Elton John er 77 ára í dag. Frá upphafi eitt sterkasta vörumerki dægurmenningar heimsins. Enginn hefur selt fleiri plötur en hann og minningarlag hans um Díönu prinsessu, Candle In The Wind, trónir þar á toppnum sem mesta selda smáskífa allra tíma, bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum.
LEIGUÍBÚÐ FYRIR GUNNAR SMÁRA?
„Okkur Sóleyju vantar íbúð til leigu, þriggja herbergja eða svo, helst ekki rándýra og eiginlega sem fyrst,“ segir sósíalistaforinginn Gunnar Smári:
„Við vinnum í Skipholti, Bolholti og Hamrahlíð og viljum helst lifa lífinu án bíls. Ef þið getið hjálpað megið þið senda mér einkaskilaboð.“
VINDMYLLUR OG VANDRÆÐI

„Vindorkuver krefst stórfelldrar óafturkræfrar vegagerðar um hálendið, sem allir vilja vernda,“ segir Ragnar Önundarson samfélagsrýnir og fyrrum bankastjóri:
„Spaðarnir eru úr “tveggja þátta plastefnum,” sem eru ekki endurvinnanleg (epoxy) og þarf að urða eftir notkun. Endingartími spaðanna er styttri en turnanna. Þeir slitna og plastefni dreifast um náttúruna. Íslensk stórviðri og ísing mun fella suma turnana. Algengt er að kvikni í túrbínunum og þá fellur logandi “glussi” til jarðar…Ég tel vindorkuver skaðleg ferðaþjónustunni, því það er lítt snortin náttúran sem dregur ferðamenn hingað.“
VEÐURFRÆÐINGUR Í SPARIFÖTUNUM
Veðurfræðingur Ríkissjónvarpsins kom á óvart á sunnudagskvöldi þegar hann birtist skjánum í sparifötunum eins og hann ætti afmæli eða væri að fara að gifta sig. Gott hjá honum og páskaspáin ágæt.
HAPPY HOUR BJARGAÐ FYRIR HORN
Hann rétt náði því eina mínútu fyrir sjö að tryggja sér tvo fyrir einn – um leið rann Happy Hour út. Hann stilli tilboðinu snyrtilega til hliðar, fór sáttur í símann því hann vissi að tveir svellkaldir biðu á kantinum. Úr símanum heyrðist daufur hljómur af Sunny Afternoon með Kinks. Allt undir kontról.
THE KING OF COOL (94)
Steve McQueen (1930-1980) hefði orðið 94 ára í dag. Sá svalasti í bíósölum heimsins á sjöunda og áttunda áratugnum og reis vel undir viðurnefninu The King of Cool.
GUÐMUNDUR ANDRI VILL KLASSÍSKA GÍTARLEIKARA Í VERSLANIR
„Ég fór í tvær matvöruverslanir í dag og tók eftir músíkinni í þeim báðum sem var frekar lágt stillt en ágeng og óþægileg,“ segir Guðmundur Andri rithöfundur:
„Einkennilegt með vissa tegund af bandarískri tónlist, þar sem leitast er við að tjá sterkar tilfinningar á afdráttarlausan hátt – að hún hljómar stundum eins og verið sé að pynta söngvarann. Þarna gekk maður um í leit að gulum maísbaunum og í hátalarakerfinu bárust neyðaróp í manneskju, og við öll bara þarna að versla eins og ekkert hefði í skorist. Það væri meira gaman að hafa klassíska gítarleikara sem komið væri fyrir hér og þar í versluninni.“
„DUCK, DONALD DUCK“
„Biden mun sennilega ekki hætta fyrrr en hann kemur Donald Trump í Hvíta húsið aftur,“ sregir Davíð Oddsson í Reykjavíkurbréfi Moggans í dag:
„Sú getgáta minnir á sögu, sem Barack Obama sagði, sem var fráfarandi forseti 2017, þegar Trump hafði sigrað Hillary Clinton naumlega og stutt var í embættistöku hans. Obama rifjaði þá upp að þegar hann tók sjálfur við embætti, átta árum fyrr, hefði hann fengið lexíu hjá „The Secret Service“ sem verndar forsetana. Og eitt af því sem var nefnt við hann, að væri talin hætta á að gerð yrði á árás á forsetann, þá kölluðu lífverðirnir gjarnan hátt og snöggt: „Duck, Mr. President, Duck!“ Nú þegar kominn yrði nýr forseti, Donald Trump, myndu lífverðirnir sjálfsagt láta nægja að hrópa: „Duck, Donald Duck.“ Þetta gamanmál skilja líklega aðeins þeir sem lásu Andrés Önd á ensku.“
GRINDAVÍKUR BLÚS ALLA Á BRYGGJUNNI
Alli á Bryggjunni, lifandi goðssögn í Grindavík og líklega skemmtilegasti maður á Suðurnesjum, hefur gefið út bókina Grindavíkur Blús. Hann kynnti bókina fyrir félögum sínum á Grandakaffi Í Reykjavík þar sem þeir hittast nú þegar kaffihúsið Bryggjan í Grindavík er ekki lengur á þjónustusvæði. Kærkomin lesning fyrir alla, ekki síst heimamenn.
VARÚÐ! BANKAFURSTAR STORKA STJÓRNVÖLDUM
„Nýr kafli í sögu ríkisbanka er í mótun. Því miður minnir hann á aðdraganda hrunsins þegar stjórnendur bankanna töldu sig færa um að bjóða stjórnvöldum birginn og stýra landinu,“ segir Björn Bjarnason fyrrum ráðherra í Mogganum í dag.
„Eftir hrunið var kvartað undan því að eftirlit hefði ekki verið nóg og að stjórnmálamenn hefðu ekki beitt bankastjóra nægum aga. Þá var glímt við fjármálamenn í einkafyrirtækjum sem nefndir voru útrásarvíkingar í lofræðum á æðstu stöðum. Nú er eftirlitsumgjörðin allt önnur eins og eignarhaldið. Stjórnmálaerfiði vegna bankafurstanna lýkur aldrei.“


