GLASGOW VIÐ VESTURGÖTU 1885
LOÐIN LOREN
Sophia Loren í Stokkhólmi 1955. Hún var ekkert að fela órakaða handarkrika heldur flaggaði með stælí hreyfingum.
SIGURÐUR G. ER GYÐINGUR EN AFÞAKKAR ÍSRAELSKT RÍKISFANG
Ein formóðir mín í kvenlegg hét Helga og kom frá Færeyjum þar sem foreldrar hennar voru kaupmenn, gyðingar frá Slésvík Holtsetalandi,“ segir Sigurður G. Tómasson fjölmiðlamaður og samfélagsrýnir:
„Veit ekki hvað það góða fólk hét. Vinur minn einn, bandarískur rabbini segir mér að samkvæmt reglum zíonisma sé ég gyðingur og geti fengið ísraelskt ríkisfang. En áhuginn á því er enginn!“
FORRÉTTABARINN OPNAR FYRR FYRIR MAN UNITED VS LIVERPOOL
Forréttabarinn á Nýlendugötu opnar fyrr en venjulega á sunnudaginn og ástæðan er þessi:
Opnum á barinn um leið og leikmenn Man Utd & Liverpool verða klárir á Old Trafford klukkan 14:25 á sunnudaginn.
Velkomið að panta borð á alnetinu eða í landlínu. Sjáumst!
ÁTTA ÞÚSUND MANNS Í STARTHOLUNUM – STÓRI PLOKKDAGURINN NÁLGAST
Stóri plokkdagurinn verður haldin um allt land sunnudaginn 28. apríl næstkomandi. Það er Rótarýhreyfingin á Íslandi sem skipuleggur daginn með aðstoð og atfylgi góðra bakhjarla.

Þetta verður í sjöunda sinn sem dagurinn er haldin hátíðlegur. Plokk á Íslandi heldur út virkum hópi á samfélagsmiðinum Facebook þar sem átta þúsund meðlimir deila myndum af sínu plokki og sinni útivist.
Það er ótrúlega magnað að rúmlega átta þúsund manns eigi þetta áhugamál.
KÁRI (75)
Kári Stefánsson súperlæknir og séní er afmælisbarn dagsins (75). Hann fær afmælislag með Doktor Hook and the Medicine Show.
FRAMBJÓÐENDUR MEGA EKKI KOMAST UPP MEÐ MOÐREYK
Kjósandi skrifar:
–
Eitt mesta hitamál forsetakosningana eins og þegar hefur verið bent á verður hálendi Íslands, auðlindir og notkun á málskotsréttinum. Margir benda á að leynt og ljóst sé stefnt að því að selja Landsvirkjun, fjöregg þjóðarinnar, og arður af þeirri einkavæðingu hverfi þar með til erlendra og innlendra elíta.
–
Í framhaldi af því hefur verið spurt hvort framboð Katrínar Jakobsdóttur sé liður í því að tryggja það að lög varðandi ofangreint fljóti í gegn um Bessastaði án þess að vera vísað í þjóðaratkvæði. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttur segir framboð sitt tilkomið vegna slíkra áhyggja.
–
Í tilkynningunni um framboð sitt sagði Katrín forseta Íslands eiga að standa vörð um hagsmuni Íslands á alþjóðavettvangi. Hún minntist ekki einu orði á mikilvægi forseta í að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar og auðlindir hennar. Framtíð lands og þjóðar ræðst af því að þjóðin verði ekki svipt auðlindum sínum. Almenningur á heimtingu á skýrum svörum varðandi mikilvægustu hagsmuni þjóðarinnar þar sem forsetinn getur haft úrslitaáhrif með því að láta þjóðina hafa lokaorðið um sínar eigin auðlindir.
–
Sumir frambjóðendur hafa þegar lýst því yfir að þeir muni grípa til málsskotsréttarins verði sett lög sem skerða tjáningarfrelsi eða önnur grundvallarmannréttindi en á slíkum lögum eru engar líkar því þau færu í bága við stjórnarskrána. Frambjóðendur eiga ekki að komast upp með að slá ryki í augu kjósenda með því vísa í mögulega skerðingu mannréttinda sem eru þegar grundvallarlög í landinu. Lagasetning varðandi auðlindir er hins vegar í sjónmáli.
–
Frambjóðendur verða að gefa afdráttarlaus svör varðandi auðlindir Íslands. Það er skylda fjölmiðla að halda kjósendum upplýstum í aðdraganda kosninga og sú skylda hvílir ekki síst á þáttastjórnendum RÚV. Þeir verða að spyrja þessara spurninga beint.

ER STEINUNN ÓLÍNA AÐ SKJÓTA SIG Í FÓTINN?
Steinunni Ólínu er ekki vel við Katrínu Jakobsdóttur. Því hefur hún margoft lýst yfir. Hún hótaði að skemma fyrir hugsanlegu forsetaframboði Katrínar með því að bjóða sig sjálf fram. Líklega hefur Steinunn metið vinsældir sínar svo miklar að hún gæti þannig hirt stóran hluta fylgisins af Katrínu og þarmeð eyðilagt fyrir henni.
Og nú er Steinunni Ólína komin í framboð en segist ekki gera það til höfuðs Katrínu þó hún hafi áður sagt það. Skiptir ekki aðalmáli. Það sem Steinunn Ólína virðist ekki hafa hugsað alla leið er að framboð hennar er í raun sem rauður dregill fyrir Katrínu, því Steinunn mun fyrst og fremst taka atkvæði frá framboði Baldurs og Felix. Þeir tveir og Steinunn Ólína sækja stuðning til sama hópsins, vinstri sinnaðs menntafólks og listafólks og Samfylkingarfólks. Steinunn mun því taka atkvæði frá Baldri og Katrín Jakobsdóttir marsérar í boði hennar inn um dyrnar á Bessastöðum.
Einhvers staðar væri þetta kallað að skjóta sig í fótinn.
ELÍTAN ÆTLAR AÐ KAUPA FJÖREGGIÐ – LANDSVIRKJUN
Kjósandi sendir póst með með viðvörun:
–
Forsetaframbjóðandinn Steinunn Ólina er kyndilberi nýju stjórnarskrárinnar likt og forveri hennar í starfi frú Vigdís og hr. Guðni Th.


