Home Blog Page 217

BANKASÝSLAN Í BÍLTÚR

0

Þeir eru alls ekki út að aka – heldur úti að aka, hinir fjóru fræknu.

Undir stýri situr Þröstur Þórhallsson stórmeistari í skák og Íslandsmeistari 2012. Við hlið hans Frirðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri líkt og aðstoðarökumaður í rally. Í aftursætinu eru svo Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslunnar og Magnús Árni Skúlason hagfræðingur Reykjavík Economics.

LANDSBANKINN ÁTTI VÍS OG ÍSLANDSBANKI SJÓVÁ – VOND BLANDA

0

„Það er einkennilegt að bankastjóri Landsbankans sé að svara fyrir kaupin á TM,“ segir Halldór Friðrik Þorsteinsson athafnamaður og frumkvöðull:

„Þetta er ákvörðun stjórnar bankans og ekki hluti af daglegum rekstri sem bankastjórinn ber fyrst og fremst ábyrgð á. Það er líka einkennilegt að stefnumótun bankans virðist ekki vera í samráði við eiganda hans.

Nú er margreynt að banki og tryggingafélag fara ekki vel saman. Landsbankinn átti einu sinni VÍS, Íslandsbanki Sjóvá og nú er Kvika búinn að reyna með TM. Nær væri að hagræða í rekstrinum, fjárfesta í stafrænum lausnum og lækka þjónustugjöld eins og dæmi eru um hjá öðrum og einfaldari sparisjóði.“

PENNINN EYMUNDSSON Í ASÍU

0

Borist hefur póstur:

Penninn Eymundsson og fjölskylda.
Penninn Eymundsson og fjölskylda.

„Var að leita að Pennanum Eymundsson á Facebook og auðvitað komu fleiri en ein; og nokkrar verslanir með sína sér síðu. Ég smellti á eina og þá kom í ljós að þessi einstaklingur heitir einfaldlega Penninn Eymundsson – og virðist búa með fjölskyldu sinni í Asíu!

Sjá hér.

BÖÐVAR BÓKSALI DATT Í LUKKUPOTT

0

Fyrsti útdráttur í Happdrætti DAS fór fram 3. júlí 1954. Í aðalvinning var Chevrolet Bel Air bifreið en vinningshafinn var Böðvar Sigurðsson bóksali í Hafnarfirði.

VALLI MEÐ KIRKJUSTUÐ Á EYRARBAKKA

0

Stuðmaðurinn og tónskáldið Valgeir Guðjónsson verður með tónleika í Eyrarbakkakirkju 30 mars. Fær hann þar sunnlenskar raddir til að syngja lögin sín gömul og ný í kirkjunni þar sem hljómburður er góður. Valgeir og eiginkona hans hafa verið búsett á Eyrarbakka undanfarin ár og rekið þar menningarsetrið Bakkastofu.

 

 

GJALDÞROT FORELDRA PRINSESSUNNAR AF WALES VELDUR VANDA

0

HEIMIR KARLS (63)

0

Útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson er afmælisbarn dagsins (63). Hann hefur rifið sig upp eldsnemma á virkum dögum um árabil til að stjórna morgunútvarpi Bylgjunnar með ágætum árangri og er enn að. Hann fær óskalag með Heimi (og Jónasi).

 

GOSSTJÖRNU Á BESSASTAÐI

0

Nú eru „virkir í athugasemdum“ að komast á þá skoðun að tilvalið væri að gera jarðeldasérfræðing að næsta foreta í ljósi tíðarandans. Helst kona. Kristín Jónsdóttir í náttúruvádeild Veðurstofunnar gæti orðið smart á Bessasstöðum – en þá verður gosið að halda afram, helst fram á kjördag.

KANNSKI KAUPIR BRANSON BESSASTAÐI

0

Halla Tómasdóttir er stödd á landinu og er með fréttamannafund í dag þar sem forsetaframboð hennar verður rætt.

Halla starfar í New York sem stjórnarformaður í einu fyrirtækja breska athafnamannsins og auðkýfingsins Richard Branson þar sem hún er titluð „The B Team CEO Halla Tómasdóttir“.

Í síðasta Besssstaðaslag Höllu var oftar en einu sinni eftir henni haft: „Ég er píparadóttir.“

Kannski kaupir Branson Bessastaði.

Tengd frétt.

PABBI LAUFEYJAR LÍN NÝR FORMAÐUR BANKARÁÐS LANDSBANKANS

0

Faðir íslensku stjórsjörnunnar Laufeyjar Lín verður gerður að formanni bankaráðs Landsbankans  á næsta fufndi ráðsins. Jón Þ. Sigurgeirsson heitir hann og hefur víða komið við í fjármálaheimum.

Jón er er sonur Sigurgeirs Jónssonar sem var forstöðumaður Fjársýslu ríkisins, ráðuneytisstjóri og seðlabankamaður. Jón byrjaði ferillinn hjá pabba sínum og hefur svo farið öfugan hring:

Fjársýslan – Seðlabankinn – Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn –  en er nú
titlaður efnahagsráðgjafi Lilju Daggar Alfreðs kúltúrráðherra Framsóknar.