Home Blog Page 236

DAVÍÐ Á SPÍTALA MILLI JÓLA OG NÝÁRS – HLUSTAÐI Á GAMANSÖGUR

0

Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins um helgina upplýsir ritstjórinn, hlýtur að vera Davíð Oddsson, að hann hafi lagst inn á spítala í fimm daga milli jóla á nýárs. Og þar gerðist þetta:

Bréfritari lagðist óvænt inn á Landspítala í fimm
daga á milli jóla og nýárs. Þar rakst hann á göngum
spítalans á skemmtilegan mann sem gladdi hann með
frumsömdum gamansögum. Einhverjar voru þó gamalkunnar og bréfritari kannaðist við þær. Þú ert á
Mogganum, sagði hann, og ég held að þessi fyrirsögn
sé þaðan: „Látnir lausir að lokinni krufningu“. Og
þessi er úr drottningarviðtali: „Sá einn kemst áfram
sem skipuleggur tíma sinn í stórum dráttum. Það
er t.d. nauðsynlegt að taka átta tíma á dag í vinnu
og átta tíma í svefn. Skipulagið felst í því að þetta
séu ekki sömu átta tímarnir.“ Og svo var það „gamla
konan sem tók „pilluna“ af því að hún vildi ekki eignast fleiri barnabörn“. Og svo stjórnmálamennirnir:
„Góður stjórnmálamaður hugsar sig tvisvar um
áður en hann segir ekkert.“ „Nú er þingið að koma
saman rétt einu sinni – stærsta dagvistarstofnunin
fyrir fullorðna. Einn þeirra sagði: „Sannleikurinn er
það dýrmætasta sem við eigum. Við skulum því fara
varlega með hann.““ Og svo strákarnir að metast
um ágæti pabbanna: „Pabbi er svo fljótur að hlaupa,
að skjóti hann ör af boga er hann á undan henni í
markið.“ Hinn: „Pabbi minn slær með golfkylfunni og
er á undan henni að holunni.“ Sá þriðji: „Pabbi slær
ykkur út. Hann vinnur alla virka daga í ráðuneytinu
til klukkan fimm og er alltaf kominn heim fyrir tvö.
“ Bréfritari reyndi að svara af veikum mætti: „Veistu
af hverju Lúxemborg hefur aldrei ráðist inn í Rússland?“ Nei, hann vissi það ekki. „Það er vegna þess að við höfum ekki pláss fyrir stríðsfangana.“

LEIÐTOGINN

0

Leiðtoginn − Valdeflandi forysta er skemmtileg, ögrandi og nýstárleg bók um leiðtogafærni. Hún tekur lesandann með í persónulega og krefjandi vegferð þar sem hann öðlast djúpan sjálfsskilning. Á tímum hraða og örra breytinga er tilfinningagreind (EQ) leiðtoganum mun mikilvægari en vitsmunagreind (IQ) þar sem árangur hans endurspeglast ekki í því sem hann gerir – heldur öðru fremur í því hver hann er. Þettaa er einnig bók sem kallar á aðgerðir og geymir fjölda verkfæra sem auðvelt er að innleiða samhliða lestrinum.

Ingvar Jónsson er stjórnunar- og markaðsfræðingur og PCC-fagþjálfi sem hefur leiðbeint stjórnendum hér heima og víða erlendis í á annan áratug til að efla færni þeirra í starfi. Ingvar hefur hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir störf sín og framlag til mannauðsmála. Áður hafa komið út eftir hann ýmsar bækur til persónulegrar og faglegrar stefnumótunar hjá innlendum og erlendum forlögum.

VETRARHÁTÍÐ SETT FYRIR FRAMAN HEGNINGARHÚSIÐ

0

Vetrarhátíð verður haldin dagana 1. – 3. febrúar í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Listaverk höfða til allra skynfæra og vekja fólk til umhugsunar ásamt því að lýsa upp skammdegið á líflegan hátt. Eitthvað verður í boði fyrir öll þessa daga.

Tilgangur Vetrarhátíðar er að lífga upp á borgarlífið á dimmustu vetrarmánuðunum með því að tengja saman ólíka menningarlega þætti sem allir tengjast þema hátíðarinnar, ljósi og myrkri. Hátíðin skiptist í þrennt: Ljósaslóð, Sundlauganótt og Safnanótt og er aðgangur ókeypis.

Hátíðin verður sett 1. febrúar klukkan 19:00 fyrir framan Hegningarhúsið á Skólavörðustíg.

SIGMUNDUR OG ELÍN FLUTT TIL TENE

0

Fjölmiðlahjónin Sigmundur Ernir Rúnarsson og Elín Sveinsdóttir eiginkona hans eru flutt til Tenerife tímabundið þar sem þau baða sig í sól og sælu:

„Við Ella höfum vetursetu í fiskimannaþorpinu San Andrés, nyrst á Tenerife, fjarri glys og glaumi sollsins í suðri – og störfum hér við skriftir bóka og undirbúning sjónvarpsþátta, milli þess sem við förum í göngur og klifrum á fjöll. Héldum utan 2. janúar og skilum okkur heim einhvern tíma í mars, en biðjum að heilsa heim á hina eyjuna,“ segir Sigmundur.