
„Það virðist sem deilur um staðsetningu kaffihúss Samhjálpar stefni í að verða eitt af kosningamálunum,“ segir Bjarni Þorsteinsson ritstjóri og útgefandi sem fékk hugmynd í morgun:
„Á leið minni í morgun á kaffistétt Kaffifélagsins við Skólavörðustíg sá ég skyndilega lausn á málinu sem allir ættu að geta sætt sig við: Hegningarhúsið við Skólavörðustíg. Húsið er í 101, sem notendur vilja, og enginn grunnskóli eða leikskóli í næsta nágrenni. Auk þess leysist þarna vandamálið um hvað gera eigi við húsið.“



