Nú hefur Gaza verið skráð sem einkanúmer á rauðan bíl í Reykjavík.
NORSKUR MCDONALDS
Norðmenn koma McDonalds stöðum fyrir í öðruvísi byggingum en aðrar þjóðir. Svona eins og fá einn íslenskan á Árbæjarsafn.
DAGUR VS MARÍA – KNOCK OUT!
Dagur B. Eggertsson er einn sá sleipasti í sjónvarpsviðtölum en minna mátti nú gera þegar hann mætti Maríu Sigrúnu Hilmarsóttur í þætti sem Ríkið vildi ekki sýna og rak hana í staðinn úr Kveik sem segirst sérhæfa sig í rannsóknarblaðamennsku hvað sem það nú er. Dagur var sleginn út í þriðju lotu og stóð vart upp eftir það.
Undarlegt stjórnleysi virðist ríkja á RÚV í yfirstjórn stofnunarinnar þannig að greiðendur afnotagjaldanna standa á gati á meðan haldið er áfram að að moka milljörðum af skattfé í þetta rugl. Er einhver að horfa og hlusta lengur?
GARY COOPER
Gary Cooper (1901-1961) var vinsælasti leikari Bandaríkjanna á gullöld kvikmyndanna um miðja síðustu öld. Hann hafði sinn eigin stíl hvort sem var í klæðnaði eða leik, gagnrýnendur elskuðu hann sem og félagar í leikarastétt svo ekkki sé minnst á bandaríska alþýðu. Cooper sat lengi í ellefta sæti af 25 á lista AFI yfir klassíska karlleikara í Hollywood.
NÍKÓTÍNSKORTUR Í APÓTEKUM
Apóekarar í Reykjavík geta ekki lengur afgreitt eina tegund af Nicorette, svokallaða „inhale“ sem fólk sýgur úr stautum í munnhol og svínvirkar. Lager heildsalans er uppurinn.
Gildir þetta um flest apótek en neytendendum hefur verið bent á að hringja í apótek á landsbyggðinni því þlíklega eru einhverjar restar þar. Í apóteki í Skipholti fann neytandi þó tvo pakka en það voru þeir síðustu og mátti teljast heppinn. Ef nýjar birgðir berast ekki til landsins fljótlega má eiga von á því að níkótínfólk fari að reykja tóbak aftur. En það stóð aldrei til.
JOHNNY KING FRUMSÝNDUR Í SKJALDBORG
ÞÓRHILDUR SUNNA (37)
Einn mesti skelfirinn á Alþingi, Þórdís Sunnar Ævarsdótir, er afmælisbarn dagsins (37). Þegar hún fer í gang verður hún ekki stöðvuð svo auðveldlega. Hún fær óskalagið The Pirate song:
HALLGRÍMUR FER Á FÆTUR
Hallgrímur Helgason fjöllistamaður vaknaði í morgun og sagði eins og við sjálfan sig: „Mikið væri nú fallegt að sjá svona fjölskyldu sem okkar fyrstu og gera Ísland að leiðarljósi heimsins í framsýni og umburðarlyndi.“
FÆREYSKU HÚSIN Á SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Helena Sivertsen er með sýningu í gullsmiðju Ófeigs á Skólavörðustíg þar sem Færeyjar eru í aðalhlutverki.
Helena er fædd árið 1970 og upp alin í Færeyjum, þar sem hún bjó í einu af þessu húsum, til 9 ára aldurs. Hún sótti samt daglega aftur á þessar æskuslóðir. Þetta var hennar æfintýraheimur og er enn. Helena flutti til Íslands 1993 og hefur átt heima í Reykjavík síðan þá. Helena hefur stundað ýmisk listanámskeið bæði í Færeyjum og í
Myndlistarskóla Kópavogs og tók hún 2 ára stúdentspróf í
Myndlistaskólanum í Reykjavík, þar sem hún útskrifaðist árið 2018.
Helena er með eigin vinnustofu, Nalla Art sem er á 2. hæð í Suðurveri,
þar eru verkin hennar uppi á vegg, býðst fólki að koma að skoða
vinnustofu hennar, eftir samkomulagi.
FORSETAFRÚIN (48)
Eliza Reid forsetafrú á Bessastöðum fagnar 48 ára afmæli sínu í dag. Hamingjuóskir!


