Home Blog Page 208

SAGA AF KRISTJÁNI EIGINMANNI HÖLLU HRUNDAR

0
Sverrir Þórisson.
Sverrir Þórisson.

Fyrir um tveimur áratugum keyptum við fjölskyldan fína íbúð í Skaftahlíð. Þar ætluðum við að setjast að helst fyrir lífstíð. Þess vegna var miklu til kostað, allt tekið í gegn og málað ásamt ýmsu öðru,“ segir Sverrir Þórisson kennari.

„Sonur minn var langt kominn með MH og eignaðist þar vini og kunningja, eins og gengur. Einn vina hans sem ég hafði þá hitt tvisvar eða þrisvar, rak inn nefið þegar ég stóð með málningargræjurnar tilbúnar.
Hann las í leikinn og bauð mér umsvifalaust aðstoð. Það er ekki að orðlengja það að hann reyndist betri en enginn. Áður kom hann og bar píanó upp þröngan stiga og var þrekvirki. Í stað þess að fara í bæinn, fá sér bjór og kíkja á stelpurnar, þá eyddi þessi geðþekki ungi maður laugardeginum í málningarvinnu með manni sem hann þekkti varla nokkurn skapaðan hlut, með bros á vör.
Leið unga mannsins lá síðan í stjórnmálafræði og út í lífið sjálft. Það fór nú svo að hann kíkti á stelpurnar eins og vera ber.
Forsetaframbjóðandinn Halla Hrund Logadóttir er í dag eiginkona þessa eðal manns. – Ég hef fulla trú á þeim báðum til allra góðra verka.“

BARBRA STREISAND (82)

0

Einn vinsælasti skemmtikraftur sinnar kynslóðar í Bandaríkjunum, jafnvíg á leik, dans og söng – Barbra Streisand er 82 ára í dag.

Ein fárra sem hafa fengið verðlaunakvartettinn eftirsótta – Emmy, Grammy, Óskar og Tony. Hæfileikabúnt án hliðstæðu.

 

DAGFORELDRAR ATHUGIÐ!

0

Á vef Reykjavíkurborgar eru nú auglýstar tvær eignir sem dagforeldrar geta leigt fyrir starfsemi sína. Húsnæðið verður eingöngu leigt þeim sem hyggst nýta húsnæðið til daggæslu barna að uppfylltum tilteknum kröfum.  Meðal annars er gerð krafa um að tveir dagforeldrar vinni saman með 8-10 börn.Húsnæðið sem er í boði er annars vegar gæsluvallarhús á Njálsgötu og hins vegar nýtt húsnæði við Hallgerðargötu á Kirkjusandi.

  • Gæsluvallarhúsið við Njálsgötu er með heimild til að nýta þar stóra lóð og leiktæki, en leiksvæðið er þó opið almenningi á starfstíma daggæslunnar.
    Húsnæðið sjálft er 55 fermetrar, auk 10 fermetra útigeymslu.
  • Húsnæðið við Hallgerðargötu er 55 fermetra tveggja herbergja horníbúð á fyrstu hæð í íbúðarhúsi.

Vakin er athygli á að sótt er um að taka eignirnar á leigu á útboðsvef Reykjavíkurborgar og að á því svæði er hægt að senda inn nánari fyrirspurnir.

SNORRI Í MIÐFLOKKINN

0

Úr aldingarði Alþingis:

Snorri Másson fjölmiðlamaður með skoðanir verður í fyrsta sæti á einum af framboðslistum Miðflokksins fyrir næstu Alþingiskosningar ef áform þess efnis ganga upp.
Miðflokksmenn hafa verið að bera víurnar í Snorra og sást til hans nýlega í slagtogi við þingmenn flokksins, þá Bergþór Ólason og Sigmund Davíð Gunnlaugsson.
Þá ruddist Snorri nýlega fram á ritvöllinn á Vísi með gagnrýni á sveitarstjórnina í Mýrdalnum fyrir að koma á laggirnar enskumælandi pólitísku ráði um ýmis málefni sveitarfélagsins. Þetta er gagnrýni sem hljómar réttmæt í eyrum þjóðhollra Íslendinga og sérstaklega Miðflokksmanna.
Snorri er glöggur þjóðfélagsrýnir og með mælskari mönnum. Hann yfirgaf Stöð 2 til að leyfa mælskunni að njóta sín, en tvennum sögum fer af vinsældum eða tekjumódeli hlaðvarpsins Ritstjóri sem hann stofnaði í þessu skyni. Enginn frýr Snorra vits og þeir Miðflokksmenn mega teljast heppnir ef þeim tekst að klófesta hann áður en aðrir stjórnmálaflokkar fara á biðilsbuxurnar.

HALLA HRUND EKKI VIGDÍSARLEG NEMA LJÓSA HÁRIÐ SEGIR ÞÓRUNN SIG.

0

„Mér finnst Halla Hrund afar geðþekk en hún er auðvitað ekkert Vigdísarleg fyrir utan að hún er með ljóst hár,“ segir Þórunn Sigurðardóttir þungavigtarmanneskja í menningarlífi sinnar kynslóðar – eins og hún segir Vigdísi Finnbogadóttur hafa verið:

„Vigdís var þungavigarmanneskja í menningarlífinu með menntun á því sviði og öll hennar störf og reynsla lágu þar, auk þess sem hún hafði mikla reynslu af því að koma fram í sjónvarpi.“

Sonja B. Jónsdóttir fyrrum fréttamaður og kvikmyndagerrðarkona leiðréttir Þórunni snyrtilega:

„Held að Halla Hrund sé líka þungavigtarmanneskja – bara á öðrum sviðum en Vigdís og ekki síðri. Í raun kannski frekar mikilvægum sviðum í nútíma samfélögum og heiminum eins og hann er „á vorum tímum“.

KOPARINN Í BÖRSEN – BLESSAÐ HANDVERKSFÓLKIÐ

0
Sveinn Markússon járnlistamaður segir söguna um koparinn í kauphöllinni Börsen í Kaupmannahöfn sem brann fyrir skemmstu – byggt 1624. „Sjáið handverkið,“ segir hann:
Blessað handverksfólkið.
Trésmiðunum og koparsmiðunum sem höfðu unnið að endursmíði á þaki gömlu kauphallarinnar síðan síðla árs 2022, sáu sína vinnu brenna upp á þriðjudaginn sem var.
Þriðjungur af 3700 fermetra eirþakinu var í endursmíði, ásamt nýjun á timburvirki, sem fylgdi með.
Upprunaleg þakklæðning var úr blýi, en var rifin af húsinu í einu af síðustu stríðum Dana við Svía, og voru fallbyssukúlur steyptar úr þakklæðningu.
Nýverið var í gangi endurklæðning á þriðjungi af þökunum og var notaður endurunninn kopar frá Finnlandi. 40 tonn!
Handverk í heimsklassa.
Handverk í heimsklassa.
Kopar og trésmiðunum sem mættu til vinnu kl. 06.30 þá um morgunnin og þurftu að flýja branninn hefur öllum verið boðið áfallahjálp.
Fjórir milljarðar íslenskra króna kostar verkið og eigandi hússins sem er í eigu Dansk Erhverv, Atvinnurekendasambandsins, ætlaði að borga helming. Restin er fengin úr ýmsum sjóðum.
Sjáið myndirnar af þessu handverki!

ÞRÖSTUR LEÓ (63)

0

Þröstur Leó Gunnarsson leikari er afmælisbarn dagsins (63). Sól hans í kvikmyndaleik hefur nú risið í hæstu hæðir í myndinni Á ferð með mömmu þar sem hann leikur dásamlega á móti Kristbjörgu Kjeld sem gefur honum ekkert eftir. Enda sópuðu þau til sín 9 Eddum á dögunum. Þeir sem hafa ekki séð myndina Á ferð með mömmu verða að sjá því betri mynd hefur vart verið gerð á Íslandi síðan 79 af stöðinni var og hét.

RATCLIFFE KAUPIR ÆSKUHEIMILI GUNNU DÍSAR OG BYGGIR SUMARHÖLL

0

Beski auðmaðurinn, Sir Jim Ratcliffe, sem safnað hefur jörðum á Norðausturlandi hefur nú keypt jörðina þar sem fjölmiðlastjarnan Gunna Dís ólst upp ásamt með fjölskyldu sinni í Vopnafirði. Þar hyggst hann byggja sumarhöll í stil við það sem breska yfirstéttin hefur gert um aldir. Ekkert minna.

Sumarhöll Ratcliffe í Englandi - hannað af honum sjálfum.
Sumarhöll Ratcliffe í Englandi – hannað af honum sjálfum.

Gunna Dís undirbýr sig núna fyrir fyrir Eurovision þar sem hún verður kynnir en af Ratcliff er það helst að frétta að hann hljóp Maraþon í gær áður en hann fór á Wembley til að sjá lið sig, Manchester United, verða sér til skammar gegn 1. deildar liði Coventry. Þungbrýnn í stúku sinni.

VÍÐIR REYNIS (57)

0

Víðir Reynisson talsmaður Almannavarna er afmælisbarn dagsins  (57). Snarpur á skjánum, sívakandi  og skýr. Hann fær óskalagið Great Balls of Fire.

LOPAPEYSUR FRAMSÓKNAR Á FLOKKSÞINGI

0

Þessar dúkkur voru mættar á flokksþing Framsóknar í lopapeysum eins og vera ber. Verkið kallast „Forsetaframbjóðendur“ og féllu dúkkurnar vel inn í hópinn á Hilton.