Home Blog Page 212

VINNUSTOFAN KJARVAL OPNAR GALLERÍ ÞAR SEM ÁÐUR SÁTU ÞINGMENN

0

Eigendur Vinnustofu Kjarval í Austurstræfi 10 eru að opna gallerí með glæsilegum sýningarsal á hæðinni fyrir neðan sjálfa Vinnustofuna en á þeirri hæð voru áður skrifstofur þingmanna sem fluttir hafa verið í nýja byggingu handan Austurstrætis. Fyrsta opnun að bresta á eftir nokkrar vikur.

Vinnustofa Kjarval leigir bæði út vinnuaðstöður fyrir einstaklega auk þess sem staðurinn er vinsæll samkomustaður bæði fyrir bolta og bús en rekin sem klúbbur og mánaðagjald innheimt með sölu á lykilorði sem stimplað er inn við útyrnar í Austurstræti. Mánaðargjaldið spannar frá tæpum 20 þúsund krónum og jafnvel upp í 60 þúsund.

Veigarnar flæða á Kjarval.
Veigarnar flæða á Kjarval.

Eigandi Kjarval er sagður skurðlæknir frá Akureyri, Hjörtur G. Gíslason, sem varð þar skattakóngur fyrir nokkru en fé sitt hefur hann sótt í útrás með magaermis aðgerðir sem framkvæmdar eru í miðbæ Malmö í Svíþjóð og kosta 89.000 krónur stykkið. Hefur Hjörtur gert 20.000 aðgerðir til þessa.

...og boltinn í beinni þegar mikið stendur til.
…og boltinn í beinni þegar mikið stendur til.

GÖMLU INNRÉTTINGAR GUÐSTEINS PIKKFASTAR Á VEGGNUM

0

Verslun Guðsteins á Laugavegi pakkaði saman fyrir skemmstu og kom sér fyrir í Ármúlanum, nýja miðbænum – næg bílastæði. Til stóð að taka niður áratugagamlar innréttingar á vegg og flytja í Ármúlann en þegar til átti til að taka var ekki hægt að hagga þeim þar sem þær voru límdar við vegginn og ógjörningur að komast að. Urðu þær því eftir en starfsmenn náðu aðeins tveir gömlum afgreiðsluborðum.

Hjá Guðsteini eru menn enn að velta fyrir sér hvers konar lím hafi verið notað þarna fyrir rúmum 70 árum. Hvílík ending.

Lífstílsverslun sem rekin hefur verið ofar á Laugavegi gegnt Kjörgarði hefur leigt gamla húsnæði Guðsteins og á eftir að njóta þessara fallegu innréttinga sem sitja pikkfastar á veggnum og eru ekki að fara neitt.

OMAR SHARIF (92)

0

Egypski stórleikarinn Omar Sharif (1932-2015) er afmælisbarn dagsins (92). Hver man ekki eftir Lawrence og Arabia sem færði honum Golden Globe auk tilnefningar til Óskarsverðlauna. Svo ekki sé minnst á Doctor Zhivago. Omar var einnig í hópi 50 bestu bridgespilara heims og talaði sex tungumál.

VINDMYLLUHUGMYNDIR NORÐMANNA HÉR Á LANDI LÚSUGAR EINS OG LAXARNIR ÞEIRRA

0

„Sagt er að sígandi lukka sé best,“ segir Ragnar Önundarson samfélagsrýnir og fyrrum bankastjóri í rafrænni morgunhugleiðingu sinni:

„Ísland ætti að skapa sér ímynd sem “vindmyllulausa landið.” Vatnsaflið er grænasta orkan. Virkjum í byggð og á fáförnum slóðum, hlífum hálendinu. Látum Norðmenn og peningana þeirra ekki flæða stjórnlaust yfir okkur aftur, nú í formi vindorkuvera. Þau eru líka “lúsug”, eins og laxarnir þeirra.“

ARSENAL MEÐ HLJÓÐI Á FORRÉTTABARNUM

0

Forréttabarinn á Nýlendugötu  á tánum í takkaskóm:

Meistaradeildarkvöld!
2 stórleikir kl 19:00.
Arsenal með hljóði.
Verið velkomin!

DENNIS QUAID (70)

0

Leikarinn Dennis Quaid er afmælisbarn dagsins (70). Þekktastur fyrir að vera í hópi þeirra bestu í bíó án þess að hafa fengið tilnefningu til Óskarsverðalauna eins og félagar hans flestir segir Guardian.

Dennis getur leikið allt og gerir það. Barðist við fíkniefnadrauginn á yngri árum, lagði hann í þeirri glímu og við tók glæsilegur ferill sem enn stendur. Hann er einnig tónlistarmaður og slyngur golfleikari. Golf Digest Magazin telur hann besta golfleikarann í Hollywood elítunni.

PAWEL BARTOSZEK EDRÚ Í 30 DAGA – ÞETTA GERÐIST!

0
„Dagur 30 í áfengispásu,“ segir Pawel Batoszek borgarfulltrúi í Reykjavík og þá gerðust þessi ósköp:
„Kominn með tvær aukavinnur, hef mætt í ræktina 5 daga vikunnar, festi upp ljós um alla íbúð, endurraðaði hillum í stofunni, litaflokkaði bækurnar og tók til í geymslunni. Hef stórbætt tímann í að leysa rúbikskubb og er langt kominn með gagnvirkt námskeið í skammtaforritun, sem ég dunda mér í á kvöldin, í öllum lausa tímanum.
Sólarhringurinn er of langur. Hvað gerir þetta edrú fólk við alla lausa tímann?“

NETSAMBAND Í BÍLAKJÖLLURUM

0

Stórum fjölbýlishúsum hefur fjölgað mikið síðustu ár og hafa stór fjölbýlishverfi byggst upp
víða um höfuðborgarsvæðið. Þessum hverfum fylgja oft niðurgrafnir bílastæðakjallarar með
einkabílastæðum sem fylgja íbúðum húsa. Síma- og netsamband er nauðsynlegt í slíkum
bílastæðakjöllurum, hvort sem það er fyrir almennt öryggi íbúa sem nota bílastæðin,
netsamband fyrir öryggis- og eftirlitskerfi, eða fyrir rafhleðslustöðvar. En farsímasambandi
getur verið ábótavant í slíkum bílastæðakjöllurum, þar sem ytri farsímasendar ná ekki að
veita viðunandi samband þar niður.

Míla hefur brugðist við þessum vanda og hefur þróað nýja þjónustu þar sem fyrirtækið setur upp farsímasenda í stærri bílastæðakjöllurum til að koma upp virku farsímasambandi. Öllfjarskiptafyrirtæki sem bjóða farsímaþjónustu til endanotenda geta nýtt sér þessa nýju
þjónustu Mílu. Þjónustan miðast við bílastæðakjallara þar sem eru 80 bílastæði eða fleiri.

JARÐSKJÁLFTAR Á REYKJANESI VALDA HRÆÐSLU Í NEW JERSEY OG NEW YORK

0

„Frá Reykjanesi til New Jersey? Það var virkilega pínulítill jarðskjálfti, mældist 4,8 á magnitude mælikvarða, en það hrærði mikið í hræðslu og spekúleringum í vikunni í New Jersey og New York, þar sem slíkir atburðir gerast kannski einu sinni á öld,“ segir doktor Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur, lengst af prófessor við Háskólann í Rhode Island í Bandaríkjunum:

„Jarðskjálftar snúast að lokum um plötu tektonics, sem er hreyfing þeirra fimmtán frábæru skorpuplötur sem gera upp ytra stíft lag jarðarinnar. New Jersey eins og New York situr innan um risastóra Norður-Ameríku diskinn. Þessi diskur nær frá Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku í vestri og alla leið til Mið-Atlantshafshryggsins í austri. Öll Norður-Ameríku platan færist að meðaltali á 2,3 cm hraða á ári til vesturs.

Í jarðbundnu vísindariti sem kom út 1975, greindu jarðeðlisfræðingarnir Donald Forsyth og Seiya Uyeda helstu drifkrafta plötuhreyfingarinnar sem slabbatog og hrygna ýta. Þess vegna er hreyfing Norður-Ameríku disksins að hluta ákveðin með hrygg ýtu Mid-Atlantshafshryggsins til austurs. Þann 10. nóvember árið 2023 átti sér stað mikill hryggjaviðburður á Reykjanesskaganum á Íslandi, opnaði rjúpu við lóðarmörk og skifti Norður-Ameríku disksins til vesturs. Við vitum ekki hversu hratt slíkir tektónískir atburðir verða en að lokum mun þessi hrygna frekju atburður undir Íslandi stuðla að streitu innan Norður-Ameríku disksins — kannski þegar.“

ROYAL BÚÐINGUR Á KALDABAR

0

Þessi spaði mætti á Kaldabar á Klapparstíg síðdegis í gær kyrfilega merktur Royal súkkulagðibúningi. Vakti hann athygli viðstaddra eins og algengt er þegar frávik skjóta upp kollinum í almannarými.