Home Blog Page 207

OFBELDI OG HÓTANIR Á LANDSPÍTALANUM

0

Þetta veggspjald hangir í sjúkralyftu á Landspítalanum með skýrum skilaboðum:

„Daglega verður starfsfólk Landspítalans fyrir hótunum, ofbeldi eða áreitni. Það er ekki hluti af þeirra starfi.“

Ofbeldi og hótanir gegn opinberum starfsmönnum getur varðað allt að 6 ára fangelsi.

ÓTTAR GEÐLÆKNIR (76)

0

Óttar Guðmundsson geðlæknir er afmælisbarn dagsins (76). Víðsýnn mannvinur reiðubúinn til hjálpar allan sinn feril, sívakandi, síkvikur og nú síðast einn beittasti pistlahöfundur fjölmiðlana með húmorinn að vopni – en húmorinn er grundvöllur góðrar geðheilsu og það veit afmælisbarnið. Óttar fær óskalag dagsins – Still Crazy After All This Years:

 

LEIÐINDI LENGJA LÍFIÐ

0

„18 ára ljósmyndari á Alþýðublaðinu árið 1962. Það er eins og myndin hafi verið tekin í gær,“ segir Rúnar Gunnarsson ljósmyndari, tónlistarmaður og útgefandi um sjálfsmyndina sem hér birtist en en ekki er allt sem sýnist:

„Hvað get ég áttræður maðurinn ráðlagt ungu fólki sem er að hefja lífsbaráttuna? Mikilvægast er að velja leiðinlegt æfistarf því þá líður tíminn hægt og fólk finnur fyrir lífinu. Ég gerði þau mistök að læra ljósmyndun og starfa við blöð og sjónvarp og árin flugu stjórnlaust hjá með ógnarhraða. Já,veljið drepleiðinlegt starf þannig að hver dagur verði endalaus þjáning og leiðindi því þá líður tíminn hægt og lífið verður langt.“

BESTI DAGUR ÆVINNAR

0

„Í dag eru 60 ár síðan þessi stelpa fermdist og upplifði einn af eftirminnilegustu og bestu dögum ævinnar,“ segir Þuríður Sigurðardóttir, landsfræg söngkona og nú vel metin listmálari.

PENELOPE CRUZ (50)

0

Spænska þokkadísin Penelope Cruz er afmælisbarn helgarinnar, fimmtug. Cruz hóf ferilinn sem fyrirsæta, sló í gegn hjá spænska leikstjóranum Pedri Almodovar og lagði svo USA að fótum sér. Velgengni sína hefur hún helgað hjálparstarfi með peningagjöfum og unnið sem sjálfboðaliði í Indlandi og Uganda og barist í alþjóðasamtökunum PETA gegn loðdýrarækt þar sem feldurinn fer til klæðskera sem breytir þeim í pelsa.

GAMAN AÐ SJÁ HVAÐ ELÍSABETU GENGUR VEL SEGIR BÍÓKÓNGUR

0
Alfreð Ásberg.
Alfreð Ásberg.

„Gaman að sjá hvað gengur vel hjá Elísabetu,“ sgir Alfreð Ásberg bíókóngur í SAM – veldinu:

„Íslenski klipparinn Elísabet Ronaldsdóttir hefur klippt margar stórmyndir frá Hollywood, eins og t.d. John Wick, Deadpool 2, Shang-Chi and the Legend of the Ten Rings og Bullet Train, og íslensku myndirnar Mýrin, Reykjavík-Rotterdam og Djúpið.
Nýjasta stórmynd hennar, The Fall Guy með Ryan Gosling og Emily Blunt í aðalhlutverkum kemur í bíó 1.mai.“

BRUNO FERNANDES DÚKKAÐI UPP HJÁ JÓA BERG

0

„Afastràkarnir Alexander og Gunnar Berg voru í heimsókn hjâ frænda sínum Jóa Berg (Burnley) í gær,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson fyrrum fréttastjóri bæði á RÚV og Stöð 2:

„Þá mætti Bruno Fernandes själfur óvænt â svæðið. Burnley-MU ä morgun.“

MICHELSEN ÚRSMIÐUR (68)

0

Frank Ú. Michelsen úrsmiður, sá þekktasti í bænum, er afmælisbarn dagsins (68). Frank er af úrsmiðum kominn aftur í ættir og man enn eftir klukku afa síns sem Guðmundur Jónsson óperusöngvari söng inn á plötu:

TONY COOK Á ÍSLANDI

0

Hljóðupptökumeistarinn Tony Cook naut kvöldverðar á Forréttabarnum í Nýlendugötu ásamt gömlum félaga úr tónlistinni, Lárusi Grímssyni og eiginkonu hans, í gærkvöldi. Tony starfaði hér á land um áratugaskeið við hljóðupptökur í Hljóðrita og tók alls upp 250 plötur á þeim tíma – allt íslenskar metsöluplötur.

„Hérna er fínn matur,“ sagði Tony ánægður með sitt en Tonny býr nú í Manchester en kom sérstaklega í heimsókn til að fara á tónleika Mannakorns sem hann hljóðritaði einmitt á árum áður með góðum árangri:

„Frábærir tónleikar, Magnús sjálfur var rólegur á sviðinu en Pálmi í sprellandi fjöri út um allt. Gaman að sjá þá aftur,“ sagði Tony sem verður einmitt sjötugur ánæstu dögum og finnst ágætt að eldast.

Margar af þeim plötum sem Tony Cook kom að voru meðal vinsælustu og söluhæstu platna íslenskrar tónlistarsögu, og meðal annarra má þar nefna plötur með Megasi, Mannakornum, Björgvini Gíslasyni, Tappa Tíkarrass, Axeli Einarssyni, Björgvini Halldórssyni, Vilhjálmi Vilhjálmssyni, Björk, Hauki Morthens, Kukl og Áhöfninni á Halastjörnunni.

DÓMKIRKJUPRESTUR GIFTI SON SINN Á HEIMAVELLI

0
Sveinn Valgeirsson dómkirkjuprestur gifti son sinn á heimavelli í Dómkirkjunni í síðustu viku. Hátíðleg fjölskyldustund hjá föður og syni.
Ragnar Sveinsson heitir sonurinn og nýbökuð eiginkona, Ingibjörg Gylfadóttir.