Um helgina var var haldið málþing Æruverndar um málefni Sr. Friðriks Friðrikssonar í Seltjarnarneskirkju sem var fjölsótt. Niðurstaðan var þessi:
„Eftir faglega umfjöllun var niðurstaða málþingsins, að ekkert haldbært lægi fyrir sem sýndi
eða gerði líklegt að sr. Friðrik Friðriksson hefði brotið gegn kynferðismörkum barna á þeim
tíma sem meintar ávirðingar gegn honum eru hafðar uppi.
Vert er að hafa í huga að sr. Friðrik var á síðustu árum langrar ævi sinnar ellihrumur og
sjónlaus. Fjarri lagi er að mistúlka megi framkomu aldraðra sem svo er ástatt um á þann veg sem gert hefur verið með sr. Friðrik.“




