Home Blog Page 209

TVEIR FYRIR EINN TILBOÐ?

0

“Baldur og Felix verða á Sauðárkróki” heyrðist í útvarpsauglýsingu. Eru þeir báðir í framboði ? Er þetta svona tilboð, “tveir fyrir einn?“ spyr Ragnar Önundarson með réttu.

DR. GUNNI OG KATA JAK

0

„Því miður held ég að Kata verði næsti forseti. Alveg sama hversu marga Facebook statusa fólk býr til,“ segir Dr. Gunni og rýnir í spilin:

„Það er einhver fasti á bakvið hana og alltof margir aðrir í boði svo atkvæðin smyrjast þunnt yfir línuna. Eina vitið væri að hafa þetta eins og í biskupskjörinu og eiginlega fáránlegt að þar séu 2 umferðir en ekki í forsetann. Svo þú getur bara tekið Bubba á þetta og byrjað að smjaðra fyrir henni strax.“

ANTHONY QUINN (109)

0

Stóleikarinn Anthony Quinn, fæddur í Mexíkó en varð síðar bandarískur, hefði orðið 109 ára í dag. Quinn er þekktastur fyrir Óskarsverðlaunamyndir sína Viva Zapata! og Lust for Life þó hann væri alls ekki síðri í Grikkjanum Zorba og The Guns of Navarone. Hann var einnig handlaginn og listfengur og hélt sýningar á verkum sínum auk þess að skrifa tvær endurminningabækur.

MEGAS Í KRINGLUNNI

0

„Hitti Megas og Möggu í dag, í Kringlunni af öllum stöðum. Vorum hissa en glöð og það áttu sér stað fagnaðarfundir,“ segir Einar Þór Jónsson fyrrum formaður Samtakanna ’78 en Megas hefur dvalið á Grund að undanförnu.

„Við þrjú erum þakklát og nokkuð ánægð með að vera lifandi…það er þó nokkuð, ekki satt? p.s tvær sýniningar eru eftir af mynd Spessa um Megas í Bíó Paradís. Mánudag og miðvikudag.“

FISKIKÓNGURINN ALLTAF SKREFI Á UNDAN

0

Fiskikóngurinn á Sogavegi sér tækifæri í hverju horni – alltaf skrefi á undan öðrum.

Hér birtist frétt um um fiskbúð á Sundlaugavegi 12 sem hefur verið lokuð um skeið án skýringa nema hvað að LOKAÐ stendur á límdum miða innan frá. Þá mætir Fiskikóngurinn og límir annan miða á hurðina utan frá og segir að nægan fisk sé að fá á á Sogaveginum hjá sér. Og þá liggur leiðina þangað.

STYTTA SÉR LEIÐ Í LEIFSSTÖÐ

0

Rétt áður en komið er að síðasta hringtorginu á leið í Leifsstöð er kominn malbikaður göngustígur sem stytti leið gangandi túrista á flugvöllinn. Gallinn er sá að göngustígurinn endar á miðjum akveginum eftir hringtorgið og og þá er helmingurinn eftir.

Þessir tveir túristar börðust áfram í beljandi rigningu og keflvísku roki með töskur sínar og sáu til flugvallarins eins og þyrstir menn í eyðimörk sem sjá allt í einu pálmatré og vatnsból handan hornsins. En þau enduðu upp á hraðbrautinni miðri aftur.

BÆ, BÆ VETUR

0

„Með þessum skilum og þessu hlýja lofti sem fer yfir landið á morgun, þetta eru ákveðin straumhvörf í veðrinu og við getum alveg sagt bless við veturinn,“ sagði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í útvarpinu í morgun og þá stukku allir á fætur.

ÞÓR FREYSSON (62)

0

Þór Freysson uppstökustjóri og framleiðandi hjá Trabant ehf. er afmælisbarn dagsins (62) – maðurinn á bak við margt af því nýja efni sem sjónvarpsstöðar landsins sýna.

Hann er flinkur á bakvið myndavélina líkt og þegar hann lék á gítar með Baraflokknum norður á Akureyri (1981-1984). Þægileg nærvera hans hjálpar til þegar hann er óhræddur við að leiðbeina gestum í beinni úrsendingu hvernig þeir eiga að haga sér því flestir hafa ekki hugmynd um það  þegar þeir mæta!

BUBBADEILUR Á FACEBOOK

0

„Ég sá Bubba Morthens syngja og spila í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Hann var algjörlega frábær!…6 stjörnur af 5 mögulegum. Vá vá vá!“ segir Ólafur Páll Gunnarsson lengi kenndur við Rokkland á Rás 2.

Fjöldi lækar og kommenterar. En svo kemur Árni Sveinsson kvikmyndagerðarmaður, menntaður í Harvard, úr allt annarri átt:

Bubbi Morthens – Þú ert auðitað geimsteinn. En um leið gjörsamlega delusional. Manneskja sem kemur íhaldinu til valda, þjónar þeim í sjö ár og svo köttar hausinn af skömminni með því að…. Wake tfku! Síðasta góða platan þín kom út 1992.“

BÖRNIN FRÁ GAZA Í REYKJAVÍK

0

Komið verður á fót skóla- og fjölskyldumiðstöð fyrir börn á leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólaaldri í kjölfar fjölskyldusameiningar fólks frá Palestínu. Þetta var samþykkt í borgarráði í dag og stefnt er að formlegri opnun mánudaginn 22.apríl.

Í síðasta mánuði komu 35 börn frá Gaza í Palestínu til Reykjavíkur á grundvelli fjölskyldusameiningar og eru þau komin í þjónustu velferðarsviðs á forsendum samræmdrar móttöku flóttafólks. Í þessum hópi eru 15 börn á leikskólaaldri, 19 á grunnskólaaldri og eitt barn á framhaldsskólaaldri. Það liggur fyrir að það muni aukast í þessum hópi á næstu vikum.

Skóla- og fjölskyldumiðstöðin verður opin virka daga frá kl. 8.30- 13.00 og verður áhersla lögð á eftirfarandi:

·        Vettvang fyrir samveru fjölskyldna. 

·        Samfélagsfræðslu. 

·        Mat á náms- og félagslegri stöðu barna. 

·        Kynningu á leikskóla-, grunnskóla- og frístundastarfi, meðal annars með vettvangsheimsóknum. 

·        Latneska leturgerð. 

·        Grunnorðaforða í íslensku. 

·        Undirbúning fyrir leik- og grunnskólagöngu. 

·        Undirbúning fyrir foreldra í skólafærni. 

Verkefnið er fjármagnað að hluta úr ramma skóla- og frístundasviðs en þörf er á viðbótarfjármagni upp á 13,1 milljón króna og verður sótt um styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til að mæta þeim viðbótarkostnaði.