Home Blog Page 210

KARLAKÓR HREPPAMANNA Á NÝJUM BÚNINGUM

0

„Þá er komið að því!“ segir Bjarni Arnar syngjandi sæll og glaður:

Karlakór Hreppamanna ætla að halda sína árlegu vortónleika sem eru þrennir að þessu sinni. Eins og sjá má erum við komnir í glænýja búninga sem við erum ákaflega ánægðir með eins og sést kannski í auglýsingunni. Endilega merkið við í dagatalið hjá ykkur og ekki missa af þessari skemmtun:

HEIMSPEKINGURINN Í RÁÐHÚSINU

0
Eitt af undrum veraldar er hvað copy-paste virkar vel. Þvert á alls konar forrit, stafagerðir jafnvel stafróf,“ segir Pawel Bartoszek borgarfulltrúi, stundum kallaður heimspekingurinn í Ráðhúsinu:
„Þarna undir eru eflaust ógrynni af kóða með smáatriðum sem þarf að greiða úr en við göngum alltaf að því vísu að þetta virki. Sem það gerir. Eitt stærsta tækniafrek mannkyns. Það og ískápurinn.“

…ENGIN FISKUR TIL Í DAG SORRY

0

Fiskbúðin á Sundlaugavegi 12 hefur verið lokuð í rúma viku föstum viskiptavinum til furðu sem voru vanir að kippa með sér fiski eftir sundsprett í Laugardalsdalslaug þarna á næsta horni. Ekkert mætir þeim nema miðar í glugga: „LOKAÐ engin fiskur til í dag sorry“.

Fiskbúðin á Sundlaugavegi hefur verið þekkt fyrir gæðafisk og góða þjónustu og verið vinsæl eftir því. Er hér skarð fyrir skildi.

ÖFUGSNÚIN LÓA Í GRAFARVOGI

0

Guðmundur Brynjólfsson rithöfundur og sámfélagsrýnir fór í Grafarvogskirkju í gær til að spjalla við fólk enda djákni í hjáverkum. Þegar hann gekk út að fundi loknum sá hann lóu á grasflötinni fyrir utan: „Hún bara þandi gogg og neitaði að kveða burt snjóinn,“ segir Guðmundur og tók lóuna tali:

Ég tek þá enga mynd af þér, sagði ég við hana.

Þá bara kalla ég á snjóinn, svaraði hún.

Þú rétt ræður því, sagði ég ógnandi.

Já, ég geri það, sagði hún og skeit um leið og hún hóf sig glottandi á loft.

Lóan var ekki fyrr horfin á bak við kirkjuturninn en það fór að snjóa í miðjum apríl.

HALLA HRUND MEÐ HIRÐSKÁLD

0

Halla Hrund, spútnikin í Bessastaðaslagnum, er komin með sjálfskipað hirðskáld sem heitir Kristján Hreinsson. Hirðskáldið birti ljóð um daginn um ágæti frambjóðands og hefur nú bætt öðru við.

SPÁNSKI BARINN SELDUR

0

Tóta Guðjóns, áður kennd við Kaffi List á Klapparstíg, sem rekið hefur Spánska Barinn í Ingólfsstræti í rúm fimm ár gekk frá sölu og afhendingu staðarins til nýrra eigenda í dag.

Nýir eigendur reka einnig Jungle Coctail Bar í Austurstræti.

„Við þökkum öllum viðskiptavinum okkar fyrir samveruna hér og nú tekur nýtt við,“ segir Tóta ánægð með viðskiptin.

 

BÖRSEN ENDURBYGGÐUR – DANIR NJÓTA VIÐHLALDS MENNTUNAR IÐNAÐARMANNA

0

Danir njóta þes nú að hafa viðhaldið og þróað menntun og þekkingu iðnaðarmanna sinna og því eru þeir nú albúnir til að endurreisa Börsen við Kniplingsbrú í Kaupmannahöfn þó enn rjúki úr rústunum. Sérfræðingar segja það sjálfsagt mál og auðleyst.

Annað er upp á teningnum hér á landi þar sem eftirlit og endurmenntu iðnaðarmanna hefur nánast horfið í sparnaðarskyni og fyrir bragðið þarf grunsamlega oft að rífa tiltölulega nýbyggð hús.

MALBIKAÐ FYRIR MILLJARÐ

0

Malbikað verður fyrir alls um 842 milljónir króna í Reykjavíkurborg í sumar. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir við fræsun og yfirlagnir í maí og áætlað að þeim ljúki í september. Til viðbótar er kostnaður við hefðbundnar malbiksviðgerðir áætlaður um 230 milljónir króna en malbiksviðgerðir fara fram allt árið. Heildarupphæð malbikunarframkvæmda í Reykjavík á árinu 2024 er því áætluð 1.072 milljónir króna.

CHAPLIN (135)

0

Í dag eru 135 ár liðin frá fæðingu Charlie Chaplin. Einn mesti meistari kvikmyndasögunnar þó flest verk hans hafi verið þögul.

HALLA HRUND HIMNASENDING

0

Kristján Hreinsson tækfærisskáld hefur ort vísu til eins forsetaframbjóðandans sem siglir hraðbyri með stefnuna á Bessastaði.