Home Blog Page 215

BASSINN Í MEZZO (63)

0

Jóhann Ásmundsson bassaleikari Mezzoforte er afmælisbarn dagsins (63). Mezzoforte náði eyrum alheims þar sem bassinn dundi í kjölnum og stýrði takti.

BÖLVUÐ TÍK ÞESSI PÓLITÍK

0
„Þegar maður með peninga hittir mann með reynslu, þá öðlast maðurinn með reynslu peninga, en maðurinn með peninga öðlast reynslu,“ segir Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir sem veit hvað samfélgsklukkaan slær:
„Þegar stjórnmálamaður með peninga annarra, skattfé, hittir mann með reynslu, þá öðlast maðurinn með reynslu peninga, en stjórnmálamaður með peninga annarra, skilur ekki neitt í neinu, hvorki upp né niður.
Þegar allt er komið í óefni verður lausnin að einkavæða innviði, selja fjárfestum rétt til að hagnast á að hækka verð á þjónustu sem almenningur verður að kaupa á uppsettu verði.
Hún er bölvuð tík, þessi pólitík.

DULARFULLT HRAUNRENNSLI

0

„Fyrirsögn dagsins: Hraunið rennur lengra en það ætti að gera!“ segir Sigurður G. Tómasson fjömiðlamaður og samfélagsrýnir og er að vonum hissa.

Leiklistargagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson bætir um betur: „Svo er vonandi að það renni rólega, eins og sagði i einni frétt.“

SEÐLABANKASTJÓRI LES PASSÍUSÁLMA Í SAURBÆ

0
„Ég vil gjarnan deila þessum viðburði – þegar Passíusálmarnir verða lesnir upp í heild sinni í Saurbæjarkirkju á föstudaginn langa,“ segir Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri:
„Ég sjálfur hef fengið þann heiður að lesa sálm nr 26 sem fjallar um samskipti Pílatusar landsstjóra við Jesú. Og síðan sálm nr. 27 sem segir frá því Pílatus þvoði hendur sínar og dæmdi Jesúm til dauða. Gert er ráð fyrir því að ég lesi um 16.
Ég hef alltaf fundið ákveðna tengingu Hallgrími Péturssyni fyrir þá sök að við erum báðir aldir upp á sama stað – Hólum í Hjaltadal. En faðir hans var hringjari við kirkjuna. Og síðan eftir því sem eldist tala Passíusálmar hans sterkar til mín. Þeir eru ekki aðeins trúarverk – heldur einnig samfélagsádeila.
Að vísu var Hallgrímur rekin úr Hólaskóla og hraktist til útlanda 15 ára gamall. Eftir því sem ég sem kemst næst – kom hann aldrei aftur í Skagafjörð. En sagt er að hann hafi ort níðvísur um staðarfólk. Hann endaði síðar sem járnsmíðanemi í Kaupmannahöfn – þar fann Brynjólfur biskup Sveinsson hann og kom í prestnám. Að sögn heyrði Brynjólfur mann blóta hressilega á íslensku á dönsku götustræti.“

BJÖRK Á FORSÍÐU VOGUE

0

Björk ljómar eins og eðalsteinn á forsíðu tímaritsins Vogue í ævintýralegum kjól sem hún elskar: „I am so honoured to be wearing this margiela dress.“

photographer: viðar logi Vidar Logi words: liam hess stylist: edda gudmundsdottir makeup artist: andrew gallimore hair stylist: olivier schawalder masks: james merry James Merry manicurist: cam tran set designer: sophear van executive production: directors lab local production: lotti projects maison margiela artisanal designed by john galliano Maison Margiela Vogue Scandinavia.

MELABÚÐIN – DO YOU LIKE SERVICE?

0

Undarleg uppákoma varð við kjötborð Melabúðarinnar í miðri páskaösinni. Viðskiptavinur kom inn til að kaupa 250 grömm af laxi en það gekk ekki vel:

„Ég kemst ekki nær en 218 grömm,“ sagði afgreiðslumaðurinn við vigtina og virtist hugsi.

„Ég ætlaði að fá 250 grömm,“ sagði viðskiptavinurinn.

„Já, en ég get það ekki því það er bara eitt flak eftir og ef ég læt þig hafa 250 grömm á verð ég að setja þennan stubb aftur í borðið og það kaupir enginn svona lítin bita.“

„Ætlarðu að geyma þessi 250 grömm í borðinu fyrir einhvern annan en selja mér stubbinn? Ég kom á undan hinum viðskiptavininu, ef og þegar hann kemur, og ætlarðu að selja mér stubbinn og geyma 250 gramma bitann fyrir einhvern annan?

„Já. þetta eru reglurnar.“

„Á ég að kaupa stubbinn sem enginn vill? Í alvöru?

„Ef þú vilt.“

Verkstjóri kjötborðsins var kallaður til og hafði þetta að segja um málið: „Þetta eru reglurnar hér og eftir þeim er farið.“

„Do you like service?“ sagði viðskiptavinurinn, tók stubbinn og fór með hann heim þar sem hann varð nánast að engu á smjörpönnunni.

PÁLL Í HÚSAFELLI (65)

0

Fjöllistamaðurinn Páll í Húsafelli er afmælisbarn dagsins (65). Páll er athafnaskáld, lætur verkin tala og fer sínar eigin leiðir sem öðrum eru ekki færar. Einstakt eintak af manneskju án hliðstæðu í íslensku samfélagi. Páll spilar á steina eins og vibrafón og gefur Rússanum Alexey Chizhik ekkert eftir nema síður sé.

GAMLA REYKJAVÍK Í ÚTRÝMINGARHÆTTU

0

„Fyrir rúmlega 50 árum vildu gömlu mennirnir rífa mikið af 50-70 ára húsum hvar sem þau urðu í veginum fyrir skipulaginu eða bara til þess að útvega bifreiðastæði. Við unga fólkið mótmæltum þessu harðlega,“ segir Hilmar Þór Björnsson arkitekt og heldur áfram:

„Nú, 50 árum seinna, eru stjórnvöld enn á fullu að rífa 60-80 ára gömul hús og finnst það bara í himnalagi?

Skrítið!

Ég hef á tilfinningunni að það hafi aldrei verið rifið jafn mikið af húsum í Reykjavík og undanfarin 10 ár. Ég hef líka á tilfinningunni að stjórnvöld geri sér ekki grein fyrir hvað niðurrifið er mikið eða að þau séu í e.k. afneitun og haldi að þetta sé ekki eins mikið og það er í raun. Ég tek undir með þeim sem halda því fram að mest af þessu niðurrifi er óþarft og málin megi leysa betur með öðrum hætti.

Ástæðurnar fyrir öllu þessu niðirrifi eru margar og oftast vegna þess að fjáraflamenn vilja ávaxta pund sitt og fá meiri nýtingu á lóðum sínum. Oft eru gömul hús látin grotna niður og grenjavædd og svo er heimild fengin frá borginni til niðirrifs.

Mér sýnist þarna sé um að ræða fleiri tugi húsa. Líkega 10 við Hverfisgötu og annað eins eða meira við Laugaveg, heil húsaröð við Frakkastíg, hús við Vatnsstíg, nokkur hús við Vitastíg, Baldursgötu og við Hringbraut og Sólvallagötu og Skúlagötu þurftu að víkja. Svo þurfti að rífa byggingar á Kirkjusandi og húsin á Orkureitnum við Suðurlandsbraut og Ármúla og hús Hitaveitunnar við Grensásveg og ekki má gleyma húsunum sem voru látin víkja fyrir Vogabyggð fjögur hús við Sogaveg og tvö við Njálsgötu og mörgum fleirum sem ekki verða talin hér.“

FRYSTIKLEFINN Á RIFI MEIKAR ÞAÐ Í NEW YORK

0

Kvikmyndin Heimaleikur, ættuð úr Fristiklefanum á Rifi, kom, sá og sigraði á kvikmyndahátíð í NY. Eða eins þeir segja sjálfir:

„Gullna Flautan á leiðinni heim! Heimaleikurinn með útivallar sigur á Kicking and Screening í New York.
Eric Cantona var þar á meðal verðugra mótherja og Reynismenn þakka okkar manni fyrir góðan og drengilegan leik.“

BISKUPSEFNI VALDA VONBRIGÐUM

0

„Það eru vonbrigði að enginn þessara ágætu frambjóðenda skuli geta talað blaðlaust í tíu mínútur.“

Óskar Magnússon í Fljótshlíð