Home Blog Page 218

TÚRISTUM FÆKKAR ÁBERANDI Á VEITINGASTÖÐUM

0

Veitingamenn í í Reykjavík taka eftir að túristum hefur fækkað áberandi mikið upp á síðkastið í veitingasölum þeirra. Þar sem áður var kjaftfullt af túristum á matmálstímum er víða auð borð. Valdur þetta veitingamönnum áhyggjum.

SÁLFRÆÐINGUR Í BLÓMABÚÐ

0

Tíðindamaður fór í Blómaval að kaupa liljur á tilboði. Í biðröðinni var einnig landsþekktur sálfræðingur og saman fylgdust þeir með fullorðnu fólki sem var að tala við tvo páfagauka sem léku lausum hala í búðinni.

„Mikið eruð þið sætir,“ sagði fólkið við páfagaukana og þeir svöruðu að bragði: „…ætir, ætir, ætir.“

„Er þetta ekki verkefni fyrir þig?“

Sálfræðingurinn leit yfir til fólksins og páfagaukana og sagði svo: „Jú, ef þetta væru plastpáfagaukar.“

ÓSKAR OG IÐNAÐARMENNIRNIR

0

Óskar Magnússon athafnaskáld í Fljótshlíð hefur haldið úti myndaflokki um hríð á samfélagsmiðlum sem hann kallar Iðnaðarmenn á ferð. Hérna komst hann í feitt:

Iðnaðarmenn á ferð.
Aðsend.
Flokkur: Hönnun og hugvit.
Rör sem er hvort tveggja, b og p.
Pípari er líka söngvari.

NEIL SEDAKA (85)

0

Tónlistargoðsögnin Neik Sedaka er afmælisbarn dagsins (85). Margir eru smellirnir en þessi líklega sá stæri – Breaking Up is Hard to Do. Afmælisbarnið vakti athygli í Covidfaraldrinum þegar hann streymdi eigin tónleikum út til allra – ókeypis.

HIPPAFLUGFÉLAGIÐ ÁTTRÆTT

0
Það var á þessum degi árið 1944 sem þrír ungir flugmenn, nýkomnir úr námi í Kanada, tóku sig til og stofnuðu flugfélag. Þetta voru stórir draumar, mikilvægur áfangi í flugsögunni og arfleifð sem við hjá Icelandair búum enn að í dag.
Loftleiðir eru talið eitt fyrsta lággjaldaflugfélagið sem tengdi saman Evrópu og Bandaríkin, að sjálfsögðu með stoppi á Íslandi. Þar vestra var félagið kallað Icelandic Airlines og fékk nafnbótina „hippaflugfélagið“ vegna þess fjölda ungmenna sem nýttu sér þjónustu þess. Meðal farþega á þeim tíma voru fyrrum forsetahjón Bandaríkjanna, Bill og Hillary Clinton.
Við eigum margt þessum mögnuðu frumkvöðlum að þakka, enda stendur Icelandair enn á þeim sterka grunni sem Loftleiðir byggði upp í millilandaflugi.
Í tilefni áttatíu ára afmælis Loftleiða var sýning um sögu flugfélagsins opnuð á Hótel Loftleiðum. Sýningin stendur fram til 16. mars í bíósal og austurálmu hótelsins þar sem sjá má kvikmyndir og muni úr merkri sögu Loftleiða.

SÉRHÖNNUÐ ÍBÚÐ SVEINS KJARVAL VARÐVEITT Í ÁLFHEIMUM

0
Nýlega lét Hönnunarsafn Íslands mynda heimili við Álfheima í Reykjavík sem Sveinn Kjarval hannaði árið 1966.
„Sjaldgæft er að heimilisinnréttingar frá þessu tímabili standi enn óbreyttar. Íbúðahúsnæði gengur kaupum og sölum og nýir eigendur og kynslóðir taka við. Tískusveiflur og tíðarandi móta smekk og viðhorf þeirra sem taka við hvort varðveita eigi það sem fyrir er. Það kom því á óvart sumarið 2019 þegar á undirbúningi stóð fyrir sýninguna, Sveinn Kjarval — Það skal vanda sem lengi á að standa, að ábending barst um heimili við Álfheima í Reykjavík sem stendur enn að mestu óbreytt eftir hönnun Sveins Kjarvals frá sjöunda áratugnum. Í setustofunni blasir við arinn með íslensku grjóti og lárétt veggklæðning úr við en auk þess nokkrar gerðir stofuhúsgagna, borð, setbekkur og stakir stólar. Allt var sérsmíðað eftir pöntun eftir teikningum Sveins Kjarval.“
Texti: Arndísi S. Árnadóttir (1940-2023)
Ljósmyndir: Vigfús Birgisson

„VIÐ SETJUM ÞIG Í BÓKASKÁPINN ÞAR SEM ÞÚ ÁTT HEIMA“ – MINNING

0
„Það var kannski við hæfi að fregna andlát Matthíasar þegar ég var á leið á bókamessuna í London. Leiðir okkar lágu saman á bókaakrinum fyrir meira en aldarfjórðungi.
Hann kom til okkar hjá Vöku-Helgafelli og við reyndum að standa undir því að gefa út stórskáld,“ segir Pétur Már Ólafsson útgefandi í fallegum minningarorðum um Matthías Johannessen:
„Við setjum þig í bókaskápinn þar sem þú átt heima,“ sagði Ólafur Ragnarsson útgefandi hjá Vöku Helgafell“.
„Og hvar er það?“ spurði ég.
Hjá góðskáldunum,sögðu þeir,“ segir í dagbók Matthíasar frá þessum tíma.
Meðal annars endurútgáfum fyrstu bók hans, Borgin hló, árið 1998, fjórum áratugum eftir að hún kom fyrst út. Ég fékk þann heiður að skrifa stuttan formála og ég man að ég sagði eitthvað á þá leið að ljóðin hefðu allt eins getað verið samin í nútímanum – ef ekki væri fyrir eitt orð: Kolbeinshaus. Síðar komu bækur á borð við hina mögnuðu Ættjarðarljóð á atómöld.
Eftir að ég fór að gefa út bækur fyrir eigin reikning hafði Matthías aftur samband, við endurnýjuðum kynnin og út kom bókin Söknuður. Fyrir nýliðin jól gáfum við hjá Bjarti & Veröld út bókina Undir mjúkum væng – myndir úr dagbók (enn ein vísunin í fugla í skáldskap hans).
Það var okkur sannkallaður heiður að hafa slíkan skáldjöfur á útgáfulista okkar.
En Matthías var svo miklu meira en afburðaskáld – eins og það væri ekki nóg. Sem ritstjóri var hann stórveldi. Einhvern tíma hafði ég á orði við blaðamann á Morgunblaðinu að Matthías virkaði stundum svolítið annars hugar. „Þá eru einmitt öll skilningarvit á fullum snúningi,“ svaraði hann. Enda var það allt að því óþægilegt hvernig hann gat rifjað upp það sem maður hafði sagt í samtali við hann fyrir margt löngu og var með öllu gleymt.
Og að koma heim til þeirra Hönnu var kapítuli út af fyrir sig. Það var eins og að ganga inn í listasöguna. Varla sá á auðan vegg fyrir verkum helstu meistara íslenskrar myndlistar.
Já, Hanna. Það fór ekki á milli mála að hún var kletturinn í lífi hans. Bókin Söknuður kom út að henni látinni. Þar er þetta fallega ljóð:
Hægt líður tíminn og hugur
minn hljóðnar sem skógur í regni,
veit samt ekki hvort verður
vor eins og áður í maí,
bíð þess aðeins að birti
og býsnavetur sé hjá.
Ég votta fjölskyldu og aðstandendum Matthíasar mína innilegustu samúð.

ELSTA LANDAKORT Í HEIMI

0

Elsta kort af jörðinni sem fundist hefur. Eftir gríska spekinginn Anaximander frá Miletus (610 – 546 fyrir Krist).

ROBERTSON (30)

0

Liverpoolstjarnan Andrew Robertson, fyrirliði skoska landsliðsins í fótbolta og vinstri bakvörður Liverpool, er þrítugur í dag. Þegar hann er settur inn á er eins og leikurinn breytist þegar afmælisbarnið rýkur óvænt upp vinstri kantinn úr varnarstöðu sinni og skilar boltanum fyrir markið. Hann tekur líka hornspyrnurnar – alltaf stórhættulegar – frá vinstri. Hann fær óskalag úr Cavern klúbbnum í Livepool – The Beatles:

PABBI GUÐMUNDAR BJARGAÐI LÍFI GUÐMUNDAR ANDRA

0

Samskipti á samskiptamiðlum taka á sig ýmsar myndir og stundum alveg gagnvirkar eins og þegar Guðmundur Magnússon rithöfundur á blaðamaður minntist föður síns í gær:

Magnús á læknastofu sinni á Klapparstíg.
Magnús á læknastofu sinni á Klapparstíg.

„Pabbi, Magnús Þorsteinsson (1926-2001) hefði orðið 98 ára í dag. Dó aðeins 75 ára gamall úr krabbameini. Blessuð sé minning hans….Hann starfaði nær alla tíð á Heilsuverndarstöðinni gömlu við Barónsstíg, en var auk þess læknir við nokkra skóla borgarinnar. Hann langaði til að lesa bókmenntir, en það þótti óraunsætt. Afi vildi að hann yrði verslunarmaður. Þar var framabrautin greið. En læknisfræðin varð ofan á og í barnalækningar fór hann fyrir tilviljun eftir að styrkur bauðst til framhaldsnáms á því sviði í Münster í Þýskalandi 1955.“

Þetta vekur viðbrögð hjá Gumðundi Andra Thorssyni rithöfundi:

„Pabbi þinn bjargaði lífi mínu þegar ég var fimm ára og fékk heilahimnubólgu. Læknir hafði komið um morguninn og sagt mig vera með flensu. Mér hrakaði þegar leið á daginn og mamma náði ekki í neinn lækni fyrr en pabba þinn, sem kom með hraði og dreif mig beint á spítala þegar hann sá mig. Hann var og er í hávegum hafður í minni fjölskyldu.“