Home Blog Page 211

ELDGAMALL BRANDARI

0
maður
átti pafagauk
og var að reyna
að kenna honum að tala
og sagði:
ég heiti Palli
og fuglinn sagði:
ég heiti Palli
maðurinn sagði:
ég get flogið
og páfagaukurinn sagði:
það væri gaman að sjá það.
Jónatan Hermannsson

ARI (60)

0

Arai Matthíasson fyrrum þjóðleikhússtjóri er sextugur í dag. Ari er viðræðugóð og þægileg mannseskja með listrænt nef sem nær lengra en margra annarra sem hafa sig í frammi. Ari fær óskalagið um Ara.

PRÓGRAMM KATRÍNAR

0
„Á morgun leggjum við Gunnar af stað í fundaferð um landið,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi en Gunnar sem hún nefnir er eiginmaður hennar:
„Við hefjum leika á Ströndum og ég vona að ég sjái ykkur sem flest á fundi á Kaffi Galdri, Hólmavík, mánudagskvöld kl. 20:00.
Daginn eftir verður boðið upp á súpu og fund í Söngsteini við Hveravík, á þriðjudaginn kl. 13:00.
Þaðan liggur leiðin til Patreksfjarðar þar sem við fundum í félagsheimilinu kl. 20:00 þriðjudagskvöldið 16. apríl.
Á miðvikudag verðum við á ferðinni á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal og í hádeginu verðum við á Vegamótum.
Við verðum á Reykhólum klukkan 17:00 á miðvikudaginn í sal skólahússins. Klukkan 20:00 á miðvikudagskvöld býð ég til fundar í Vínlandssetrinu Leifsbúð í Búðardal kl. 20:00.
Ég vona að við sjáum ykkur sem flest! Og myndin er að sjálfsögðu tekin í berjamó í Kaldrananeshreppi á Ströndum.

HUNDAR Á HAPPY HOUR

0

Þessir tveir hundar voru á Happy Hour í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Létu fara vel um sig á koddum í gluggasyllunni og fyldust með mannlífinu fyrir utan á meðan eigendurnir kláruðu skammtinn sinn. Allir ánægðir.

ODDVITINN Á TJÖRNESI DATT Í LUKKUPOTTINN – VANN FORD FAIRLANE 1955

0

Vinningshafinn Úlfur Indriðason, þá bóndi og oddviti á Héðinshöfða á Tjörnesi, tekur á móti Ford Fairlane árgerð 1955 sem var þá aðalvinningurinn í Happdrætti DAS.

Á þessum tíma lagði happdrættið mikla áherslu á glæsilega vinnninga sem almenningur hafði tæpast efni á eins og glæsibifreiðar, íbúðir og jafnvel heilu einbýlishúsin.

„Lærði og tók prófið á slíkan – afmælismódelið frá Ford,“ segir Helgi Sigfússon sem seint gleymir þeirri stund.

Ingjaldur Ásvaldsson: „Ég man vel eftir þessum bíl. Indriði sonur Úlfs var alltaf á honum á öllum sveitaböllum. Þetta var æðisleg drossía.“
Jóhannes Geir Guðjónsson: „Bíllinn er V8 – happdrættið flott á því.“

ÓTTI OG ÁSTARÞRÁ Í MENNTÓ

0

Í febrúar á næsta ári verður frumsýndur nýr íslenskur söngleikur á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Það eru þær Unnur Ösp Stefándsóttir og Una Torfadóttir sem semja söngleikinn en öll tónlist er eftir Unu. Unnur Ösp leikstýrir og Una mun fara með eitt aðalhlutverka í sýningunni sem hefur fengið nafnið Stormur. Söngleikurinn fjallar um ungt fólk á tímamótum menntaskólaáranna, óttann við framtíðina, þrána eftir ástinni og leitina að okkur sjálfum.

LÆKNIR MEÐ LANDRIS Í KVIÐNUM

0

„Á aðventunni fann ég fyrir landrisi vinstra megin í kviðnum,“ segir Lýður Árnason læknir og baráttumaður fyrir betra Íslandi:

„Taldi þetta þýðingarlaust en um áramót fór megn hundagöngunnar í glímu við þetta útstáelsi og ég varð að horfast í augu við þá staðreynd að læknir heimilisins dygði ekki á þetta mein. Arkaði því í Glæsibæ og blakaði þessu á vin minn sem ég treysti. Hann kvað upp þann dóm að um væri að ræða vestfirzkt kviðslit sem lét sér ekki segjast og því þurfti skurð. Og í gær rann upp sá stóri dagur. Í bítið var ég mættur í klínikina í Ármúla, ósofinn enda svæfing framundan og ágætt að nýta hana. Vel var tekið á móti mér og fyrr en varði var ég kominn upp á skurðarborðið. Til að drífa þetta í gang fór ég að tala um Nýju Stjórnarskrána og var svæfingunni flýtt umsvifalaust. Næstu hálftímana var landrisinu gert skil og ég rankaði við mér um hádegisbil. Bros og djúsglas vöktu mig enn frekar til lífsins og fyrr en varði var ég kominn út í vorsólina. Fann þar fyrir þakklæti og vonarneista. Þó vissulega megi margt bæta í íslenskri heilbrigðisþjónustu er vert að geta þess sem gott er.“

ÓSKAR (70)

0

Óskar Magnússon athafnaskáld í Fljótshlíð er sjötugur í dag. Hann er orginal húmoristi eins og hann á kyn til og velviljaður mannvinur. Afmælisbarnið er með sérstakan tónlistarsmekk og setur helst ekki annað á fóninn en Sven Ingvars frá Svíþjóð – svo slær hann taktinn með sínu lagi.

ANDY GARCIA (68)

0

Andy Garcia, þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Vincent Mancini í Godfather III, er afmælisbarn dagsins (68). Hann er frá Kúpu og tekur hér Abba lag með söngkonunni Cher.

HREYFILL FARINN Á FJÖLL

0

„Kannaðu undur Íslands með staðbundnum bílstjór“ segir í auglýsingu frá leigubílastöðinni Hreyfli sem stefnir flota sínum á fjöll.