina tilviljun fór ekki verr en raun ber vitni.
Á meðfylgjandi mynd má sjá umrætt mastur sem ég þeyttist upp í. Ef rýnt er í myndina sést að vírinn, sem á að öllu jöfnu að vera fastur milli hjólanna hægra megin á mastrinu, er staðsettur marga metra fyrir ofan það.

HAFNFIRSK HEPPNI 1959

0

3. febrúar árið 1959 var þessi glæsilegi Ford Edsel Ranger á meðal þeirra vinninga sem dregnir voru út í Happdrætti DAS. Hann vann Matthildur Guðjónsdóttir í Hafnarfirði
Það vildi svo skemmtilega til að í þessum útdrætti voru alls þrír vinningshafar búsettir í Hafnarfirði. Það má því sannarlega segja að heppnin hafi verið í Hafnarfirði 3. febrúar 1959.

TONY BLAIR SPRENGDI ÞRIÐJA HJÓNAND MURDOCHS

0

Ekki sér fyrir endann á ástarævintýrum fjölmiðlaolígarksins Ruperts Murdochs. Hann sté niður úr stjórn risa-fyrirtækjasamsteypu sinnar 92 ára en sér aldurinn ekki sem fyrirstöðu til að efna til nýrra ástarsambanda.

Rupert tilkynnti Jerry Hall í fyrra með tölvupósti að hann vildi skilnað, sagðist hafa of mikið á sinni könnu.
Rupert tilkynnti Jerry Hall í fyrra með tölvupósti að hann vildi skilnað, sagðist hafa of mikið á sinni könnu.

Fyrir nokkrum dögum barst tilkynning frá skrifstofu hans um að hann hyggðist kvænast núverandi kærustu, Elenu Zhukova, 67 ára, líffræðingi sem hann byrjaði að ,,deita“ síðastliðið sumar. Þetta yrði fimmta hjónaband Murdochs en hann skildi við Jerry Hall (fyrrum eiginkonu Mick Jaggers) árið 2022. Í kjölfar þess átti hann í sambandi við Ann Lesley Smith, tannfræðing, en sleit því skyndilega eftir tvær vikur.

Nýja konan Elena Zhukova, 67 ára, líffræðiingur sem Murdoch byrjaði að ,,deita“ síðastliðið sumar.
Nýja konan Elena Zhukova, 67 ára, líffræðiingur sem Murdoch byrjaði að ,,deita“ síðastliðið sumar.

Murdoch kynntist núverandi kærustu í gegnum þriðju eiginkonu sína, Wendi Deng, sem hann á tvær dætur með en þau skildu eftir meint framhjáhald hennar með Tony Blair. Væntanlegt kvonfang hans kom til Bandaríkjanna frá fyrrum Sovétríkjunum rétt áður en þau liðu undir lok. Fyrrverandi eiginmaður hennar, Alexander Zhukov, varð milljarðamæringur með fjárfestingum í orkugeiranum en þó ekki í Hitaveitu Suðurnesja svo vitað sé. Hann er nú breskur ríkisborgari og býr í London. Dóttir þeirra Elenu og Alexanders, Dasha, er öflug í góðgerðastarfssemi en hún var, þar til 2017, gift rússneska olígarkanum Roman Abramovich. Ætla má af þessum staðreyndum að Elena sé ekki að giftast til fjár og að Rupert á tíræðisaldri búi enn yfir nægum sjarma til að laða að sér konur. Auk þess sem sækjast sér um líkir.