Home Blog Page 206

HAPPY DAY Á 10 ÁRA AFMÆLI KALDA

0

Gleðikráin Kaldi á Klapparstíg fagnaði 10 ára afmæli í gær og sló upp veislu á barborðinu miðju. Var því vel tekið af fastakúnnum sem hlóðu í sig af hlaðborðinu aldrei þessu vant og höfðu á orði að þetta væri ekki bara Happy Hour heldur frekar Happy Day.

Kalda staffið ljómaði í afmælinu.
Kalda staffið ljómaði í afmælinu.

MENGUN Í ALMANNARÝMI – ÞRÖSTUR HÓSTAR

0
„Við sem komin erum á efri ár munum eftir mikilli herferð sem beint var gegn reykingum. Konur voru þar í fararbroddi,“ segir Þröstur Ólafsson rithfundur og samfélagsrýnir:
„Með reykingum í almannarými værum við hin tilneydd til að reykja líka. Við því fékkst loksins bann. Nú eru allir, blessunarlega, lausir undan þeim ágangi og þeirri heilsuánauð, sem reykingarnar annarra höfðu í för með sér.
Undanfarnar vikur hafa verið miklar stillur með sólskini a.m.k. í Reykjavík og nágrenni. Mesta umferðarsvæði landsins. Ég tók eftir því að eftir fyrstu vikuna fór ég að finna fyrir þurrahósta og reyndi án mikils árangurs að hreinsa lungun með ræskingum. Er enn að ræskja mig og skyrpa fínryki sem losnar úr malbiki við akstur á nagladekkjum og hefur sest að í lungum mínum.
Hér eru menn að iðka sama gjörning og áður með reykingum í almannarými. Óviðkomandi þjást vegna þeirra sem telja sig þurfa á þessum hjálpartækjum að halda til að geta ekið í hálkublettum eins og á sumarvegi. Alveg eins og reykingar annarra skemmdu lungu okkar hinna , spillir nagladekkjanotkun annarra heilsu okkar. Þessu verður að linna.“

ÁSTÞÓR Í BOBBA

0

Kosningaútsending RÚV vegna væntanlegra forsetkosninga tók á sig ýmsar myndir og er líklega besti skemmtiþáttur sem stofnunin hefur framleitt og sýnt á árinu.

Ástþór friðarsinni hætti að hlusta þegar Ísdrottningin fékk orðið og beindi sjónum sínum niður um nokkrar gráður.

BREKKAN MISSTI AF LARSEN Í FÆREYJUM

0

„7. ágúst 1996 hitti ég Kim Larsen í miðbæ Thorshavn í Færeyjum og tókum tal saman,“ segir Friðrik Brekkan kunnur leiðsögumaður og athafna:

„Sama kvöld var hann með tónleika en hann minntist ekki á það við mig og ég er ennþá á „bömmer“ yfir að hafa ekki lagt saman tvo og tvo og kannað betur afhverju hann væri í Thorshavn. C

ÁFENGI Á MOKKA

0

Mokka á Skólavörðustíg, þekktasta kaffihús höfuðborgarinnar, selur nú áfengi, vín og bjór eins og hver vill hafa. Á árum áður komu fastagestirnir, bóhemar og skáld, með eigin pela sem þeir höfðu undir borðum og blönduðu í ítalska kaffið. En nú er öldin önnur:

„Við byrjuðum á þessu 17. júní í fyrra,“ segja afgreiðslustúlkurnar.

JPV (72)

0

Jóhann Páll Valdimarsson, bókaútgefandi heillar kynslóðar ef ekki fleiri, er afmælisbarn dagsins (72). Nú eldri borgari á ferð og flugi út um allan heim með myndavél á lofti sem hann hefur náð listilegum tökum á. Á yngri árum, áður en sneri sér alfarið að fjölskylduútgáfunni Iðunn, naut hann þess á síðkvöldum að hlusta á Dark Side of the Moon við kertaljós og reykelsi í kjallaherbergi sínu á Melunum – og hér er óskalagið:

AFMÆLI FORSETAFRAMBJÓÐANDA – MEÐ MAÍSÓLINA Í BRJÓSTI

0

Arnar Þó Jónsson lögfræðingur, sá fyrsti sem tilkynnti framboðs sitt til embættis forseta Íslands, á afmæli í dag (53). Hrafnhildur Sigurðardóttir eiginkona hans hefur þetta um afmælisbarnið að segja:

„Í dag 2. maí á elsku Arnar minn afmæli. Maí er því mánuðurinn hans og má vel sjá einkenni mánaðarins í fari hans. Hann ber maísólina í brjósti; alltaf bjartsýnn og með góða yfirsýn. Hann býr yfir mikilli þrautseigju og krafti eins og náttúran sýnir okkur þegar tré og blóm fara að springa út eftir langan og oft harðan vetur. Arnar er sannur hugsjóna maður, réttsýnn og traustur. Hann ber hag annarra fyrir brjósti og ann Íslandi mjög mikið. Nú vill hann leggja sitt af mörkum til að standa vörð um okkar fallega land, menningu, tungu, fullveldi, lýðræði, lög og samfélag.

Ég er svo heppin að standa honum við hlið bæði í sól og vindi eins og þessi mynd lýsir svo skemmtilega en hún var tekin vegna forsetakosninganna sem framundan eru. Ævintýrin í okkar lífi eru mörg og efa ég ekki að afmælisdagurinn muni færa honum ný ævintýri.
Það verður haldið afmæli honum til heiðurs milli klukkan 17-19 á kosningaskrifstofu hans Ármúla 15. Þangað eru allir velkomnir sem vilja færa honum afmæliskveðju, en gjafir eru afþakkaðar.“

 

BESTA UPPLIFUN HÖNNUNARMARS

0

Grafíski hönnuðurinn Örn Smári Gíslason átti „bestu upplifun Hönnunarmars“ að mati margra sem heimsóttu sýningarbás hans á hátíðinni.

Örn Smári vinnur mynstur og form eins og það birtist á roði og hreistri fiska með ýmsum hætti eftir tegundum. Áferðina vinnur hann svo grafískt, ekki roðið sem slíkt heldur það sem sést og yfirfærir á áklæði, veggfóður, stólasetur og jafnvel töskur. Útkoman verður bæði falleg og flott eins og sjómenn vita sem sjá glitrandi fiska í sjó – hver með sína áferð. og Örn Smári veit hvað hann syngur enda sonur sjómannss og fisksala.

Fiskmynstur Arnarsá stólum og borðum veitingastaðar og ljósið í loftinu líka.
Fiskmynstur Arnarsá stólum og borðum veitingastaðar og ljósið í loftinu líka.

Framleiðsla Arnar er að ná augum og eyrum heimsins enda ekki aðrir í samkeppni við pælingar hönnuðarins sem fer svo snildarlega eigin leiðir.

Hægindastóll með fiskmynstri Arnars - flott.
Hægindastóll með fiskmynstri Arnars – flott

MAGNÚS Í SILFURTÚNI

0

í Silfurtún í Garðabæ er verk eftir Magnús Tómasson myndhöggvara. Engiin merking, bara Magnús Tómasson. Og það er alveg nóg.

UNNUR VERÐURFRÆÐINGUR (72)

0

Unnur Ólafsdóttir veðurfræðingur, eiginkona Þórarins Eldjárns skálds og móðir grínistans Ara Eldjárn, er afmælisbarn dagsins (72). Afmælisbarnið fær óskalagið Here Comes The Sun.