Home Blog Page 214

KRAFTAVERKAKONA GNARR

0

Heiða Kristín Helgadóttir sem stýrði kosningabaráttu Besta flokksins í baráttunni um borgina á sínum tíma og sigraði stefnir nú að nýjum sigri í forsetakosningunum fyrir Jón Gnarr. Heiða Kristín hefur birt nýtt plakat með frambjóðandanum í ýmsum stellingum og nú er bara að vanda sig með framhaldið eins og fyrrum í borginni.

DOKTOR JOHN

0

Ekkert böl er svo stórt að ekki lagi góður nætursvefn.

Doktor John

GRÓÐI Á KJÖRSTAÐ

0

Borgarráð
Ráðhús Reykjavíkur:


Forsetakosningar 2024 – þóknanir til kjörstjórna
Óskað er eftir að borgarráð vísi svohljóðandi tillögum vegna forsetakosninga sem
haldnar verða 1. júní nk. til afgreiðslu borgarstjórnar:
Lagt er til að borgarstjórn samþykki að þóknanir fyrir störf í kjörstjórnum í Reykjavík verði
sem hér segir:
Hverfiskjörstjórn kr. 136.000 –
Undirkjörstjórn kr. 82.000.-

Vaktin er mjög löng, hún hefst klukkan átta að morgni og henni lýkur í fyrsta lagi klukkan 23. Kjörstöðum er lokað klukkan 22 og nauðsynlegt er að gera ráð fyrir einni til tveimur klukkustundum í viðbót við uppgjör. Ekki er í boði að taka hluta af vaktinni, nauðsynlegt er að vera á staðnum allan tímann en þú færð matar- og kaffihlé og við bjóðum upp á morgunmat, hádegismat, kaffi og kvöldmat.

MARLON BRANDO (100)

0

Ein skærasta stjarna kvikmyndasögunar, Marlon Brando (1924-2004), hefði orðið 100 ára í dag. Elskaður jafnt af konum og körlum, goðsögn í lifanda lífi og áfram þó horfinn sé. Ferill hans á hvíta tjaldinu spannaði sex áratugi og stærstu vörðurnar á þeirri leið voru A Sreetcar Named Desire og The Godfather.

SPEKI JÓNATANS

0
Jónatan Hermannsson jarðræktarfræðingur lætur hugann reika:
hún sagði
við mig:
það er enginn
að ætlast til þess
að karlar skipuleggi eitthvað
og það er allt í lagi
vandinn
byrjar hins vegar
ef þeir gera ekki
það sem þeim er sagt

STÖPULLINN STYTTUR SVO BÖRN GETI KLAPPAÐ FOLALDINU

0

Framkvæmdir á Hlemmi teygja sig nú upp á næstu þúfu þar sem myndastytta Sigurjóns Ólafssonar af hryssu og foladi hefur staði lengi. Styttan verður flutt örlítin spotta og verður stöpullinn styttur nánast að jörð.

Til hvers? er spurt. Og svarið er: Til að börn geti klappað folaldinu!

Þær eru ýmsar hugmyndirnar sem skjóta upp kollinum á fundum skipulags og umhverfismála hjá Reykjavíkurborg.

Styttan var sett upp í Sogamýri 1966, flutt á Hlemmtorg 2005 í tilefni af fimmtugsafmæli Sigurjóns Ólafssonar. Árið 1958 fól Reykjavíkurborg honum að gera bronsmynd af klyfjahesti sem skyldi komið fyrir á Hlemmi, en þar var forðum áningarstaður hestalesta til og frá Reykjavík. Einnig var áformað að koma fyrir á Hlemmi eftirlíkingu drykkjarþróarinnar sem þar var. Verkið sýnir folaldsmeri með klyfjum. Vinstra megin ber hún planka, en koffort og pinkla hægra megin. Í humátt á eftir henni töltir folald og hnusar að móður sinni. Folaldið er með í för til að árétta að listamaðurinn sé að fjalla um aðstæður fátæka bóndans sem ekki hafi efni á að hlífa folaldsmeri sinni við klyfjum. Sigurjón hafði ungur fylgst með bændum á ferð með klyfjaða hesta sína í kaupstaðaferðum á Eyrarbakka. Til er ljósmynd frá 1890 af slíkri kaupstaðarferð sem talið er að listamaðurinn hafi haft til hliðsjónar. Hann vann síðan að hugmyndinni á árunum 1959–63 og verkið var steypt í brons hjá Lauritz Rasmussen í Kaupmannahöfn 1965. Sökum kostnaðar var folaldið ekki sent til afsteypu fyrr en 1984.

MARVIN GAY (85)

0

Bandaríski söngvarinn Marvin Gay (1939-1984) hefði orðið 85 ára í dag ef faðir hans hefði ekki skotið hann til bana í fjölskyldudrama heima við. Marvin Gay var einn vinsælasti söngvari Bandaríkjana, seldir plötur í milljónatali og bar þar hæst lögin What’s Going On og Sexual Healing.

VARÚÐ! EKKI BORÐA KARTÖFLUHÝÐI

0

Meltingalæknar vara sjúklinga með viðkvæman maga að borða óhýddar kartöflur eins og hefur verið tíska í nýrri matagerð um margra ára skeið. Ástæðan er sú að kartöfluhýði meltist varla nokkuð í bland við meltingarvökva heldur verður steinhart og jafnvel lítil flís af hýði getur stíflað endaþarminn eins og örlítil stálplata.

KLIKKAÐ KÁPUDRAMA Í VERSLUNARGÖTU

0

Hverjar eru líkurnar á þessu í fjölfarinni verslunargötu. Eldri kona í sparikápunni sinni mætir ungum manni sem er í alveg eins kápu!

Konan verður skiljanlega hissa en fer svo að hlæja. Ungi maðurinn í kápunni sinni brosir á móti. Ekki allt sem sýnist – nema stundum.

SÍÐASTI MACDONALDS BORGARINN Á ÍSLANDI TIL SÝNIS

0

Brooke Jenkins sendir myndskeyti frá USA:

Brooke Jenkins með eiginkonu sinni.
Brooke Jenkins með eiginkonu sinni.

Það hefur ekki verið neitt McDonald’s á Íslandi síðan 31. október 2009. Landinu þeirra líkar illa við skyndibitamenningu vegna rotvarnarefna & eitraðra efna innan skyndibitakeðjunnar. Síðasta McDonald’s máltíðin til að selja frá séreigninni hefur verið til sýnis á safni síðan frá þeirri dagsetningu, 25 árum síðar…Máltíðin er enn ósnert!